Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1948, Síða 7

Samvinnan - 01.11.1948, Síða 7
að þekkja og kunna skil á, meðan ís- lenzk tunga skilzt, segja ýinislegt um daglegt líf og mataræði til forna. Að vísu er þetta nokkuð einhliða, og oft hef eg óskað þess, að kunnir og ókunn- ir höfundar þeirra hefðu skrifað meira um ýmislegt, sem mér finnst meiru varða en mála- og vígaferli. Um manneldi segir oft tiltölulega fátt í sögum og annálum, en eg hef í frístundum mínum í fjarlægðinni ver- ið að leita að ýmsu, og þótzt finna nokkuð margt. Öllum þessum gler- brotum hef eg verið að raða saman og gert úr mynd af manneldisástandinu og heilsufarinu til forna, og eg held að hún sé nokkuð rétt. En aðaldrættirnir eru þessir. Landnámsmennirnir voru að mörgu leyti úrvalsfólk og höfðingjafólk margt. Það voru ekki hreppsómagar sem byggðu þetta land. Fólkið kom úr löndum, þar sem nóg var að borða og harðæri mjög sjald- gæft. Það hefur verið vant við gott fæði, að minnsta kosti það, sem kom frá Norðurlöndum. Að vísu var nokk- ur þrælalýður úr framandi löndum í för með höfðingjunum. Uppruni þeirra var oft ágætur, en þó þeir kæmu úr fjarlægum löndum, hefur varla gætt áhrifa frá þeim á lifnaðarháttu og mataræði landnámsmannanna. Landnámsmennirnir flytja með sér mataræði föðurlandsins og halda eins fast við það og unnt er. Landnámsmenn gleyma yfirleitt fyrr móðurmáli sínu en mataræði föð- urlandsins. Þetta er reynsla um allan heim. Heimþrá magans er stundum sterk- ari en heimþrá hjartans. Þannig hefur mataræði á íslandi fyrst í stað, og að vísu allt fram á þenn- an tíma, verið komið af eða líkst mat- aræði Norðurlandanan yfirleitt þó Dr. med. SKÚLI GUÐJÓNSSON, prófes- sor í heilsufræði og manneldisvísindum við háskólann í Árósum í Danmörku, hef- ur dvalið fjarri fósturjörð simii í 26 ár. Hann er víðkunnur vísindamaður, trúnað- armaður og ráðunautur dönsku ríkis- stjómarinnar í manneldismálum, hcfur veitt vísindaleiðöngrum forstöðu og ritað bækur og ritgerðir um manneldismál og heilsufræðileg efni í erlend vísmdatímarit. staðhættir hafi verið nokkuð öðruvísi. Tungan varðveittist bezt á íslandi og eins var því farið með norrænt mat- aræði. Mataræði á íslandi hefði sjálfsagt verið allt annað ef ísland hefði byggzt frá öðrum löndum en Norðurlöndum eða byggzt 1000 árum fyrr. ETTA MÁ mjög greinilega sjá í mataræði Færeyinga, sem að ýmsu leyti er upprunalega allt annað en okkar fæði, enda voru það ekki norrænir menn einir, sem fyrstir byggðu Færeyjar. Landkostir voru slíkir á íslandi til forna og veiðiföng, að hægt var að við- hafa norrænt mataræði óbreytt, þó með innflutningi einstakra fæðuteg- unda. Þetta tókst líka þangað til sam- göngur brugðust, eða þar til á 13. og 14. öld, en þá hófust hungurtímar og þar af leiðandi vesöld og hörmungar þjóðarinnar um margar aldir. Þjóðinni tókst ekki að ráða nógu vel fram úr manneldis- og verzlunarmál- unum. En þetta átti drýgsan þátt í Sturlungaöld, óöld, sjálfstæðismissi þjóðarinnar og öllum hennar hörm- ungum. Þjóðin kunni ekki þá list að lifa af landinu. Enn verr fór þó á Grænlandi. Þang- að fluttu landnámsmenn með sér er- lent mataræði, eins og vant er. Sam- bönd við umheiminn brugðust og þjóðin leið undir lok, og er þetta ein- hver hræðilegasta manneldisharma- saga veraldarinnar. En skrælingjarnir, sem að öllu leyti voru lélegri þjóð, lifðu og þrifust ágætlega, eingöngu vegna þess að mataræði þeirra var sniðið eftir landi því, sem þeir byggðu. Ekki verður skýrara sagt en þetta hversu lífsnauðsynlegt það er að mat- aræði sé sniðið eftir landsháttum og kostum og á þetta við enn í dag. Þið, sem innleiðið framandi siði í mataræði íslendinga, ættuð að muna þetta. Mataræði á Norðurlöndum til forna var, eins og það er enn, mjög blandað, en yfirgnæfandi fæða úr dýraríkinu. Þar næst kom kornmatur, en ávextir og grænmeti hefur verið mjög af skornum skammti. Þegar til íslands kom var enginn vandi að fá nóga dýrafæðu. Korn var ræktað hér að vísu, en nú ræktun hef- ur líklega verið vinnufrek og uppskera oft nokkuð rýr. Miklu auðveldara var að flytja korn- ið inn, enda hófst strax á landnámsöld mikill innflutningur á korni. Hvaða korntegundir notaðar hafa verið, sést varla með vissu, en þetta hefur nokkra þýðingu frá vísindasjón- armiði nútímans um næringargildi korntegunda. Mér þykir sennilegast að rúgur og bygg hafi verið aðaltegundirnar og hveiti kannske að nokkru leyti, en að hafrar t. d. hafi verið miklu sjaldgæf- ari. Töluvert af byggi hefur farið í öl- gerð — eða kannske mest allt. Rúgur verður þá aðalkornið og hveiti kann- ske nokkuð, en þetta eru langhollustu korntegundirnar. AÐ VÆRI NÚ fróðlegt fyrir þá, sem halda að heimurinn frelsist á grænmetis- og ávaxtaáti einu, að vita hvort hinir vösku og glæsilegu for- feður vorir hafi neytt slíkrar fæðu svo teljandi sé. Ávaxtatré hafa aldrei þrifist hér, þó líklega megi rækta þau nú á tímum. Þau voru sjaldgæf á Norðurlöndum til forna og landnámsmenn hala líklega ekki verið garðræktarmenn. Grænmeti aftur á móti var ræktað lítið eitt og einstaka matjurtir hafa ef til vill ekki verið óalgengar. Fræg er sagan um laukinn, sem not- aður var í eins konar próftíma í hlöð- unni á Stiklastöðum, rétt eins og þeg- ar læknar nú á tímum gefa magaveik- um sjúklingum próf- eða rannsóknar- máltíð. Læknarnir við orrustuna á Stikla- stöðum gefa holsárum mönnum lauk að borða, því að þá kenndi lauksins úr sárinu ef á hol var. Hér er um hinn lyktarsterka lauk að ræða og tekur það af allan vafa um að átt er við matlauk, enda hefur snill- ingurinn tekið eftir því að lauklykt lagði úr holsárum þegar bardagamenn höfðu borðað lauk í mat sínum rétt áður en þeir gengu til orrustu. Hann gefur þeim svo laukinn til að rannsaka náttúru sáranna, og er þetta eitt dæmi um snilli mannsandans. Eg gæti sagt fleira um þetla og hina stórmerku frásögu um sár og lækning- ar í orrustunni á Stiklastöðum. 7

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.