Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 14
14 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is LUDWIG MIES VAN DER ROHE (1886-1969) LÉST ÞENNAN DAG. „Guð er að finna í smáatriðunum.“ Ludwig Mies van der Rohe var þýskur arkitekt sem jafnan er talinn einn helsti brautryðj- andi nútímaarkitektúrs – með áherslu á einföld form, stál og gler. Janet Attwood er ekki mikið þekkt hér á landi en í Bandaríkjunum hefur bók hennar, The Passion Test, farið sig- urför. Bókin er eins konar sjálfspróf sem hjálpar fólki að finna sinn innri eldmóð, forgangsraða verkefnum og skilja á milli þess sem skiptir máli og þess sem hefur minna vægi. Þær Rúna Magnúsdóttir og Svanhvít Aðalsteins- dóttir komust í kynni við Janet fyrir nokkru á fyrirlestri í London. Ræddu þær meðal annars við hana um efna- hagsástandið, sem varð til þess að Janet vildi ólm koma til landsins og hitta þjóð sem upplifir ástand sem hún þarf að forgangsraða í. Þær standa ásamt Bjarneyju Lúðvíksdóttur fyrir því að Janet Attwood kemur til lands- ins hinn 5. september. Rúna rekur vefsíðuna connected- women.com sem hefur þann tilgang að efla samskipti og samstöðu kvenna, íslenskra og erlendra, og þar á vefn- um hefur hún fengið Janet og fleiri þekkta ameríska kvenkyns fyrirles- ara til að flytja erindi. Þeir hafa gefið vinnu sína og ágóðinn af hlustuninni – en hægt er að kaupa fyrirlestrana – á að renna í sjóð til styrktar atvinnu- sköpun íslenskra kvenna. „Janet Attwood er afar merkileg kona sem hefur upplifað margt. Bók henn- ar fór á metsölulista New York Times á fyrsta degi útgáfu og hefur selst vel en auk þess hefur Janet þjálfað um 500 manns sem „Eldmóðs“-þjálfara úti um allan heim og við Svanhvít höfum nú krækt okkur í þau réttindi,“ segir Rúna. Sjálf hefur hún verið í eigin at- vinnurekstri í tvo áratugi, átti og rak innflutningsverslun og hefur verið virk í Félagi kvenna í atvinnurekstri en hún situr meðal annars í stjórn félagsins. Hún lærði markþjálfun á Íslandi fyrir nokkrum árum, og starfar við það. „Ég seldi fyrirtæki mitt í lok árs 2006 og stóð þá frammi fyrir þeirri spurningu hvað ég vildi gera. Minn eld- móður í gegnum tíðina hefur verið í því að sjá konur ná lengra og kannski ekki síst konur sem langar að fara út í eigin atvinnurekstur en eru eitthvað ragar. Ég setti vefsíðu mína upp í kjölfarið og kom mér í samband við fullt af konum um allan heim með sama áhugamál,“ segir Rúna en vefurinn er hugsaður sem samfélagsvefur fyrir konur í at- vinnulífinu. „Í gegnum vefinn heyrði ég svo um Janet og fór á fyrirlestur hjá henni í London. Ég vissi strax að þetta var kona sem ég yrði að heyra í, því í lýsingunni um hana stóð að hún vildi efla aðrar konur. Ég hitti hana og þegar hún heyrði að ég væri frá Íslandi vildi hún óð og uppvæg hjálpa til.“ Úr varð áðurnefnd veffundasería sem Rúna fékk hjálp Janet Attwood við að setja upp og fá fyrirlesara til að taka þátt í en meðal fyrirlesara eru nokkrar stjörnur úr myndinni The Secret. „Finndu eldmóðinn er yfirskrift heilsdagsvinnustofu hinn 5. september sem við bjóðum almenningi að taka þátt í með Janet og þar ætlar hún meðal annars að reyna að hjálpa fólki að sjá hvernig hægt er að ná árangri í lífinu,“ segir Rúna. Miðar verða seldir á midi.is. Í boði verða 100 miðar fyrir fólk í atvinnuleit í gegnum Vinnu- málastofnun en einnig styrkja marg- ir starfsmenntunarsjóðir félagsmenn sína til þátttöku. „Janet verður hér á landinu til 12. september og verður hún einnig með fyrirlesturinn „Vertu stjórnandi í eigin lífi“ hinn 10. september. Janet hefur líka óskað eftir því að fá að gefa börn- um og unglingum tækifæri á að taka prófið sér að kostnaðarlausu og við erum að vinna í því að finna góðan vettvang fyrir þá uppákomu.“ juliam@frettabladid.is JANET ATTWOOD: MEÐ FYRIRLESTUR Á ÍSLANDI Bandarískur metsöluhöfund- ur vill efla íslenskar konur SKIPULEGGJA KOMU ATTWOOD Rúna Magnúsdóttir, Svanhvít Aðalsteinsdóttir og Bjarney Lúð- víksdóttir sjá um að skipuleggja komu Janet Attwood í byrjun september. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Haustdagskrá Gerðubergs er fjölbreytileg. Hún hefst með þátttöku í Jazzhátíð Reykjavíkur þar sem ungir og upprennandi tónlistar- menn taka þátt í djasssmiðj- um með þekktum erlendum og innlendum kennurum. Böndin Reginfirra, Trans kvintett og Kvartett Leifs Gunnarssonar taka þátt í smiðjunum og sýna af- raksturinn meðal annars á hádegistónleikum í Gerðu- bergi 17. til 20. ágúst. Fyrstu sýningar haustsins verða opnaðar fimmtudag- inn 20. ágúst. Halldór Bald- ursson skopmyndateiknari opnar sýninguna Í fréttum var þetta helst … þar sem hann dregur upp mynd af aðdraganda kreppunnar. Í september heldur Halldór námskeið fyrir unglinga í skopmyndateiknun. Sama dag opnar Ólöf Erla Einarsdóttir, graf- ískur hönnuður, sýning- una Sögur án orða þar sem sýndar eru ljósmyndir sem eru samsettar úr mörgum lögum mynda með ákveð- inni tækni. Hið vinsæla Handverks- kaffi heldur áfram, fyrsta miðvikudagskvöld í hverj- um mánuði. Tónleikaröðin Klassík í hádeginu heldur áfram undir stjórn Nínu Margrét- ar Grímsdóttur píanóleik- ara. Í október kemur Gunn- ar Kvaran sellóleikari fram undir yfirskriftinni Úr gull- kistu sellósins. Í október kemur Kristín Marja Baldursdóttir rithöf- undur fram á Ritþingi þar sem Halldór Guðmundsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Ármann Jakobsson ræða við hana um líf hennar og listferil. Þetta er þó aðeins brot af dagskrá haustsins. Áhuga- samir geta kynnt sér hana nánar á www.gerduberg.is. Margt á döfinni í Gerðubergi STÚLKA OG SVANUR Ólöf Erla Einarsdóttir opnar sýningu í Gerðubergi á fimmtudaginn. MERKISATBURÐIR 1924 Flugbátur kemur í fyrsta skipti til Íslands. Ítal- inn Antoni Ocatelli flaug honum og fór héðan næst til Grænlands. 1946 Valgerður Þorsteinsdótt- ir, 21 árs gömul, verður fyrst íslenskra kvenna til að ljúka einkaflugmanns- prófi. 1960 Gabon fær sjálfstæði frá Frakklandi. 1980 Heklugos hefst og stend- ur í nokkra daga. Fram- hald af gosinu verður 9. apríl 1981. 1992 Kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen viðurkenn- ir að eiga í ástarsambandi við Soon-Yi Previn, sem hann ættleiddi ásamt leikkonunni Miu Farrow. Á þessum degi árið 1941 var sökkti þýskur kafbátur leiguskipi Eimskipafélags Íslands, Sessu, um 300 kílómetrum suðvest- ur af Íslandi. Með því létust 24 skipverjar en þrír komust lífs af. Meðal skipverja voru tveir Ís- lendingar, Þorvaldur Aðils og Steinþór Wendel Jónsson, en aðrir um borð voru flestir Norð- menn, Danir og Svíar, auk nokk- urra Portúgala, Breta og eins Bandaríkjamanns. Þrír skipverjar náðu að hafast við á fleka í nítj- án daga áður en þeim var bjarg- að og „voru orðnir mjög að- þrengdir,“ eins og segir í Morg- unblaðinu hinn 12. september, en skipsins hafði verið saknað í nokkurn tíma og ekki var vitað um afdrif þess. Þau voru ekki kunngjörð Íslendingum fyrr en um mánuði síðar. Sessa var á leið til landsins með ýmsar vörur fyrir Íslendinga en skipið var danskt skip í eigu Eimskipafélagsins sem Bandaríkjastjórn hafði lagt lög- hald á en það sigldi undir fána Panama. Fregnin vakti mikla at- hygli í Bandaríkjunum. Öðru skipi í eigu Eimskips hf. var sökkt á svipuðum tíma en eftir þessa atburði voru ný ráð tekin upp til að reyna að koma í veg fyrir atburði af þessu tagi; voru skipin til að mynda látin sigla í skipalestum og öll áform um sigl- ingar voru mun leynilegri. ÞETTA GERÐIST: 17. ÁGÚST 1941 Leiguskipi Eimskips sökkt Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þorsteinn R. Helgason sem lést á Landspítalanum laugardaginn 8. ágúst, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á ABC barnahjálp. Bestu þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða. Helgi Schweitz Þorsteinsson María Björk Wendel Jakob Schweitz Þorsteinsson Erla Ruth Harðardóttir Þorsteinn Schweitz Þorsteinsson Tove Larsdotter og barnabörn. Ástkær sonur minn, faðir, stjúpfaðir og afi, Hörður Barðdal, Brúnastöðum 17, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni þriðjudagsins 4. ágúst, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 19. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast Harðar er bent á Íþróttafélag fatl- aðra í Reykjavík. Sesselja E. Guðnadóttir Barðdal Jóhanna I. Barðdal Sesselja E. Barðdal Bergþóra Fanney Barðdal Þórður V. Oddsson Marta E. Guðmundsdóttir og barnabörn. Elskuleg föður- og afasystir okkar, Guðmunda H. Ólafsdóttir Whittaker Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Ásbúðartröð 5, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag- inn 18. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningaröldur, Hrafnistu, Hafnarfirði. Anna Björg Halldórsdóttir Halla Sólveig Halldórsdóttir Magnús Ólafur Halldórsson Halldór Steinn Halldórsson Karl Sigurjónsson Freyja Sigurjónsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.