Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Side 19

Samvinnan - 01.05.1948, Side 19
Frá samvinnustarfinu erlendis Danmörk. Danski samvinnubankinn — Andelsbanken, aðalbanki dönsku samvinnuhrey.fingarinnar, jók allmjög viðskipti sín á árinu 1947, að því er segir í nýlegri skýrslu bankans. Birtir bankastjórnin eftirfarandi skýrslu um viðskipti bankans á síðustu árum, talið í millj. króna: Umsetning Hluthafafé og 1944: 29.298.87 21,84 1945: 31.073.45 24.27 1946: 36.290.09 28.31 1947: 40.154.55 32.71 Hagnaður bankans varð kr. 2.569.600 á árinu 1947, og er það 400.000 kr. meira en árið 1946. Bankinn greiðir kr. 1.106.600 af þessari upphæð til hluthafa sinna, sem eru kaupfélögin, og þar að auki leggur hann nú meira til sjóða sinna en áður. Akveðið liefur verið, að bankinn leggi 200.000 kr. til eftirlaunasjóðs starfsmanna sinna. (lampaverksmiðja, sem KF hefur lengi átt og rekið) hafi með sér samtök um framleiðslu einstakra hluta, sem not- aðir eru við framleiðslu glóðlampa, með það fyrir aug- um, að lækka verð þeirra. Samvinna verksmiðjanna nær ekki til verðlags á glóðlömpum yfirleitt, og munu þær halda áfram samkeppni á innanlandsmarkaðnum. KF tel- ur, að með þessu hafi neytendum verið tryggt hagstæðara verð á þessari vöru. Sænska samvinnublaðið „Vi“ hefur nýlega rætt þessi mál, og segir þar, að KF hafi einkum liaft tvennt í huga, er það festi kaup á Osram-verksmiðj- unum. í fyrsta lagi að forða því, að erlent fjármagn næði tangarhaldi á fyrirtækinu, en ameríska General Electric félagið hafði augastað á því, og í öðru lagi, að koma betra skipulagi á glóðlampaframleiðsluna í Svíþjóð. Blaðið tel- ur, að báðum þessum takmörkum hafi verið náð, þvi að í hinum nýja sölusamningi við Osram eru einnig ákvæði urn, að verksmiðjan verði ekki seld erlendum mönnum eða félögum. ❖ Bretland. Royal Arsenal kauplelagið í Woolwich í London er næst stærsta kaupfélag veraldar. Félagsmenn þess voru 336.750 í árslok 1947. Félagið jók verzlun sína á s. 1. ári um £ 1.103.500, eða urn 9,2%, og varð vörusala þess alls £ 13.062.227. A þessu ári bætti félagið mjög við útibú sín í ýmsum verzlunargreinum. Á árinu greiddi félagið £ 957.600 í arð til félagsmanna sinna, og að auki £ 86.300 sem uppbót á laun stsarfsmanna sinna. Svíþjóð. Á s. 1. ári keypti sænska samvinnusambandið, KF, glóð- lampaverksmiðjuna Osram af ríkisstjórninni fyrir 5.7 millj. sænskra króna. Nú hefur KF selt verksmiðjuna aftur, og er kaupandinn fyrirtæki, sem stofnað er af sænskum frarn- leiðendum, kaupsýslumönnum og dreifingarfyrirtækjum, svo og verkamönnum, sem vinna í Osram-verksmiðjunni. í sölusamningnum er ákvæði um, að Osram og Luma Skattamál samvinnufélaganna og kaupsýslumanna eru mjög rædd í Svíþjóð, og verða kaupfélögin oft fyrir ómak- legum árásum í sambandi við skattgreiðslur og fullyrð- ingar kaupsýslumanna um óeðlileg fríðindi til handa félög- unum. Forstjóri sænska samvinnusambandsins, Albin Jo- hansson, ritaði nýlega um þessi mál í hið víðlesna blað, „Göteborgs Handels- och Sjöfartstidning“, og bendir liann þar á, að kaupfélögin í Svíþjóð hafi engin fríðindi í þess- um efnum, og allar sögur um slíkt séu úr lausu lofti gripn- ar. Auk lieldur sé kaupfélögunum íþyngt meira með skött- um, en kaupmönnum. í grein þessari birti Johansson eftir- farandi töflu, sem á að sýna skattgreiðslur til ríkisins frá kaupfélögunum annars vegar og kaupmanni, sem rekur verzlun á sínu nafni, hins vegar: Tekjur Skattur kaupmanns (fjölskyldumaður) Skattur kaupfélagí Kr. Kr. Kr. 5.000 224.00 1.600 10.000 991.00 3.200 15.000 2063.00 4.800 19

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.