Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Síða 23

Samvinnan - 01.05.1948, Síða 23
III 1111111111111111111111111111111111111111111111 llll•llllllllllllllllll■lllllllllllllllllll•lllllll■ll■lll■l•l•■l■•ll■■lll■llllll■,l■*IUtlll'IM,*,la*M "j ingarkvöld deildarinnar um 100 kon- ur og gerðu góðan róm að. Fjöldamargar vörutegundir væri nauðsynlegt að taka þannig til með- ferðar og gera nokkur skil, t. d. ýms- ar tegundir mativöru, hreinlætisvör- ur h'vers konar, svo að eitthvað sé nefnt. ★ Leikgrindur barna EGAR blessuð börnin fara að geta hreyft sig nokkuð að ráði, kemur venjulega upp mikið vanda- mál í heimilinu: Hvar á að hafa barnið? Ósanngjarnt og óheilbrigt er að hafa það í rúnrinu allan sólar- hringinn, á gólfinu getur það ekki verið, það segir sig sjálft, uppi í sóf- um eða bekkjum er því hætta búin, og stóllinn kemur ekki til mála. Þá eru leikgrindur teknar í notk- un, og þykja bæði hentugar og góð- ar. Þær eru smíðaðar úr léttum viði og þannig útbúnar, að hægt er að leggja þær saman, þegar þær eru ekki í notkun. Sumar liafa botn og eru á hjólum, en algengast er, að grindin, eða öllu heldur neðsti listinn, nemi við góll, og er þá venjulega breitt teppi eða eitthvað annað undir, með- an barnið er í grindinni. Með því móti að hafa barnið í leik- grind, er liægt að líta af því, a. m. k. annað slagið, og þá getur það fengið að leika sér óhindrað með gull sín, æft sig í að standa uppvið og ganga meðfram, ef svo langt er komið á þroskabrautinni. En varast ber að hafa barnið of lengi í senn í grind- inni, því að í sjálfu sér er það með því hindrað nokkuð og nýtur sín e. t. v. ekki fyllilega, því að yfirleitt er börnunum eiginlegt að hreyfa sig mikið og vera á iferðinni strax og þau liafa á því nokkur tök. Það er því afar auðvelt að misnota leikgrindina, jafnágætur hlutur og hún annars er talin. En það blandast engum hugur um það, að með réttri, þ. e. mátulega mikilli, notkun leikgrinda, er hægt að létta móðurinni gæzlustarfið og koina í veg fyrir ótal mörg vandræði, sem kunna að hljótast af því, ef barn- ið er látið fara um allt, eða í hinn stað heft í rúminu eða kjöltu móður sinnar eða handlegg. Margur handlaginn heimilisfaðir mun auðveldlega geta smíðað barni sínu leikgrind, en gæta ber þess vel, að ganga þannig frá viðnum, að litlu höndunum sé ekki hætta búin af flís- um eða þess háttar. Annars er hér verkefni að vinna fyrir smiði okkar, svo að fáanlegar yrðu góðar grindur, sem allir, er ósk- uðu, gætu keypt, en sennilega verður notkun þeirra ekki almenn hér, fyrr en einhver aðili hefur tekið málið að sér og gert því þau skil, er nauð- synleg eru. í fljótu bragði er ekki hægt að sjá, að ekki væri liægt að framleiða þessa vöru í landniu, og það jafngóða og erlenda. ★ Samvinnukona heiðruð Frú Cecily Cook O. B. E. Um liver árarnót kemur fram í Bretlandi heiðurslisti (New Year’s Honours List) með nöfnum þeirra manna og kvenna, sem hlotið hafa heiðursmerki ríkisins fyrir merkileg og vel unnin störf. Á síðasta heiðurslista var nafn mjög þekktrar samvinnukonu í Eng- landi, aðalritara enska gildasam- bandsins, frú Cecily Cook. Frú Cook hefur verið aðalritari sambandsins síðan 1940 og er ein liin fremsta meðal samvinnukvenna í Englandi. Hún er framúrskarandi áhugasönt kona og afkastamikil og trúir því óhikað, að samvinnuhreyf- ingin muni geta leyst vandamál framtíðarinnar, ef réttilega er á haldið. Þegar hamingjuóskunum tók að rigna inn á skrifstofu hennar í Le- (Framhald á bls. 25). t dagheimilum og vöggustofum eru leikgrindur notaðar og sést hér ein slik grind, f>ar sem mörg börn eru látin vera i samtimis. ■ 111! 1111111111l■l•■lllll•l••l••■|||l•||■|l||||••|||| 23 l•••l•lllllllll•ll miiii llll•ll•llllllllllll•l•lllllllll■ll•l•iiiiiiiiiiiiihMiiniii111111111111n ................................................"•""....................................................... i ímii ii ............iiiiii...... ii iii iiiiii iiii ii iiiiii ii iii ii mii iii iii ii lllllll•l,llllllllllll•ll 111111111111111111111 iii n iii iii ii*

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.