Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1937, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.02.1937, Blaðsíða 8
SAMVINNAN 2. HEFTI Pöntunarfélag verkamanna í Reykjavík Eftir Guálaug Rósinkranz Samvinnufélagsskapurinn er, sem kunnugt er, rúm- lega 50 ára hér á landi, og hafa samvinnufélög verið starfandi í nær því öllum héruðum landsins nú í alhnörg ár. Höfuðstaður landsins hefir til þessa verið eftirbátur annara héraða um samvinnumál. Nokkur kaupfélög hafa að vísu verið stofnuð hér, en orðið að hætta störfum eflir stultan tíma sökum mistaka og áhugaleysis. Nú fyrst virðist breyting vera að verða á. Reykvíkingar eru nú farnir að gefa gaum að, hvert Matvörubúá Pöntunarfélagsins á Skólavöráustíg 12 kaupgildi krónunnar er, og að það er ekki sama, hvort þeir fá mikið eða lítið fyrir hana. í Reykjavík eru nú 2 kaupfélög starfandi, annað Kaupfélag Reykjavíkur, sem liefir starfað í 5 ár og eflzt með ári hverju, og hitt, Pöntunarfélag verka- mann, sem nú er rúmlega tveggja ára. Skal hér gerð nokkur grein fyrir starfsemi pöntunarfélagsins. Upphaf Sökum þess háa vöruverðs, sem jafnan hefir verið á nauðsynjavörum hér í Reykjavík, fóru verkamenn að stofna smá pöntunarfélög og kaupa vörur í lieil- um sekkjum og kössum, og skiptu svo vörunni á milli sín. Þannig fengu þeir margar nauðsynjar fyrir lægra verð en með því að kaupa lijá kaupmönnunum. Pöntunarfélog þessi urðu fjöldamörg, en öll lítil. Jens Figved, núverandi framkvæmdastjóri Pöntunarfélags verkamanna, vann svo að því að sameina þessi félög í eitt, og var Pöntunarfélag verkamanna stofnað upp úr öllum þessum smáfélögum og tók til starfa í nóyember 1934. Jens Figved varð þá strax fram- kvæmdarstjóri félagsins og hefir verið það siðan. Fyrst liafði félagið aðsetur í Vallarstræti 4, en íluttist í febrúar 1935 í lilla búð í nýju húsi á Skóla- vörðustíg 12 og byrjaði þá jafnframt á útsölu. Síðan Vefnaáarvörubúá félagsins i Alþýáuhúsi Reykjavíkur 24

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.