Fréttablaðið - 17.08.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.08.2009, Blaðsíða 6
6 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR Nýtt leikár kynnt eir 3 daga 3 ÍRAN, AP Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, hefur lýst því yfir að þrjár konur muni ganga til liðs við nýja ríkisstjórn sína. Þetta verður í fyrsta sinn síðan 1979 sem konur gegna ráðherrastöðum í landinu. Réttarhöld yfir stjórnar- andstæðingum hafa staðið yfir í Íran og í gær var réttað yfir 25 manns. Þeir hafa ásamt fjölda annarra mótmælt niðurstöðu for- setakosninganna í landinu 12. júní og telja að brögð hafi verið í tafli. Alþjóðasamfélagið hefur gagnrýnt réttarhöldin harðlega og telja bandarísk stjórnvöld að um sýndarréttarhöld sé að ræða. Samanlagt hefur verið réttað yfir 135 manns í Íran síðan mótmælin brutust fyrst út. - fb Breytingar í stjórn Írans: Þrjár konur verða ráðherrar MAHMOUD AHMADINEJAD Þrjár konur munu ganga til liðs við nýja ríkisstjórn Mahmoud Ahmadinejad. Ætlar þú að fylgjast með enska boltanum fyrstu leikhelgina? Já 24,8% Nei 75,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú sátt(ur) við fyrirvarana við Icesave-samkomulagið? Segðu þína skoðun á vísir.is. LÖGREGLUFRÉTTIR Ók á 183 km hraða Karlmaður á þrítugsaldri var hand- tekinn í Hveradalsbrekku laust eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags eftir að hafa ekið bíl sínum á 183 kílómetra hraða. Hann var færður á lögreglustöðina á Selfossi og sviptur ökuleyfinu til bráðabirgða. FÓLK Miklu fleiri hafa lagt leið sína í Viðey í ár en í fyrra. 3.835 manns komu til Viðeyjar í júlímánuði, en það eru tuttugu prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Fyrstu sjö mánuði ársins komu rúmlega tólf þúsund gestir til Viðeyjar, innlendir sem erlendir ferðamenn að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Afþreying fyrir börn hefur verið vinsæl meðal gesta. Þeir hafa einnig notið góðs af því að göngustígar hafa verið lagfærðir í eynni og merkingar bættar. Kveikt verður á friðarsúlu Yoko Ono í október líkt og síðastliðið haust. - þeb Rúmlega tólf þúsund manns sóttu Viðey heim fyrstu sjö mánuði ársins: Miklu fleiri fara til Viðeyjar VIÐEY Mikil fjölgun ferðamanna hefur verið í Viðey það sem af er ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1. grein Fjármálaráðherra veitir Tryggingasjóði ríkisábyrgð vegna lána til að standa straum af lágmarksgreiðslum til inn- stæðueigenda í Bretlandi og Hollandi. Ábyrgðin tekur til höfuðstóls lánanna eins og þau munu standa eftir sjö ár. Að öðru leyti afmarkast ábyrgðin af samningsákvæðum og fyrirvörum, sem eru óaðskiljanlegur hluti af ríkisá- byrgðinni. 2. grein Þrjár forsendur eru fyrir veitingu ríkisábyrgðar. Sú fyrsta að lánasamningar verði túlkaðir þannig að tillit verði tekið til aðstæðna Íslands og nauðsyn þess að gera landinu kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi. Því verði orðið við beiðni Íslands um endurskoðun samninganna. Önnur forsenda er að staða Íslands, sem fullvalda ríkis, komi í veg fyrir að aðför sé gerð í þeim eignum sem ríkið þarf nauðsynlega á að halda. Sama eigi við um eignir ríkisins erlendis. Þriðja forsendan er að hvergi verði haggað við yfirráðum Íslands yfir náttúru- auðlindum og rétti ríkisvalds til að kveða á um nýtingu og eignarhald þar á. 3. grein Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geri úttekt á stöðu þjóðarbús- ins fyrir 5. júní 2015, til að meta forsendur fyrir endur- skoðun samningsins. Ríkisábyrgð miðast við hámark, árin 2017 til 2023 verður það fjögur prósent af vexti á vergri landsframleiðslu vegna lánasamnings við Breta, og tvö prósent vegna samnings við Hollendinga. Árið á undan og eftir þessu tímabili verða hlutföllin helmingi lægri. Ef greiðslubyrðin verður meiri en þetta hámark verði teknar upp viðræður. 4. grein* Fáist úr því skorið seinna að Íslandi og öðrum EES-ríkjum beri ekki skylda til að tryggja innstæður fer ríkisábyrgðin eftir viðræðum Íslendinga við Hollendinga og Breta. Ef viðræður fara ekki fram getur Alþingi takmarkað ríkisábyrgð. 5. grein* Ef óskað verður eftir viðræðum um breytingar samkvæmt endurskoðunarákvæðum þarf Alþingi að samþykkja það. 6. grein* Fjármálaráðherra geri Alþingi grein fyrir því hvernig endur- heimtur á eignum Landsbankans standa. Heildarskuldir, greiðslubyrði og skuldaþol skal vera metið reglulega. 7. grein* Fjármálaráðherra setur Tryggingarsjóði skilyrði vegna ábyrgðarinnar í sérstökum samningi. 8. grein* Ríkisstjórnin grípur strax til aðgerða til að endurheimta fé sem safnaðist inn á Icesave-reikninga. Hún skal starfa með yfirvöldum erlendis og fá aðstoð til að rekja hvert innstæðurnar fóru. Ríkisstjórnin á líka að sjá til þess að þeir sem bera fjárhagsábyrgð vegna skuldbindinganna verði látnir greiða það tjón. * GREINAR 4 TIL 8 ERU NÝJAR VIÐBÆTUR FRÁ FJÁRLAGANEFND. ÚTDRÁTTUR ÚR FYRIRVÖRUNUM ÍTALÍA Átján mánaða gamall breskur drengur lét lífið á eynni Sardiníu á Ítalíu í gær. Hann datt fram af svölum á annarri hæð á hóteli þar sem hann dvaldist með foreldrum sínum. Drengurinn var fluttur á spít- ala en var úrskurðaður látinn við komuna þangað. Lögregla á Ítalíu hefur sagt að drengurinn hafi verið skilinn eftir úti á svölunum á meðan foreldrarnir skiptu um föt, en því hafa foreldrarnir neit- að. Faðirinn segist hafa séð son sinn detta. Dauði drengsins er í rannsókn hjá lögreglunni á Sard- iníu, en foreldrarnir hafa ekki verið handteknir. - þeb Breskt smábarn á Ítalíu: Datt fram af svölum og lést STJÓRNMÁL „Það er algjört grundvallaratriði í þessari samningagerð hvort íslenska ríkið muni borga óháð þróun efnahagsmála í landinu eða ekki. Þessi ströngu skilyrði í fyrirvörun- um gjörbreyta öllum forsendum samningsins, sem þýðir að sjálfsögðu að samningnum hefur verið hafnað,“ segir Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, um frumvarp um ríkisábyrgð á innistæðum Icesave-reikninga Landsbankans. Frumvarpið var samþykkt úr fjárlaganefnd á laugardagsnótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokksins. Í fyrirvörum við samninginn er meðal ann- ars fallið frá ákvæði um að greiðslur skuli miðast við 3,5 prósent af landsframleiðslu. Þess í stað kemur inn ákvæði um þak á greiðsl- ur Íslands, þannig að ef engin aukning verði í landsframleiðslu og hagvöxtur aukist ekki falli greiðslur niður á því tímabili. Bjarni segir að nú verði lagt upp með allt annan grundvöll að samkomulagi, sem kalli á nýjar viðræður við Hollendinga og Breta. „Þetta eru sanngjarnar kröfur sem Hollendingar og Bretar hefðu átt að sætta sig við í sjálfu samningaferlinu. Að þingið skuli hafa afgreitt ríkisábyrgðina með þessum hætti er auðvitað hrein falleinkunn fyrir samningana,“ segir Bjarni Benediktsson. Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingar, segir ekki annað koma til greina en að gera nýja samninga. „Því hefur alltaf verið haldið fram að fyrirvarar þýddu nýja samningagerð. Nú eru komnir ansi stór- ir fyrirvarar, og það hlýtur að kalla á nýjan samning.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir vafann sem ríkir um hvort fyrirvararnir kalli á nýjar samn- ingaviðræður eða ekki, helstu ástæðu þess að Framsókn bendi á að lagalegu fyrirvararnir séu ekki nógu skýrir. „Við erum ekki sátt við þessa óvissu. Ef fyrirvararnir eru innan ramma samningsins, þá sitjum við uppi með mjög slæman samning. Ef þetta er nýtt samningstilboð, þá hefðum við þurft að taka mið af því í fyrirvörunum, því þeir munu væntanlega verða okkar aðalkröfur í þeim við- ræðum sem fara þá í hönd,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lítur ekki svo á að samningurinn hafi verið felldur. Spurður hvort fyrirvararnir kalli á nýjar samningaviðræður segir hann svo ekki vera. „Það er litið svo á að við getum staðið við þetta samkomulag, og ég bind vonir við að málið þurfi ekki að fara í þann farveg. Auðvitað er augljóst að þetta getur kallað á að útskýra þurfi málin, en ég tel að það sé best að segja sem minnst um það fyrr en það kemur í ljós hvernig því verður tekið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir málið nú í miðri meðferð Alþingis. Ef í ljós komi að frekari viðræðna við Hollendinga og Englendinga sé þörf, eftir endanlega afgreiðslu Alþingis, þá verði einfaldlega að takast á við það. „Við höfum verið í látlausum samskiptum við samningastjóra Breta og Hollendinga frá því seinni partinn á föstu- dag, og á morgun verður öllum sendiherrum hér á landi kynnt hvernig staðan er, meðal annars til að undirstrika að málið er ekki búið,“ segir Össur. Að hans sögn var Franek Rozwadowski, sendifulltrúa AGS á Íslandi, kynntir fyrirvararnir ítarlega í gærmorgun. Auk þess verði málið kynnt fyrir Evrópusam- bandinu, Svíum, Þjóðverjum og Frökkum á næstu dögum. Þá verði staðan kynnt fyrir öllum utanríkisráðherrum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna síðar í vikunni, þegar þeir koma hingað til lands á árlegan fund utanríkisráðherra ríkjanna. kjartan@frettabladid.is Ósammála um áhrif fyrir- vara Icesave-samningsins Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka segja Icesave-samninginn hafa verið felldan með fyrirvörum fjár- laganefndar og þörf sé á nýjum samningaviðræðum við Englendinga og Hollendinga. Fjármálaráðherra er því ósammála. Utanríkisráðherra segir að bíða þurfi endanlegrar afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu. ALÞINGI Frumvarp um ríkisábyrgð á innistæðum Icesave-reikninga Landsbankans var samþykkt úr fjárlaganefnd á laugardagsnótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. Frumvarpið verður rætt á þingi á morgun. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.