Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 2
2 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR
Pálmi, er þetta nokkuð á veg-
um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins?
„Jú, Wipeout Stöðvar 2 er liður í
aðgerðaáætlun AGS á Íslandi.“
Stöð 2 hefur ákveðið að ráðast í íslenska
útgáfu af sjónvarpsþáttunum Wipeout
og mun keppnin fara fram í Argentínu.
Argentína var einnig með áætlun við
AGS árið 2001. Pálmi Guðmundsson er
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
STJÓRNMÁL Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn (AGS) fór í tveggja
vikna sumarfrí 7. ágúst síðastlið-
inn. Nokkrum dögum áður átti að
taka fyrir og endurskoða áætlun
AGS og íslenskra stjórnvalda og
greiða hluta af láninu. Því var
hins vegar frestað.
Þær ástæður sem gefnar voru
upp voru þær að ekki hefði nást
að ljúka Icesave-samkomulaginu.
Einnig hafði endurfjármögnun
bankanna ekki verið lokið.
Hinu síðarnefnda er nú lokið og
lending er komin í Icesave.
Ekkert ætti að vera því til
fyrirstöðu að málefni Íslands
verði tekin fyrir, enda var „allt
tilbúið að hálfu íslenskra stjórn-
valda“, að sögn Steingríms J.
Sigfússonar fyrr í mánuðinum.
Fyrsti fundur AGS eftir frí
verður í fyrsta lagi 21. ágúst. - vsp
AGS kemur úr fríi 21. ágúst:
Gætu tekið
Ísland fyrir á
næsta fundi
STJÓRNMÁL Ásta Ragnheiður
Jóhannsdóttir, forseti Alþingis,
vonast til að Icesave verði tekið
fyrir í þing-
inu á þriðju-
dag. Mun Ásta
funda með for-
mönnum þing-
flokkanna í dag
og býst hún við
að þá verði ljóst
hvenær málið
verði tekið
fyrir.
Enn á önnur
og þriðja umræða eftir að fara
fram, ásamt atkvæðagreiðslum.
Hægt er að óska eftir því að mál
fari í nefnd eftir aðra umræðu
og telur Ásta líklegt að það verði
gert.
En hvenær lýkur málinu? „Ég
vona að hægt verði að ljúka því
fljótlega og ég stefni á það. Þetta
sumarþing er orðið það langt að
því verður að linna,“ segir Ásta.
Það mikil nefndarvinna er búin
að fara fram að Ásta efast um að
langar umræður þurfi. - vsp
Icesave rætt á þriðjudaginn:
Sumarþinginu
verður að ljúka
SLYS Konan sem lést í slysi í
Langadal í Austur-Húnavatns-
sýslu síðastliðið föstudags-
kvöld hét Margrét Jósefsdóttir,
til heimilis að Vesturgili 12 á
Akureyri. Hún var fimmtug
og lætur eftir sig eiginmann
og uppkomin börn. Tildrög
slyssins eru enn í rannsókn hjá
rannsóknardeild lögreglunnar
á Akureyri. Margrét var far-
þegi í flutningabifreið sem fór
út af þjóðveginum í Langadal.
Ökumaður bifreiðarinnar var
fluttur með sjúkrabíl til Akur-
eyrar en meiðsli hans eru ekki
talin alvarleg. Veginum um
Langadal var lokað um tíma
vegna slyssins. - fb
Lést í Langadal
SAKAMÁL Fertugur karlmaður er í
haldi dönsku lögreglunnar grun-
aður um að hafa myrt þrettán ára
dóttur sína á heimili þeirra í fjöl-
býlishúsi í Óðinsvéum.
Stúpmóðir stúlkunnar hringdi
í öngum sínum í lögregluna eftir
að átök hófust á heimilinu á milli
feðginanna. Enduðu þau með því
að faðirinn lamdi dóttur sína til
bana. Hún var nær dauða en lífi
þegar sjúkrabíll kom á staðinn og
lést hún á leiðinni á sjúkrahúsið.
Auk móðurinnar voru tvær
aðrar manneskjur í íbúðinni þegar
morðið átti sér stað: tvíburabróðir
stúlkunnar og eins árs systir henn-
ar. Tildrög ódæðisins eru óljós en
lögreglan rannsakar málið.
Einungis er hálfur mánuður
síðan fólkið flutti í íbúðina þar sem
morðið átti sér stað. Fjölskyldunni
hefur verið lýst sem fyrirmyndar-
fjölskyldu sem hafði hvorki kom-
ist í kast við lögin né glímt við
félagsleg vandamál. „Þetta er
ekta dönsk kjarnafjölskylda með
föður, móður og þremur börnum,“
sagði lögreglumaðurinn Jack Lied-
icke. Nágrannar fjölskyldunnar
höfðu heldur ekkert upp á hana að
klaga. „Þau fluttu inn fyrir fjór-
tán dögum. Þetta er ósköp venju-
leg fjölskylda sem hefur lengi búið
í þessu hverfi,“ sagði einn þeirra
í viðtali við Berlingske Tidende.
Annar nágranni, Birgit Diablez,
bætti þessu við í viðtali við Ekstra
Bladet: „Ég hitti föðurinn og dótt-
urina í kjallaranum í byrjun ágúst.
Þau spjölluðu saman á eðlilegan
hátt um hillur sem þau ætluðu að
fara að flytja. Þau voru mjög róleg
og það virtist ekki anda köldu á
milli þeirra,“ sagði hún. „Síðast í
gær [á laugardag] hitti ég pabbann
aftur í kjallaranum. Hann virkaði
á mig sem virkilega rólegur maður
og vingjarnlegur eins og öll fjöl-
skyldan hans. Núna er ég bara með
hnút í maganum og með gæsahúð.
Ég skil ekki hvernig svona lagað
getur gerst, hvernig hann gat gert
barninu sínu þetta.“
freyr@frettabladid.is
Danskur karlmaður
myrti dóttur sína
Fertugur karlmaður er í haldi dönsku lögreglunnar grunaður um að hafa myrt
þrettán ára dóttur sína. Fjölskylda þeirra hafði aldrei komist í kast við lögin.
DÖNSK LÖGREGLA Lögreglan í Danmörku rannsakar morð fertugs karlmanns á
þrettán ára dóttur sinni.
Þetta er ekta dönsk
kjarnafjölskylda með föð-
ur, móður og þremur börnum
JACK LIEDECKE
LÖGREGLUMAÐUR
STJÓRNMÁL Allir þeir sem mesta
ábyrgð bera á hruni bankanna
ættu að biðja þjóðina afsökunar á
því mikla tjóni sem þeir hafa vald-
ið. Þetta kom fram í hátíðarræðu
Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra á Hólum í gærdag.
Steingrímur sagðist enn bíða
eftir afsökunarbeiðni frá þeim
sem báru ábyrgð á Landsbankan-
um síðustu árin. Ekki væri verra
ef þeir kæmu með þann auð sinn
sem eftir væri og legðu hann í
púkkið til að bæta tjónið. Þá spurði
hann hvort ekki hlyti að vera von
á afsökunarbeiðni frá þeim sem
einkavæddu bankann og banka-
stjórum, bankaráðsmönnum og
eigendum. Þeir hefðu með atferli
sínu valdið þjóðinni ómældu tjóni
og sálarangist.
