Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1948, Qupperneq 3

Samvinnan - 01.11.1948, Qupperneq 3
 17. alþjóðaþing samvinnumanna 1 Prag SKÖMMU áður en 17. þing Al- þjóðasambands samvinnumanna kom saman í Prag í Tékkóslóvakíu, dagana 23.-27. september nú í haust, lét eitt a£ brezku samvinnublöðunum svo ummælt, að miklar vonir væru við það tengdar, og þær þá helztar, að því mætti takast að smíða brú yfir gjána, sem skilur austur og vestur á sviði al- þjóðasamskiptanna. Eigi er ósenni- legt, að allmargir fulltrúar þeirra 26 þjóða, sem þingið sátu, hafi komið til Prag með þessar óskir í huga og hafi vænzt þess, að Alþjóðasambandið og störf þess gætu staðið eins og klettur úr hafi sundurlyndisins og deilnanna, sem einkenna alþjóðaráðstefnur og alþjóðleg samskipti um þessar mund- ir. Vissulega eiga samvinnumenn að areta komið fram sem ein heild, með O svipaðar lífsskoðanir, hvort sem vagga þeirra hefur staðið í hinum svo nefndu „alþýðulýðveldum" Austur - Evrópu, Brúin milli austurs og vesturs var aldrei byggð eða í hinum ráðsettu lýðveldum og konungdæmum hins vestræna heims. Og líklegt verður að teljast, að ef allir þeir 470 fulltrúar, sem sóttu þetta 17. alþjóðaþing, hefðu komið til Prag í þeim einlæga ásetningi að vinna sam- vinnústefnunni gagn, hefði þingið getað gegnt því hlutverki, að rísa eins og klettur úr hafi hins stríðsskelfda og sundurleita heims, orðið tákn friðar- vilja hins almenna borgara og neyt- anda, og þá um leið lagt undirstöðu að brúarsmíðinni í milli austurs og vesturs. En þetta átti ekki svo að fara, Þegar fyrsta fundardaginn varð það ljóst, að gjáin í milli austurs og vesturs stóð í gegnum mitt þingið og mitt alþjóða- sambandið. Það var formaður rúss- nesku sendinefndarinnar, forstjóri rússneska samvinnusambandsins, sem kvað niður vonirnar um brúarsmíðina og sló fyrstur á þá strengi, sem síðan áttu eftir að hljóma í Prag ráðstefn- una út: Hann sagði m. a.: „Heimur- inn er í dag klofinn í tvær fylkingar. Annars vegar er hin heimsveldis- sinnaða, andlýðræðislega fylking, sein stjórnað er af valdamönnum Banda- Hkjanna, og hins vegar er hin lýðræð- islega, andheimsvaldasinnaða fylking, sem sem Sovétríkin hafa forustu fyrir. Aðalstefnumál hinnar heimsvalda- sinnuðu fylkingar er að styrkja heims- valdastefnuna, að hleypa af stað nýju heimsvaldastríði, að berjast gegn sósí- alisma og styðja andlýðræðislegar og fasistískt sinnaðar ríkisstjórnir og hreyfingar.. . .“ Þessi austræna hljómkviða var síðan 3

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.