Fréttablaðið - 17.08.2009, Side 40

Fréttablaðið - 17.08.2009, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er mánudagurinn 17. ágúst 2009, 229. dagur ársins. 5.25 13.32 21.36 5.00 13.17 21.31 Alicante Kaupmannahöfn London Berlín Reykjavík Friedrichshafen Varsjá með ánægju Haust 2009 Sala á flugsætum fyrir næsta vetur er í fullum gangi. Tryggðu þér ódýrara flug til London, Kaupmannahafnar, Berlínar, Varsjár, Friedrichshafen eða Alicante og lyftu þér upp í vetur! Kynntu þér kostina og bókaðu flug á www.icelandexpress.is London 9 x í viku Køben 7 x í viku Þú vilt spara í vetur. Við bjóðum sex leiðir! Finndu ódýrasta flugfarið á www.icelandexpress.is 12.900 kr. Verð frá: Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að ræða valdar dagsetningar og takmarkað sætaframboð. 25 - 50% Börn: Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af verði fyrir skatta og aðrar greiðslur á völdum áfangastöðum. www.tskoli.is Innritun í kvöld- og f jarnám stendur til 26. ágúst Það er gott og gaman að horfa á sjónvarp. Sjónvarpið er orðið svo stór hluti af tilveru okkar að satt best að segja er erfitt að ímynda sér tilveruna án þess. Það er eins og gluggi á hverju heimili út í umheiminn. Það veitir okkur ómælda skemmtun, upplýsing- ar, fróðleik og afþreyingu. Vegna sjónvarpsins getum við verið vitni að heimssögulegum atburð- um, hvar sem er í heiminum, um leið og þeir eiga sér stað. En það sama gildir um sjónvarpið og flest annað sem er gott og gaman. Það er hægt að týna sjálfum sér í því. Fólk getur ánetjast sjónvarpsglápi og misst af lífi sínu við að horfa á líf annarra. ÞESS vegna á sjónvarpsstöðin Skjár einn sérstakar þakkir skil- ið fyrir framlag sitt til baráttunn- ar gegn sjónvarpsfíkn. Það er í því fólgið að bjóða upp á sjónvarpsefni sem engin manneskja með meðal- greind eða meira getur mögulega límst við. Mikill meirihluti þátt- anna sem þar eru sýndir er í raun einn og sami heimskulegi þáttur- inn í mismunandi umgjörð. Allt- af endar hann á því að einhver er sendur heim – af því að hann grenntist ekki nóg, var ekki nógu duglegur að bjarga sér í óbyggð- um eða var ekki nógu efnilegur söngvari, dansari, kokkur, innan- hússhönnuður, tískudrós, vonbiðill, fyrirsæta og þar fram eftir götun- um. Þetta er hið svokallaða raun- veruleikasjónvarp. EN í raun er ekkert svo slæmt að ekki sé hægt að læra af því. Nú sitjum við til dæmis í súpunni eftir að hafa, með lýðræðislegum hætti, valið yfir okkur glæpsam- lega vanhæfa stjórnmálamenn. Ekkert bendir til þess að þeir ætli að læra af reynslunni. Þeim, sem mesta ábyrgð bera á ógæfu þjóð- arinnar, virðist jafnvel vera svo gersamlega um megn að geta lært að skammast sín, að þeir þykj- ast þess siðferðilega umkomnir að hafa skoðun á því með hvaða hætti eigi að þrífa upp skítinn eftir afglöp þeirra. Og hreinsunardeild- in er líka föst í skotgröfum flokks- línunnar, hugarfarsins sem varð okkur að falli til að byrja með. ÞAR sem fulltrúalýðræðið hefur reynst okkur svona illa legg ég því til að við tökum upp svokallað „raunveruleikalýðræði“. Það felst í því að í stað þess að kjósa 63 ein- staklinga til þingvistar á fjögurra ára fresti fáum við einu sinni í viku að kjósa einhvern burt af eyj- unni. Gæti það mögulega reynst okkur verr? Raunveruleika- lýðræði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.