Í því samhengi minntist fjár-
málaráðherra sérstaklega á
Kjartan Gunnarsson, fyrrver-
andi bankaráðsformann Lands-
bankans og framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins. Hann gagn-
rýndi Kjartan fyrir grein sem
hann skrifaði um Icesave-málið í
Morgunblaðið á föstudag, og sagð-
ist hafa haldið að Kjartan væri
að biðjast afsökunar. „Það var
nú ekki og hann af öllum mönn-
um undir sólinni taldi sig vera í
siðferðilegri aðstöðu til annarra
hluta.“ - þeb
Steingrímur J. Sigfússon hélt hátíðarræðu á Hólum í gær og vék að hruninu:
Þjóðin verði beðin afsökunar
STEINGRÍMUR Fjármálaráðherrann hélt
hátíðarræðu á Hólum og vék meðal
annars að bankahruninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Brasilíski lýtalækn-
irinn Hosmany Ramos, sem var
handtekinn hér á landi fyrir helgi
flakkaði, um Evrópu með vega-
bréf bróður síns áður en hann
var gómaður í Leifsstöð. Ramos
er eftirlýstur í Brasilíu þar sem
hann á eftir að afplána þunga
dóma, meðal annars fyrir morð.
Hann vill fá pólitískt hæli hér á
landi og óttast að hann verði drep-
inn ef íslensk stjórnvöld framselja
hann til Brasilíu. Það gæti reynst
snúið að framselja hann því engir
framsalssamningar eru til á milli
Íslands og Brasilíu.
Dómsmálaráðuneytið mun
ákvarða um framtíð Ramos.
Verði hann framseldur mun hann
ljúka við afplánun á dómi sínum,
en árið 1981 var hann dæmdur í
21 árs fangelsi. Nokkrum árum
síðar strauk hann úr fangelsinu
og fékk fyrir vikið enn þyngri
dóm. Í desember á síðasta ári
fékk Ramos leyfi frá fangelsis-
vistinni með því skilyrði að hann
snéri aftur í byrjun janúar. Þrátt
fyrir það lét hann ekki sjá sig
og það var ekki fyrr en í síðustu
viku sem hann var handsamaður
í Leifsstöð með vegabréf bróður
síns undir höndum. - fb
Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos flakkaði um Evrópu:
Notaði vegabréf bróður síns
LEIFSSTÖÐ Hosmany Ramos var handtekinn í Leifsstöð á dögunum með vegabréf
bróður síns undir hendi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LONDON, AP Átta breskir hermenn
féllu í Afganistan um helgina. Þar
með hafa 204 breskir hermenn
látið lífið í landinu síðan ráðist var
þangað inn árið 2001. Alls hafa
sextán breskir hermenn látist í
Afganistan í þessum mánuði en
22 létust í júlí, sem er það mesta
í einum mánuði til þessa. Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, viðurkennir að sumarið hafi
verið afar erfitt en áréttar að vera
breskra hermanna í Afganistan sé
afar mikilvæg. „Þrír fjórðu hlutar
af allri skipulagningu á hryðju-
verkum í Bretlandi eiga rætur
sínar að rekja til fjallanna í Pakist-
an og Afganistan,“ sagði Brown. - fb
Breskir hermenn í Afganistan:
200 breskir her-
menn fallnir
INDLAND Azeem Khan, þriggja ára
strákur frá Indlandi, hefur fengið
sérstakt leyfi frá dómstólum þar
í landi til að stjórna mótorhjóli.
Þurfti hann að sanna að hann
gæti stjórnað hinu öfluga Royal
Enfield Bullet hjóli. Hjólinu
hefur faðir hans breytt þannig að
stýrið er óvenju langt svo Azeem
geti hjólað.
„Hann er öruggari í umferðinni
en flestir fullorðnir ökumenn sem
ég þekki,“ sagði Shantanu, faðir
Azeems sem verður fjögurra ára í
næsta mánuði.
„Auðvitað leyfi ég honum ekki
að keyra á fjölförnustu götunum.
Ég treysti Azeem en ég treysti
ekki öðrum ökumönnum,“ segir
faðirinn sem segir Azeem vilja
alvöru Harley Davidson. - vsp
Sérstakt ökuleyfi á Indlandi:
Þriggja ára með
mótorhjólaleyfi
ÁSTA RAGNHEIÐUR
JÓHANNESDÓTTIR
SPURNING DAGSINS