Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 12
12 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is
og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Icesave-málið er siðferðilegt ekki síður en efnahagslegt og
lagalegt. Skoðum nokkur efnis-
atriði.
Stjórnendur Landsbankans
reyndu að forða honum frá þroti
með söfnun sparifjár á netinu frá
almenningi í Bretlandi og Hol-
landi, eftir að fjármálamarkaðir
lokuðust bankanum að öðru leyti.
Hvers vegna er þessi iðja Íslandi
viðkomandi?
Bankinn var íslenskur, með
íslenskt starfsleyfi og bar nafn
landsins. Bankinn var undir
eftirliti íslenskra yfirvalda.
Íslenskur tryggingasjóður átti
að tryggja innstæðurnar að til-
greindu lágmarki. Íslensk stjórn-
völd hafa ítrekað staðfest slíka
ábyrgð. Með þessu veðsettu
bankamennirnir íslensku þjóð-
ina alla án þess að láta vita eða
spyrja leyfis.
Samt segja sumir nú að
íslenska þjóðin beri ekki ábyrgð
á þessari skuld. Hvað þýðir það?
Jú, með því er fullyrt að íslensk-
ur banki hafi mátt raka að sér
erlendu sparifé, undir fölsku
flaggi. Innstæðutryggingakerf-
ið íslenska hafi verið „í plati“
gagnvart útlendingum en í fullu
gildi fyrir Íslendinga, sem hafa
nú þegar fengið innstæður sínar
bættar. Forsendan er sú, að
Landsbankinn hafi mátt ræna
almenning í Bretlandi og Hol-
landi að vild, ef allt færi á versta
veg.
Davíð Oddsson fullyrti þannig
nýlega að Íslendingum bæri ekki
að greiða þetta. Málið er honum
skyldara en öðrum. Hann hand-
valdi Björgólfs-feðga til að kaupa
bankann þó þeir væru ekki með
hæsta tilboðið. Framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins og
náinn samstarfsmaður Davíðs,
Kjartan Gunnarsson, var vara-
formaður bankaráðsins þegar
Icesave-reikningarnir voru inn-
leiddir og allt til hrunsins.
Davíð átti svo sjálfur að
vernda fjárhagslegan stöðugleika
þjóðarbúsins eftir að hann gerð-
ist seðlabankastjóri, þar á meðal
átti hann að vernda okkur gegn
áhættunni af Icesave-útrásinni.
Þar brást hann algerlega. Flokk-
ur hans fór með aðalstjórn efna-
hags- og fjármála allan tímann
og hélt um alla þræði. Icesave-
málið er því sem næst einkamál
Sjálfstæðisflokksins.
Svo segja menn að ábyrgð
okkar hefði átt að útkljá fyrir
dómstólum. Þar hefði málflutn-
ingur okkar þurft að vera sá,
að innstæðutryggingakerfið á
Íslandi hefði aðeins verið fyrir
íslenska viðskiptavini Lands-
bankans en ekki þá erlendu.
Halda menn að nokkur dóm-
stóll hefði dæmt Íslandi í vil í
slíku máli? Varla. Líklegra er að
slík framganga hefði opinberað
okkur sem ræningjaþjóð.
Loks segja sumir að forsætis-
ráðherra eigi að taka málið beint
upp við leiðtoga Bretlands og
Hollands. Biðja eigi griða því
þjóðin ráði ekki við ábyrgðina
(þó útreikningar sýni annað).
Útlendingarnir vita betur. Þeir
munu réttilega segja: Íslend-
ingar lifðu um efni fram á ann-
arra þjóða fé og nú er komið að
skuldadögum. Lífskjör Íslend-
inga verða um margt betri en
lífskjör Breta þrátt fyrir þessar
auknu byrðar.
Mér sýnist af öllum gögnum
málsins og vel rökstuddum grein-
um Steingríms J. Sigfússonar
og Indriða H. Þorlákssonar og
fleiri að niðurstaðan sé skýr.
Hártoganir um langsótta laga-
klæki eða kvein um að við ráðum
ekki við þetta koma okkur hvorki
lönd né strönd. Það er því ekki
viðeigandi að betla né hlaupa frá
málinu. Í öllu falli er slíkt ekki
tímabært. Við þurfum nú að sýna
heiminum að við erum heiðarleg
þjóð sem vill standa við skuld-
bindingar sínar.
Þeir sem vilja fella samninginn
bjóða heldur ekki upp á neina vit-
ræna lausn. Fullyrða einungis
að hægt sé að fá betri samning,
án þess að neitt bendi til þess.
Þó var fyrri ríkisstjórn komin
áleiðis með verri samning síðast-
liðið haust. Markmið stjórnar-
andstöðunnar er aðeins að skapa
ríkisstjórninni erfiðleika og fella
hana.
Það er tímabært fyrir þjóðina
að komast á lappir aftur og nú
eins og siðað fólk. Fórnarlömb
Icesave-útrásarinnar hafa boðist
til að lána okkur fyrir skuldinni,
að mörgu leyti á viðunandi kjör-
um. Endurskoðun er möguleg
síðar, meðal annars með eðlileg-
um fyrirvörum Alþingis.
Verkefnið við siðferðilega
endurreisn Íslands er ekki síður
viðamikið en björgun þjóðar-
innar úr rústum „fjármálamið-
stöðvarinnar“, sem hönnuð var
á grundvelli róttækrar frjáls-
hyggju í Sjálfstæðisflokknum.
Gripdeildarsiðferðið sem af því
spratt þarf að kveða niður.
Frágangur Icesave-málsins
snýst um að byggja á ný traust
á Íslendingum. Það er gæfa við
þessar erfiðu aðstæður að hafa
fólk í forystu ríkisstjórnarinn-
ar sem allir vita að er heiðarlegt
og vinnur vel. Vonandi standa
flokksmenn þeirra beggja við
bakið á þeim alla leið.
Þeir sem bera hina eiginlegu
sök á því hvernig komið er fyrir
þjóðinni eiga hins vegar enn eftir
að biðjast afsökunar, svo ekki sé
meira sagt.
Höfundur er prófessor við
Háskóla Íslands.
STEFÁN ÓLAFSSON
Í DAG |
Getum bætt við nemendum
á læknaritarabraut,
lyfjatæknabraut og í nám í
lyfjatækni með starfi
Enn eru laus pláss í fjarnám á læknaritarabraut
og í dagskóla á lyfjatæknabraut Fjölbrautaskólans
við Ármúla. Einnig eru laus pláss í lyfjatæknanám
með starfi þar sem kennsla fer fram síðdegis þrjá
daga vikunnar.
Nánari upplýsingar má fi nna á heimasíðu skólans
www.fa.is og hjá kennslustjórum námsbrautanna:
Bryndís Þóra Þorsdóttir kennslustjóri lyfjatækna-
brautar, netfang: binna@fa.is og
Guðrún Narfadóttir kennslustjóri læknaritara-
brautar, netfang: gnarfa@fa.is
Siðfræði Icesave-málsins
Icesave-málið
Á
sínum tíma þurftu Íslendingar að heyja baráttu til að
tryggja að íslensk tunga yrði stjórnsýslu- og verslunar-
mál. Við þurftum að berjast fyrir því að hér ríkti virð-
ing fyrir íslenskri þjóðmenningu og íslenskum aðstæð-
um. En Íslendingar hafa alltaf verið fúsir til að leita
aðstoðar, ráðgjafar og þekkingar erlendis. Námsfólk hefur leitað
í miklum mæli til útlanda. Og hér eru jafnan margir erlendir
ráðgjafar og sérfræðingar.
Íslendingum finnst ekki mótsetning eða andstæða í þessu. Við
viljum standa á eigin fótum og virða móðurmálið, en hins vegar
höfum við metnað til að sækja okkur þekkingu og ráð þar sem
best verður á kosið erlendis sem hérlendis.
Nýlega sagði erlendur sérfræðingur í hagfræði, sem hlotið
hefur vegtyllur hér, að Íslendingar gætu varla séð fótum sínum
forráð vegna fámennis, einhæfis atvinnuvega, fjarlægða, kunn-
ingjavalds og skorts á sérfræðiþekkingu. Ummæli þessa sérfræð-
ings minntu mjög á sjónarmið dönsku stjórnarinnar fyrir tvö
hundruð árum. Hér er reynt að beita áhrifastöðu sem vopni gegn
þrótti og metnaði þjóðarinnar. Slíkt er vindhögg og Íslendingar
munu ekki hlaupa eftir þessum goluþyt.
Lýsingin á íslenskum aðstæðum sem hér var rakin minnir
þvert á móti á stöðu mála meðal milljónaþjóða þar sem fámennir
forystuhópar sitja að öllum valdastöðum í krafti auðs og háskóla-
göngu. Meðal þeirra þjóða eru dæmin líka alræmd um spillingu,
hyglun og kostnaðarsöm mistök af slíkum sökum.
Smáþjóðir eins og Íslendingar hafa líka við sína drauga að
fást. En öll reynsla Íslendinga, Færeyinga, Sama, Grænlendinga,
Maltverja, Lúxembúrgara, Baska, Katalóna, Sikileyinga, Kórsíku-
manna, Azoreyinga, Slóvena, Albana, Eista, Letta, Skota, Bret-
óna og margra fleiri smáþjóða hnígur eindregið í þá átt að fjöldi
og atgervi fari ekki saman með þeim hætti að fámenn samfélög
standi höllum fæti af þeim sökum. Allar þessar þjóðir hafa fengið
að kynnast yfirdrottnunarhug stórþjóðanna. Allar hafa þær feng-
ið að kynnast drambinu í sumum erlendum sérfræðiráðgjöfum.
Smáþjóðir sækjast eftir þátttöku í Evrópusambandinu, ekki til
að samlagast eða hverfa inn í stærri heild, heldur til að eflast og
finna metnaði sínum verðugt viðfang. Reynsla þeirra í Evrópu-
sambandinu hefur staðfest þetta.
Nú þarf að örva og efla Íslendinga og auka þeim metnað og
þrótt. Það þarf að tala kjark í þjóðina. Það þarf að efla íslenskan
þjóðarmetnað og íslenskt þjóðarstolt. Íslendingar vita eins og
aðrar smáþjóðir að þróttur, metnaður og árangur vinnast innan
að, og að fullveldi og sjálfstæði eru sívirk uppspretta kraftaverka.
Einmitt þannig eflumst við til samstarfs við aðra.
Smáþjóðirnar vita fullvel að ófriðarsaga stórþjóðanna stað-
festir orð Ólafs pá, að því verr muni duga heimskra manna ráð
er þau koma fleiri saman. Að undanförnu hafa ýmsir hagfræð-
ingar, erlendir sem íslenskir, ekki bætt við virðingu eða traust
á menntun sinni. Guði sé lof að orð Ólafs pá eiga ekki við um þá
alla líka.
Fjölmenni er ekki trygging fyrir hagsæld þjóða.
Heimskra
manna ráð?
JÓN SIGURÐSSON SKRIFAR
UMRÆÐAN
Hjörtur Hjartarson skrifar
um Icesave
Eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar fyrr og síðar,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra um Icesave-
samningana. Steingrímur J. Sigfússon
sagði þau vera að ráða fram úr „mesta
óláni Íslandssögunnar“. Fólk allra
flokka lýsti ábúðarfullt yfir hve mikil-
vægt væri að „FLOKKARNIR næðu
sátt um málið“. Ekki var minnst einu
orði á þann sem á að borga brúsann og búa við
„sátt“ flokkanna, nefnilega almenning í landinu.
Hann er einskis spurður. Almenningur skal – að
rótgróinni venju – bljúgur lúta niðurstöðu þeirra
sem stýrt hafa landinu svo „gæfulega“
undangengin ár. Rétt er að halda til
haga í því sambandi að stjórnarand-
staða gegnir hlutverki í ríkjum sem
kenna sig við lýðræði.
Í stuttu máli: Mikilvægast er að
almenningur nái sátt um niðurstöðu í
Icesave-krísunni. Sáttin næst með því
að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Niðurstaða sem sátt er um er rétt
niðurstaða. Niðurstaða sem magnað
ósætti ríkir um er röng. Almenningur
á stjórnarskrárbundinn rétt til að gera
út um málið. Þann rétt má heimta á vef-
síðunni www.kjosa.is. Gerum það.
Höfundur er talsmaður
„Í okkar hendur“ á www.kjosa.is.
Rétt niðurstaða er sú sem
þjóðin nær sátt um
HJÖRTUR HJARTARSON
Ofvirkt upplýsingastreymi
Síðustu vikur hafa verið í meira
lagi viðburðaríkar hjá Borgara-
hreyfingunni, og nýliðin helgi var
engin undantekning. Gárungar
veraldarvefsins hafa ekki setið
auðum höndum heldur keppst hver
um annan við að henda gaman að
innan- og utanhúsdeilum hins unga
stjórnmálaafls. Til að mynda
hefur gengið milli manna í
tölvupósti skýringarmynd,
þar sem nýkjörnum
þingmönnum er kennt
að forðast í lengstu lög
„reply all“ hnappinn
í skeytum sínum, og
þar vísað til ógæfu
Bjarna Harðarsonar og
Margrétar Tryggva-
dóttur í tölvusamskiptum. Einhverjir
hafa líka bent á að sú lenska að
senda persónuleg bréf á fjölda
manns hljóti að vera liður í viðleitni
Borgarahreyfingarinnar til að „efla
upplýsingastreymið“ og efna þannig
eitt af helstu kosningaloforðum
hreyfingarinnar.
Liggur í augum úti
Lítið hefur heyrst frá Lýðræðis-
hreyfingu Ástþórs Magnússon-
ar undanfarið. Í gær rauf Ást-
þór þó þögnina, í það
minnsta á bloggi
sínu, og birti þar
nýtt bréf til Páls
Magnússonar
útvarpsstjóra.
Eins og
kunnugt er sakaði Ástþór Ríkisútvarp-
ið um það í kringum kosningar að
hefta lýðræðislega umræðu, og halda
hreyfingu hans úti í kuldanum. Í gær
ítrekaði hann kröfur sínar um að Silfri
Egils verði vikið úr dagskrá Ríkisút-
varpsins. Ástæða ítrekunarinnar var
sú að Egill Helgason upplýsti á Bylgj-
unni í gærmorgun að hann hefði
kosið Borgarahreyfinguna í
kosningum í vor. Þar telur
Ástþór vera komna líklegustu
skýringuna á því „hvers vegna
Lýðræðishreyfingin var úti-
lokuð frá þættinum“
í aðdraganda
kosninga.
kjartan@frettabladid.is
thorunn@frettabladid.is