Fréttablaðið - 05.08.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
4.48 13.34 22.17
4.17 13.18 22.17
Í dag er miðvikudagurinn 5.
ágúst 2009, 217. dagur ársins.
Fyrir fimmtán árum var algengt að sjá asna sem og aðrar skepn-
ur draga plóginn um akra hér í
Zújar á Suður-Spáni. Fimmtán
árum þar áður þótti asninn ómiss-
andi hverjum manni sem átti ein-
hvern jarðskika og flestir eiga
jörð, meira að segja þorpsfíflið á
hálfan hektara.
NÚ eru einungis fimm asnar í
þorpinu og eru þeir eigandanum
frekar byrði en nauðsyn. En bónd-
inn atarna gerir þetta ekki fyrir
eintóman asnaskap því hann fær
einhverjar evrur frá stjórnvöldum
fyrir að viðhalda þessari skepnu
sem á undir högg að sækja hér á
Spáni líkt og annars staðar. Við
búum nefnilega við þá sorglegu
staðreynd að skepnur sem reynast
ekki manninum vel eiga verulega
erfitt uppdráttar.
MAÐURINN hefur náð slíku
ofurvaldi á tilveru jarðar að þær
skepnur sem ekki reynast þess-
um kóngi vel eru dæmdar úr leik.
En áður en þær hverfa alveg fær
mannfólkið samviskubit og borgar
einhverjum sérvitringum, sem eru
einnig í útrýmingarhættu í þess-
um gerilsneydda heimi, nokkrar
krónur fyrir þá viðleitni að við-
halda stofninum.
SKEPNAN verður að vera góð
á bragðið, gefa eitthvað ljúffengt
af sér eða gera eitthvert gagn til
að eiga tilverurétt. Eina gagn-
ið sem má hafa af asnanum er að
láta hann rogast með tól og tæki
á strætum sem eru svo þröng að
bíllinn kemst ekki um. Ekki er það
nægilegt innlegg til að tryggja sig
í sessi í heimi þar sem mannfólkið
fer með völd.
TIL allrar hamingju nýtur nauta-
atið mikilla vinsælda hér syðra
svo mikið gagn, gaman og fjár-
magn má hafa af nautunum sem
annars væru í sömu hættu og asn-
inn. Nautið er því búið að tryggja
stöðu sína í tilverunni með því að
gamna okkur mannfólkinu með
dramatískum hætti.
EN þá veltir maður fyrir sér stöðu
tvífætta asnans og spyr sig; hvern-
ig stendur á því að honum fækk-
ar ekki þó hann geri ekkert gagn
og enginn hafi þörf fyrir hann? Ég
hallast að þeirri skoðun að spurn-
ingin sé röng því að ólíkt þeim fer-
fætta hefur maðurinn feikilega
þörf fyrir tvífætta asna. Alltént
býr mannskepnan við kerfi sem
byggir að miklu leyti á því að ein-
hver kaupi heilan helling af rusli
og trúi alls konar vitleysu.
Asnaskapur
H E I L S U R Ú M
25%
TIL
70%
AFSLÁTTUR!
KING KOIL
Amerískt heilsurúm
(Queen size 153x203)
FRÁ kr. 99.850
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16