Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 8
8 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
63
11
0
8/
09
• Orkuveitan kostar flugeldasýningu á Menningarnótt og hefur gert frá upphafi hátíðarinnar. www.or.is
Árið 1930 var heitu vatni
dælt úr Laugunum til
Reykjavíkur í fyrsta sinn
og markar það upphaf
hitaveitu. Gengið verður um orkusöguslóðir: Laugardalur-Bolholt-
Fúlatjörn. Gangan hefst þriðjudaginn 18. ágúst við Þvottalaugarnar
kl. 19:30. Leiðsögumaður er Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Einnig bendum við á að upplýsingar um gönguleiðir á Hengilssvæðinu
eru á vef OR, www.or.is/ganga.
Söguganga
í Laugardal
BRETLAND Bresk sendiráð og ræðis-
mannaskrifstofur víðs vegar um
heiminn eru orðin þreytt á ýmsum
fyrirspurnum sem þeim berast.
Sendiráðsstarfsmenn eru reglu-
lega beðnir um að finna veður-
spár, hjálpa fólki við að pakka í
töskur eða finna sólgleraugu. Þá
hefur verið hringt í sendiráð til
að biðja um uppskrift að sultu,
og ferðalangur á Ítalíu spurði
sendiráðið hvar hann gæti keypt
ákveðna tegund af skóm.
„Ef einhver á í alvarlegum
vandræðum erlendis, hefur lent
í slysi, týnt vegabréfinu sínu
eða orðið fórnarlamb glæps, þá
getum við hjálpað honum,“ segir
Juliet Maric, ræðismaður Bret-
lands í Alicante á Spáni. „En við
getum ekki gefið upplýsingar um
hver má synda í hvaða sundlaug,
við getum ekki borgað leigubíla
fyrir ferðamenn eða gert neitt í
genginu.“
Breska utanríkisráðuneytið
hefur tjáð sig um málið og beðið
Breta erlendis sérstaklega að hafa
í huga að sendiráðin eigi að hjálpa
þeim sem eigi í verulegum vand-
ræðum. Fólk verði því að átta
sig á hlutverkum sendiráða, svo
þau geti einbeitt sér að alvarleg-
um málum þar sem fólk virkilega
þurfi á hjálp að halda.
- þeb
Bresk sendiráð beðin um að pakka niður, finna sólgleraugu og finna veðurspár:
Ferðamenn þreyta sendiráðin
SPÁNN Starfsmenn í utanríkisþjónustu
Bretlands hafa verið beðnir um ótrú-
legustu hluti, og eru þreyttir á að tíma
þeirra sé eytt í slíkt.
1. Hvaða tveir kvikmynda-
leikstjórar ætla að opna
myndlistarsýningu saman í
Listasafni Reykjavíkur?
2. Hvert fór Hillary Clinton
í opinbera heimsókn á
dögunum?
3. Hvernig fór kvennalandsleik-
ur Íslands og Serbíu í undan-
keppni HM?
SAMGÖNGUMÁL Byrjað verður að
steypa vegskála Bolungarvíkur-
megin í Bolungarvíkurgöngum í
dag eða á næstu dögum. Fljót-
lega verður lokið við gerð vegs-
kála Hnífsdalsmegin í göngun-
um.
Búist er við því að gangaop-
ið opnist í báðar áttir í nóvem-
ber. Lengri tíma en áætlað var
hefur tekið að vinna í göngunum
Hnífsdalsmegin þar sem óheppi-
leg setlög hafa gert að verkum
að aðeins er hægt að sprengja
um tvo til þrjá metra í einu. Þá
fer meiri vinna í það að styrkja
bergið og grafa laust berg út úr
göngunum. - þeb
Bolungarvíkurgöng:
Unnið að gerð
vegskála
VINNUMARKAÐUR „Það jákvæða sem
er að frétta af vinnumarkaði er að
atvinnuleysi á meðal námsmanna
varð minna en við óttuðumst,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi
í júlí var átta prósent sem jafn-
gildir því að 13.756 manns hafi að
jafnaði verið án atvinnu.
Gissur segir að atvinnuleysistöl-
ur muni lækka á næstunni sökum
þess að námsmenn hverfi af vinnu-
markaði. Hins vegar megi búast
við að atvinnuleysistölur hækki
aftur á síðustu mánuðum ársins
og spár um tíu prósenta atvinnu-
leysi að meðaltali á ársgrundvelli
gangi eftir. „Við vonum hins vegar
að þetta óvissuástand í efnahags-
málum fari að gefa eftir því að ef
tiltrú atvinnurekenda eykst eru
hlutirnir fljótir að gerast.“
Þeir sem verið hafa á atvinnu-
leysisskrá lengur en í sex mán-
uði eru nú um helmingur atvinnu-
lausra eða ríflega sjö þúsund
manns. Frá því í febrúar hefur
langtímaatvinnulausum fjölgað
úr um tíu prósentum allra atvinnu-
lausra í um helming þeirra.
„Þetta er áhyggjuefni því að
þetta snýr að því að menn haldi
vinnuhæfni og starfshvata,“ segir
Gissur. Hann telur að allt of fáir
séu skráðir í þau úrræði sem
standa til boða, en þeir voru 612
í júlí sem nemur aðeins fjórum
prósentum af heildinni. „Reynsl-
an sýnir að það þarf bæði að ýta og
draga fólk sem lendir í langtíma
atvinnuleysi. Það liggur við að það
þurfi að beita fólk þvingunum til
að úrræðin séu nýtt. Við erum þó
óhrædd við að gera það, því að við
vitum að fólki er greiði gerður með
því að koma því af stað út á vinnu-
markaðinn að nýju.“
svavar@frettabladid.is
Spárnar ganga eftir
Atvinnuleysi í júlí var átta prósent. Langtímaatvinnuleysi eykst sem er áhyggju-
efni. Fólk sekkur dýpra í vonleysi og þarf hvatningu og ráðgjöf.
Fjöldi atvinnulausra í lok júlí 2009
eftir atvinnugreinum.
%
1,1
1,2 1,3
1,9
3,3
4,8
6,6
8,2
8,9
9,1
8,7
8,1 8,0
10
8
6
4
2
0
jú
l.
´0
8
ág
ú.
´0
8
se
p.
´0
8
ok
t.
´0
8
nó
v.
´0
8
de
s.
´0
8
ja
n.
´0
9
fe
b.
´0
9
m
ar
. ´
09
ap
r.
´0
9
m
aí
. ´
09
jú
n.
´0
9
jú
l.
´0
9
Skráð atvinnuleysi í júlí 2008 - júlí 2009
Mannvirkjagerð
2.705
Verslun
2.888
Iðnaður
1.507
Annað
4.869
Leigustarfs. og
ýmis þjónusta
1.022
Sérfræðiþjónusta
1.007
Gisting /
veitingastarfsemi
781
Flutningsstarfsemi
832
MENNTUN „Staðan hjá okkur er ágæt eins og hún lítur
út í dag. Við getum enn bætt við nemendum í nokkra
bekki,“ segir Fríða Regína Höskuldsdóttir, skóla-
stjóri Landakotsskóla. Síðustu daga og vikur hafa
tveir af einkaskólum á grunnskólastigi í Reykjavík,
Landakotsskóli og Ísaksskóli, auglýst eftir nemend-
um fyrir komandi skólaár sem hefst í vikunni.
Að sögn Regínu er nemendastaðan í Landakots-
skóla svipuð og verið hefur undanfarin ár. „Það hafa
lengi verið laus pláss fyrir nemendur á þessum árs-
tíma, og þá erum við að miða við að skipa um tut-
tugu nemendum í hvern bekk.“ Regína segist allt
eins hafa búist við að foreldrar myndu í auknum
mæli skrá börn sín í sveitarfélagaskóla, þar sem
ekki er krafist skólagjalda, en það virðist ekki hafa
komið á daginn. „Hins vegar tekur nemendafjöld-
inn breytingum síðustu dagana fyrir skólasetningu.
Bæði er verið að skrá börn í skólann og yfir í aðra
skóla,“ segir Fríða Regína Höskuldsdóttir.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaks-
skóla, tekur í sama streng varðandi breytingar á
nemendafjölda fram á síðasta dag. Spurð hvort slík-
ar breytingar hafi áhrif á starfsmannafjölda skól-
ans segir hún að svo geti verið. „Við tökum frekar
áhættuna að hafa færra starfsfólk en fleira. Ef
fleiri börn eru skráð í skólann en við búumst við þá
er lúxusvandamál, því lítið mál er að fá ráðna kenn-
ara í augnablikinu. Við kjósum frekar að fara þá leið
en að þurfa að segja upp starfsfólki,“ segir Sigríður
Anna Guðjónsdóttir. - kg
Einkaskólar á grunnskólastigi auglýsa enn eftir nemendum:
Breytist fram á síðasta dag
LANDAKOTSSKÓLI Skólastjórar einkaskólanna segja nemenda-
fjöldann taka breytingum allt fram á síðasta dag fyrir skóla-
setningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEISTU SVARIÐ?