Fréttablaðið - 17.08.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Að sitja við gluggann í stofunni minni í Garðabænum og horfa yfir sjóinn er einstök upplifun,“ segir Halla Har, gler- og myndlistar-kona, sem þó var stödd í berjamó í Skorradalnum þegar náðist í hana. „Ég er nú fædd og uppalin á Siglu-firði þannig að ég er sjávarstelpa í mér.“
H ll
Aðspurð segist Höllu finnast gott að búa við sjóinn en þó hefur hún ekki alltaf gert það. „Við áttum heima í Keflavík og þar bjuggum við ekki við sjóinn þó að við höfum séð út á hann frá heimili okkar,“ segir Halla. Þau hjónin bjuggueinnig í Da
alltaf valið íbúðir eftir því hvern-ig útsýnið er,“ segir Halla, sem eyðir miklum tíma í íbúðinni við
sjóinn í Garðabænum vegna vinnu sinnar.
„Ég er mjög mikið
Valdi hús eftir útsýninu
Halla Har nýtur útsýnisins frá stofuglugganum í Garðabæ og á löngum sumarkvöldum situr hún og horfir
yfir sjóinn. Dögunum eyðir hún hins vegar í vinnustofu sinni inni á heimilinu og málar flesta daga.
Halla Haraldsdóttir þreytist aldrei á útsýninu við heimili sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SJÓMINJASAFNIÐ VÍKIN að Grandagarði 8 er opið alla daga
vikunnar frá 11 til 17. Leiðsögn um varðskipið Óðin er klukkan 13, 14
og 15. Í safninu má bæði skoða áhugaverðar sýningar en einnig
tylla sér í Safnakaffinu sem býður upp á góðar veitingar
og einstakt útsýni yfir gömlu höfnina.
A
T
A
R
N
A
Þrífandi og hrífandi
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeiðhefst 21. ágúst n.k.
MÁNUDAGUR
17. ágúst 2009 — 193. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Tilboð vikunnar
Upphengt salerni, seta,
innbyggður kassi og þrýstispjald
Tilboð kr.54.900,-
HALLA HAR
Finnst mjög gott að
búa við hafið
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Íslenskar konur efldar
Fyrirlesari er á leið
til landsins til að
hjálpa fólki að finna
sinn innri eldmóð
og forgangsraða
verkefnum.
TÍMAMÓT 14
HALLA OG LOVÍSA
Dansað eftir
settum reglum
Nýtt verk á Reykjavík Dance Festival
FÓLK 20
BENEDIKT KARL GRÖNDAL
Var í trúðaskóla
í tvö ár
Setur upp einleik á Íslandi
FÓLK 26
Efnilegur
plötusnúður
Hinn sextán ára
Kári Guðmundsson
vekur athygli fyrir
dubstep-tónlist sína.
FÓLK 19
HÆGVIÐRI Í dag verður hæg
breytileg átt og bjart með köflum.
Smáskúrir á víð og dreif, einkum
sunnan til og síðdegis. Hiti 10-15
stig.
VEÐUR 4
12 13
13
1213
Siðfræði Icesave-málsins
Hártoganir um langsótta lagaklæki
eða kvein um að við ráðum ekki
við þetta koma okkur hvorki
lönd né strönd,“ skrifar Stefán
Ólafsson.
Í DAG 12
FRJÁLSAR Jamaíkumaðurinn Usain
Bolt gerði sér lítið fyrir og stór-
bætti heims-
metið í 100
metra hlaupi
karla á HM í
Berlín í gær.
Hann hljóp á
9,58 sekúndum
og bætti gamla
metið um 0,11
sekúndum sem
hann setti á
Ólympíuleikun-
um í fyrra.
Þá var það frægt er hann gaf
eftir á lokasprettinum en nú hljóp
hann af fullum krafti yfir mark-
línuna og niðurstaðan var glæsi-
legt heimsmet.
Bolt er 22 ára gamall og vann
þrenn gullverðlaun í Peking í
fyrra. Hann þykir einnig líklegur
til afreka í 200 metra hlaupi karla
í Berlín þar sem hann er sömu-
leiðis ríkjandi heimsmetshafi.
Tyson Gay varð annar í hlaup-
inu á 9,71 sekúndu sem er nýtt
bandarískt met. - esá
Usain Bolt í 100 m hlaupi:
Nýtt heimsmet
Enski boltinn
af stað
Tímabilið í enska
boltanum hófst
með látum um
helgina.
ÍÞRÓTTIR 22
EFNAHAGSMÁL Samþykki á fyrirvörum fjárlaga-
nefndar við Icesave-samninginn er mjög mik-
ilvægur áfangi fyrir íslenskt efnahagslíf, að
mati Ólafs Ísleifssonar lektors í hagfræði við
Háskólann í Reykjavík.
Sigurður Líndal lagaprófessor hallast að
því að fyrirvararnir séu gagntilboð og þar
með nýtt samningstilboð. „Það þyrfti líklega
að tala við Breta og Hollendinga en það gæti
vel verið að þeir samþykki þetta án þess að
fara þurfi í aðrar samningaviðræður.“
„Þessi ströngu skilyrði í fyrirvörunum
gjörbreyta öllum forsendum samningsins,
sem þýðir að sjálfsögðu að samningnum hefur
verið hafnað,“ segir Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, um frumvarp um
ríkisábyrgð á innistæðum Icesave-reikninga
Landsbankans.
