Samvinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 22
Limiiiiiiiiniinii,KONURNAR OG SAMVINNAN ......................................
MARGVÍSLEGAR aðferðir eru
notaðar víða um heim til þess
að auglýsa varning þann, sem á boð-
stólum er á hverjum tíma, og kynna
nýjar vörur. Blöðin eru tekin í þjón-
ustu auglýsinganna, útvarpið, bækl-
ingar og ýmiss konar smá hefti, og
allt syngur sama tón: Góður varn-
ingur — gott verð. En það getur ver-
ið býisna erfitt oft á tíðum að átta sig
á þeim söng, því að óneitanlega verða
sumar raddirnar nokkuð hjáróma,
þegar út í alvöru lífsins er komið og
hvorki verður þá um að ræða góðan
varning né gott verð. í þessu efni er
reynslan oft bezti dómarinn, enda
mun mörgum svo farið, að auglýs-
inga-farganið verkar illa á þá og efa-
semdir gera vart við sig, þegar hæst
er látið.
En máttur auglýsinganna er oft
ótrúlega mikill, og sjást þess fjóldi
dæma, hvert sem litið er.
Sums staðar erlendis er sú aðferð
viðhöfð, að kynna vöruna fyrir við-
skiptavinunum með því að sýna
þeim hana sjálfa, lofa þeim að þreifa
á henni og smakka hana, ef um mat
er að ræða.
Þetta er það, sem kalla mætti vöru-
upplýsingu, og eru ýmsar aðferðir
viðhafðar, sem allar miða þó í eina
átt, sem sé að veita rétta og hag-
kvæma upplýsingu um vöru þá, sem
tekin er til meðferðar.
Slík vöru-upplýsing fer fram í
verzluninni sjálfri, og oftast er kvöld-
ið notað til þess (eftir lokun). Á slíku
kvöldi er einn vöruflokkur tekinn
fyrir og hann sýndur rækilega.
Vöru-upplýsingu má viðhafa á
ótal mörgum og margvíslegum varn-
ingi, en þó mun hún nauðsynleg-
ust og koma að mestum notum við
hinn margvíslega pakka-varning,
bæði þurrkaðan og niðursoðinn.
Utan á umbúðum slíks varnings eru
oft æði fáar upplýsingar, og þegar
um erlenda vöru er að ræða, er
ekki með nokkurri sanngirni hægt
að ætlast til, að á allra færi sé að
komast fram úr þeim rúnum, þar
sem e. t. v. notað er bæði annað mál
og vog, en við þekkjum og erum
vön.
Hér er því úr þessu greitt og jafn-
framt gildi vörunnar og verði.
Segjum, að allar tegundir af súp-
um (niðursoðnum og þurrkuðum)
í nýlenduvöru-verzlun séu teknar
fyrir.
Þá eru gefnar upplýsingar um:
Innihald pakkans, hvernig það er
matbúið, handa hve mörgum það
dugar, verð hvers disks (miðað við
aðra tegund súpu o. þ. 1.), og ef vel
lætur og aðstæður leyfa, eru ein eða
fleiri tegundir matbúnar á staðnum
og smakkaðar.
Með þessu móti fást sannar og hag-
kvæmar upplýsingar um vöruna, sem
öllum er í hag, bæði þeim sem selja
og kaupa.
Þar, sem þetta hefur verið reynt að
nokkru verulegu leyti, hefur niður-
staðan orðið sú, að um leið og við-
skiptavinunum hefur verið gert létt-
ar fyrir, og skilningur og samúð hef-
ur náðst milli þeirra og afgreiðslu-
fólksins, hefur sala á umræddum
varningi orðið meiri og viss tengsl
milli viðskiptavinarins og verzlunar-
innar hafa skapazt.
Það lætur að líkum, hve mikilvægt
er fyrir hvern og einn að þekkja hinn
ýmsa varning allýtarlega, kunna að
fara með hann réttilega, geyma hann
o. s. frv. Og þar sem um er að ræða
erlendan varning oft á tíðum og
ótal margar mismunandi tegundir
innan sömu greinar, er auðsætt, hve
mikilvæg vöru-upplýsingin er, og að
sem flestir eignist nokkra vöruþekk-
ingu. Um leið og vöruþekkingin
verður almenn, hafa neytendur feng-
ið allkröftugt vopn í hendur, og
vörusvik hvers konar munu eiga örð-
ugt uppdráttar. Þá er hægt að eiga
von á góðum vörum, eða a. m. k. að
að því takmarki verði stefnt og mark-
visst unnið, en þá er stór sigur unn-
inn.
FRÆÐSLUDEILD KEA gerði til-
raun með vöru-upplýsingu s. 1.
vetur og bauð nokkrum húsmæðrum
í nýlenduvörudeildina til að kynn-
ast ýmsurn varningi. Teknar voru
fyrir allar súputegundir, sem fengust
í verzluninni, og allar teg. bauna.
Alls komu á þessi vöru-upplýs-
Á myndinni sjást konur á vöru-upplýsingar kvöldi, i nýlenduvörudeild KEA, þar sem allar tegundir
bauna haja veriÖ teknar jram, eru sýndar og smakkaðar og uppskriftir ýmissa baunarétta gefnar.
22