Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Side 14

Samvinnan - 01.05.1948, Side 14
Smáþjóðirnðr hafa mikið hlutverk innan Sameinuðu þjóðanna Bókarkafli eftir prófessor ÓLAF JÓHANNESSON t FORMÁLSORÐUM, sem prófes- X sor Ólafur ritar fyrir bók sinni um Sameinuðu þjóðirnar, kemst hann m. a. svo að orði: „Eins og kunnugt er, gekk ísland haustið 1946 í bandalag Sameinuðu þjóðanna. Þar var um merkan og ein- stæðan atburð að ræða fyrir íslend- inga, því að það var í fyrsta skipti, sem íslenzka ríkið gerðist þátttakandi í svo víðtæku alþjóðasamstarfi. Sennilega hafa menn þó almennt ekki gert sér grein fyrir því, hversu stórt og þýðing- armikið spor var stigið, er landið gerð- ist aðili í þessum allsherjarsamtökum. En með inngöngu sinni í bandalagið hefur ísland bæði öðlazt réttindi og tekið á sig skyldur. Þessi réttindi og þessar skyldur verða landsmenn að þekkja. Þeir verða að gera sér grein fyr- ir afleiðingum þess, að þeir hafa gerzt þátttakendur að þessum alþjóðsamtök- um. Þeir verða að átta sig á því, að þeir standa ekki lengur álengdar sem áhorfendur. Þeir hafa gerzt aðiljar að alþjóðasamstarfi. Viðfangsefni þessara allsherjarsamtaka eru því í rauninni einnig orðin viðfangsefni íslendinga. Þau viðfangsefni verða þeir að þekkja. Það má einmitt telja frumskyldu hverrar bandalagsþjóðar að afla sér þekkingar á markmiði, skipulagi og starfsháttum bandalagsins og stofnana þess. Engin þjóð getur af heilum hug og að gagni tekið virkan þátt í starf- semi Sameinuðu þjóðanna, nema hún þekki skipulag samtakanna og skilji hlutverk þeirra. Margar vonir eru tengdar við starf- semi Sameinuðu þjóðanna. Mannkyn- ið þráir varanlegan frið og andlegt og efnahagslegt öryggi. Það á sjálfsagt langt í land, að því marki verði náð. En stofnun Sameinuðu þjóðanna er á- reiðanlega stórt spor í rétta átt. Starf- semi þeirra miðar hiklaust að hinu lengi þráða, en þó fjarlæga marki. Þjóðirnar hafa lært af reynslunni og fyrri mistökum. Þess vegna hafa þær aldrei áður átt þvílíka stofnun sem Nýlega er komin út bók á vcgum Norðra, sem er þess verð að henni sé gaumur gefinn. Þetta er þó ekki bók til skemmtilesturs, held- ur er hún íhugunarefni fyrir alla þá, sem vilja fylgjast með al- þjóðamálum og láta sig nokkru skipta sambúð þjóðanna og fram- tíð heimsfriðarins. Þetta er bók prófessors Ólafs Jóhannessonar um Sameinuðu þjóðirnar. í bók- inni gerir höfundurinn grein fyr- ir stofnun Sameinuðu þjóðanna, tilgangi þeirra og starfsaðferðum. Er bókin einkar glögg og að- gengileg frásögn um þessi efni. SAMVINNAN flytur hér á eftir nokkur atriði úr tveimur köflum bókarinnar. Sameinuðu þjóðirnar til varðveizlu og eflingar alþjóðafriði. Aldrei áður hef- ur verið stofnað til jafn víðtækrar sam- vinnu þjóða á milli. Samt sem áður er ekki sem bjart framundan sem skyldi. Margar ískyggilegar blikur eru á lofti. Útlitið er meira að segja ekki eins gott nú, eins og það var fyrir tveim árum síðan, er Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar. Ýmsir efast því um, að Sam- einuðu þjóðirnar verði þess megnugar að tryggja friðsamlega sambúð þjóða, að þeim takist að vinna friðinn, eins og það hefur verið orðað. Hér skal engu um spáð. En á það skal aðeins xninnt, að Sameinuðu þjóðirnar eru, þrátt fyr- ir allt, það haldreipi, sem menn verða að halda dauðahaldi í. Bregðist það, er mannkyninu og menningunni voði vís. Allar friðsamlegar og frelsisunn- andi þjóðir verða því að standa sem fastast um Sameinuðu þjóðirnar og efla þá stofnun eftir því sem frekast er unnt. En eitt nauðsynlegasta skilyrði þess, að Sameinuðu þjóðunum takist að leysa verkefni sín af hendi, er stuðn- ingur, samúð og skilningur borgar- anna í hinum einstöku bandalags-ríkj- um. En skilyrði slíkrar samúðar og skilnings er aftur þekking á byggingu bandalagsins, markmiði þess og starfs- aðferðum. Einstaklingarnir verða því að kynna sér þessi atriði. Þeir þurfa að eiga völ á fræðslu um þau. Gengi Sameinuðu þjóðanna bygg- ist auðvitað fyrst og fremst á stórveld- unum. En smáþjóðirnar geta þar einn- ig nokkru áorkað, einkanlega ef þær standa saman. Þær vei'ða því að leggja fram sinn skerf. Þess vegna er nauð- synlegt, að einnig þeirra þegnar fvlg- ist vel með störfum bandalagsins og kynni sér skipulag og starfshætti þess sem bezt. Þetta tekur til hinnar smæstu bandalagsþjóðar og þegna hennar. Engum dettur auðvitað í hug, að hlut- ur íslands í þessu alþjóðasamstarfi verði stór. En þrátt t’yrir það má eng- inn ætla, að hluttaka þess sé þýðingar- laus. Atkvæði þess getur ráðið úrslitum í þýðingarmiklum málum. Það getur lagt sitt lóð á vogarskálina til góðs eða ills. Þessar staðreyndir verða íslending- ar að gera sér ljósar. Þeir þurfa að átta sig. á því til fulls, að þeir eru orðnir \irkir þátttakendur í samstarfi þjóð- anna til varðveizlu friðar og öryggis. Af þessu leiðir, að þeir verða að fylgj- ast með í alþjóðamálum og taka af- stöðu í þeim. Þjóðin öll, sérhver ein- staklingur hennar, verður því hér eft- ir að fylgjast með starfsemi Sameinuðu jxjóðanna, kynna sér hvaða málefni eru tekin til meðferðar af bandalag- inu, hvernig þeim málum er íáðið til 14

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.