Frumvarpið var samþykkt úr fjárlaga-
nefnd á laugardagsnótt með stuðningi allra
flokka nema Framsóknarflokks, sem hyggst
skila inn séráliti um frumvarpið. Líklegt er
að önnur umræða um frumvarpið fari fram
á Alþingi á morgun. Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra segir að Bretum og Hol-
lendingum hafi verið kynntir fyrirvararnir.
Ef í ljós komi að frekari viðræðna sé þörf,
eftir endanlega afgreiðslu Alþingis, þá verði
einfaldlega að takast á við það, að mati
Össurar.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
lítur ekki svo á að samningurinn hafi verið
felldur. „Samningurinn rammar þá skilmála
sem nú hafa verið settir. Þetta er sú umgjörð
sem við teljum nauðsynlega til að geta farið af
stað með málið,“ segir Steingrímur.
Fyrstu áhrif samkomulags um Icesa-
ve verða afgreiðsla á lánum frá AGS og
Norðurlöndunum, að mati Ólafs Ísleifsson-
ar. Þannig verði hægt að styrkja gjaldeyr-
isvarasjóðinn verulega. „Að styrkja sjóð-
inn með þessum hætti skapar aukið traust á
íslenskt fjármálakerfi, nauðsynlegt traust í
utanríkisviðskiptum og eyðir óvissu um að
hér verði hnökrar á utanríkisviðskiptum,
þannig að þetta er mjög mikilvægur áfangi,“
segir Ólafur. Hann segir erfitt að segja til
um áhrif á krónuna. „Þetta að minnsta kosti
spillir ekki fyrir.“
Sárt er fyrir Íslendinga að þurfa að axla
ábyrgð á skuldum einkafyrirtækis sem lenti í
eigu óreiðumanna með þessum hætti, að sögn
Ólafs. Þá segir hann að það, að samningurinn
veiti sjö ára svigrúm, sé kannski mikilvæg-
asta atriði hans. Þannig sé hægt að vinna í því
að treysta efnahaginn, taka til eftir hrunið og
endurreisa.
Ólafur segir að afgreiðslan á Icesave virð-
ist hafa verið prófsteinn á vilja Íslendinga til
að efna skuldbindingar sínar, meðal annars
hafi það verið álit Norðurlandanna. Það að
ákvörðun hafi verið tekin sendi þau skilaboð
að vilji sé til þess að efna skuldbindingarnar.
„Þetta þýðir að við getum gengið uppréttir
menn í samfélagi þjóðanna og borið höfuðið
hátt.“ - þeb, vsp, kg / sjá nánar á síðu 6
Mikilvægt fyrir efnahagslífið
Ólafur Ísleifsson segir Íslendinga geta gengið uppréttir í samfélagi þjóða í kjölfar Icesave-samkomulagsins.
Sigurður Líndal telur fyrirvarana gagntilboð. Fjármálaráðherra segir samninginn ekki hafa verið felldan.
USAIN BOLT
STJÓRNMÁL „Með sínum málflutn-
ingi tók Framsókn dýpst í árinni
gegn Icesave þannig að flokkur-
inn átti erfitt með að bakka og
var eiginlega búinn að mála sig út
í horn,“ segir Einar Mar Þórðarson
stjórnmálafræðingur um hve mikil
áhrif það getur haft á Framsókn að
allir aðrir flokkar stóðu saman að
fyrirvörum við Icesave.
Vissulega hafi kannanir sýnt að
meirihluti þjóðarinnar var á móti
samningnum, að sögn Einars og
því gæti verið að margir virði það
við Framsókn að vera á móti.
„Það hefði verið betra gagnvart
erlendum aðilum ef allir flokk-
ar hefðu staðið að þessum fyrir-
vörum,“ segir Einar. Hann telur
Icesave ekki verða lykilatriði í
næstu kosningabaráttu. Þingflokk-
ur Vinstri grænna virðist standa
heill á bak við fyrirvarana, að mati
Einars en skiptar skoðanir voru
um samninginn innan flokksins.
„Það á eftir að koma í ljós hvern-
ig VG á eftir að vegna en tvö mál,
ESB og Icesave, hafa reynst þeim
erfið. Ljóst er að það þarf að koma
saman fjárlögum sem kemur til
með að reyna á ríkisstjórnina og
stuðningsmenn hennar,“ segir
Einar. - vsp
Stjórnmálafræðingur segir Icesave ekki verða lykilatriði í næstu kosningum:
Framsókn málaði sig út í horn
LÖMB AÐ LEIK Á leið sinni um Austfirði, nánar tiltekið á Mjóeyri í Eskifirði, rakst ljósmyndari Fréttablaðsins á erlenda ferðamenn
sem nutu náttúrunnar til hins ýtrasta. Litlu lömbin nutu góðs af örlæti krakkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI