Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 31
MÁNUDAGUR 17. ágúst 2009 19
Það er komið hádegi og þú sest niður í dagsins önn,
þú átt ávexti í ísskápnum og fernu af Húsavíkurjógúrt,
og þú veist að dagurinn verður góður.
09
-0
00
8
·H
en
na
r h
át
ig
n
Sundkappinn Michael Phelps lenti
í hörðum árekstri á fimmtudag-
inn var. Phelps ók bíl sínum aftan
á kyrrstæðan bíl og samkvæmt
sjónarvottum keyrði sundkapp-
inn fullgreitt og ók yfir á rauðu
ljósi. Phelps slapp þó ómeiddur
frá árekstrinum en bílstjóri hins
bílsins hlaut minniháttar áverka.
Að sögn sjónvarvotta virtist
sundkappinn vera í annarlegu
ástandi og ráfaði um berfættur á
meðan lögreglan yfirheyrði fólk.
Phelps virðist eiga erfitt með
að fóta sig í lífinu eftir að hann
sló í gegn því ekki er langt
síðan eiturlyfjaneysla hans var
opinberuð.
Sundkappi
keyrir á
Sjónvarpsstjarnan Khloé Kar-
dashian var handtekin á dögun-
um fyrir að hafa eiturlyf í fórum
sínum. Stúlkan, sem er þekkt úr
raunveruleikaþáttunum Keeping
up with the Kardashians, hefur
þó haldið því statt og stöðugt
fram að efnið sé ekki í hennar
eigu. „Þetta tilheyrir mér ekki.
Ein af starfsstúlkunum í versl-
uninni minni fann þetta á gólf-
inu í einum mátunarklefanum.
Hún kallaði á mig og ég vissi
ekki hvað ég átti að gera þar sem
búðin var full af fólki, ég ákvað
því að setja þetta í veskið mitt
og losa mig við þetta um leið og
ég væri búin að vinna. En svo að
vinnudeginum loknum þá var ég
búin að gleyma þessu.“
Saklaus sjón-
varpsstjarna
Hinn sextán ára gamli tónlistarmaður Kári
Guðmundsson hefur vakið nokkra athygli að
undanförnu fyrir tónlist sína. Kári, sem geng-
ur undir tónlistarnafninu Hypno, leikur svo-
kallaða dubstep tónlist sem er upprunnin í
Bretlandi. „Ég byrjaði að fikta við að semja
hiphop tónlist árið 2006 og í kjölfarið á því
dróst ég óvart inn í íslensku hiphop senuna
og fór að vinna með ýmsum aðilum tengdum
henni. Síðustu misseri hef ég samt fært mig
meira yfir í dubstep tónlistina sem er nokkuð
ný tónlistarstefna frá Bretlandi. Þetta er raf-
tónlist sem á rætur að rekja til drum‘n bass
tónlistarstefnunnar en tengist líka reggí- og
hiphoptónlist,“ segir Kári.
Aðspurður segist hann vera einn af
fáum sem séu að grúska í dupstep-tónlistar-
stefnunni um þessar mundir. „Ég held að við
séum tveir sem erum að gera svona tónlist
hérna heima. En ég held að þessi stefna eigi
eftir að springa út á næstu misserum og öðl-
ast meiri vinsældir. Ástæðan fyrir því að ég
féll fyrir þessari tónlistarstefnu var sú að
mér fannst þetta vera ólíkt öllu öðru og tón-
listin er mjög tilraunakennd þannig það er
gaman að prófa sig áfram með þetta.“
Kári segist vona að hann geti lagt tónlistina
fyrir sig í framtíðinni og vinnur nú að því
að koma tónlist sinni á framfæri við erlenda
aðila. „Ég er líka búinn að sækja um að fá að
spila á Airwaves, sem væri frábært ef það
gengi upp. Hingað til hef ég fengið að spila
bæði á Coxbutter tónlistarkvöldunum og á
Weirdcore kvöldunum, sem var mjög gaman.
Það væri frábært að geta unnið við tónlist
í framtíðinni, í dag fer allur minn frítími í
þetta,“ segir Kári að lokum.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér tónlist
Kára er bent á slóðina www.soundcloud.com/
hypno. - sm
Ungur plötusnúður á uppleið
HYPNO Kári Guðmundsson hefur verið að semja tónlist
frá þrettán ára aldri. Hann kemur fram undir nafninu
Hypno. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég hef verið með svona sýningar
í versluninni næstum mánaðar-
lega og ákvað í kjölfarið að halda
sérstaka keppni fyrir unga graff-
ítílistamenn þar sem þeir skila
inn skissum til mín og þriggja
manna dómnefnd mun velja úr tíu
listamenn til að keppa í Striga-
stríði,“ segir Leon Kemp, versl-
unareigandi og skipuleggjandi
Strigastríðs.
„Þátttakendur hafa í rauninni
alveg frjálsar hendur þegar
kemur að efnisvali en ég vil
ekki fá verk þar sem myndefnið
er neikvætt þar sem þetta mun
hanga hér inni í versluninni hjá
mér. Strigarnir verða til sýnis frá
22. október og fram að jólum og
munu viðskiptavinir Mohawks fá
að greiða atkvæði um hvaða verk
þeim þykir flottast.“ Til mikils
er að vinna því sigurvegarinn
hlýtur 25.000 króna fataúttekt að
launum.
„Ég hlakka mikið til að sjá
hvað á eftir að koma úr þessu. Nú
þegar hafa nokkrir mætt hingað
niður í búð til að fá upplýsingar
um keppnina þannig ég á von á að
þátttaka verði góð,“ segir Leon.
- sm
Strigastríð í
Kringlunni
SKIPULEGGUR STRIGASTRÍÐ Leon Kemp
verslunareigandi stendur fyrir sam-
keppni fyrir graffítílistamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON