Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1948, Side 27

Samvinnan - 01.11.1948, Side 27
ir, mátti sjá merki eftir liti og málaðar skreytingar. Það heppnaðist að ná burt Iieilum hlutum af þessum fimm þús- und ára gömlu vegglímsmyndum, og ■eru þær nú varðveittar í Fornminja- .safninu í Bagdad. ANNABYGGÐ í Harmal hófst svo aftur þúsund árum síðar en í Uqair, og hefir það sennilega verið um 2500 f. Kr. Þar mun byggð hafa haldizt að minnsta kosti í þúsund ár. Þar hefir fundizt stórt musteri, og í rústum þess fundust molar af ljóna- myndum, sem gerðar hafa verið úr leir í fullri líkamsstærð, en líkneski þessi hafa haldið vörð um dyr musterisins. Eitt af því merkasta, sem fannst í Har- mal, voru leirtöflur, ritaðar fleygletri. Meðal þeirra merkari voru „landa- fræði“ og „jurta- og dýrafræði“. UM 500 árum eftir að landnám liófst í Harmal, byggði konung- ur nokkur babýlonskur borg um tutt- ugu mílur sunnar en Bagdad stendur nú. Konungur þessi hét Kurigalzu, og kendi hann borgina við sjálfan sig. Þar reisti hann geysistóran turn, sem þrátt fyrir veður og vinda í þrjú þús- und ár, gnæfir enn þá í meira en 200 feta hæð yfir sléttuna í kring. Hefur turni þessum oft \ erið blandað saman við Babelsturninn, sem nefndur er í Biblíunni. Þarna vann Fornminjaráð íraks að rannsóknum milli 1942 og 1946 með ágætum árangri. Meðal fornminja fundust m .a. brot úr skreytingu og áletrun á líkneski af Kurigalzu konungi. Áletrunin er á sumerísku máli, en ekki þeirri tungu, sem tíðkaðist á þeim tímum í Babý- lon. Áletrunin er merkileg fyrir það. að hún lýsir trúarhugsun þeirra tíma. Greinir hún frá skyldum guða þeirra, sem bera ábyrgð á stjórn alheimsins. RÉTT hjá gömlum og uppþornuð- uðum farvegi Tígrisfljóts, skammt frá Bagdad, liggja rústir borgarinnar Wasit. Þót ekki séu full 300 ár síðan byggð lauk í þessari fornu höfuðborg, sem eitt sinn var nafnfræg fyrir aldin- garða sína og hallir, sjást þess nú lítil merki önnur en sandhaugur mikill. Þarna liafa verið grafnar upp undir- stöður að nokkrum bænahúsum, en merkasti fundurinn er ef til vill litla 9 „leikfangabúðin“, sem er eitthvað um 600 ára gömul. Litlar leirmyndir af mönnum, dýrum og fuglum voru grafnar þarna upp úr sandinum, allar að líkindum frá 13. öld, þegar Mon- gólar ríktu í írak. Enn þá má vel greina hin kringluleitu Mongólaand- lit á riddurunum, hljóðfæraleikurum og dansmeyjum. Hér hefur verið nefnt sumt af því, sem dregið hefur verið fram í dags- ljósið í írak. Það gefur vonir um, að á næstu tíu árum kunni að finnast enn þeira, sem skýri betur en orðið er, sögu mannkynsins og menningarinnar. Lauslega þýtt úr Tlie New York Times Magazine. 17. ALÞJÓÐAÞING SAMVINNUMANNA (Framhald af bls. 5) manna í Prag, hvort takast mundi að sameina þessar fylkingar aftur í eina heild, eða hvort þessi skipan mála mundi verða til þess, að alþjóðasam- tök samvinnumanna klofnuðu í tvo hluta. Ennþá verður þessum spurn- ingum naumast svarað. En það er þeg- ar ljóst, að mjög greinir á meðal sam- vinnumanna í Vestur-Evrópu og Aust- ur-Evrópu um hlutverk samvinnunn- ar í þjóðfélaginu og stöðu hennar gagnvart ríkisvaldinu. Annars vegar er samvinnuhreyfing, sem er innlim- uð í einræðislegar, ríkissósíalískan áætlunarbúskap, hefur mjög takmark- aða möguleika til samstarfs út á við, en gegnir þó þýðingarmiklu hlutverki í þessum löndum sem mótvægi gegn hinum þunglamalega ríkisrekstri og ríkisskriffinnsku. Hins vegar er sjálf- stæð, frjáls, lýðræðisleg samvinnu- hreyfing, sem á í harðri samkeppni við einkaverzlun og framleiðslu, með mikla möguleika til samstarfs út á við. Á pappírnum er sjálfsagt hægt að finna samvinnugrundvöll í milli þessara tveggja hreyfinga. En til þess að slíkt samstarf megi takast, verður að halda hinum stórpólitísku átökum utan fundarsala samvinnumanna. Það var ekki gert í Prag, og reynslan það- an gefur vissulega ekki tilefni til bjart- sýni um slíkt samstarf í framtíðinni. BRUGÐIÐ UPP MYND AF FRÖNSKU MEÐALHEIMILI. (Framhald af bls. 12.) það er það, hvort Marshall-áætlunin muni tengja allan heiminn nánari böndum, eða hvort hún verði til þess að auka það ósamlyndi, sem þegar er orðið áberandi milli Austurs og Vest- urs.“ Það væri samt að gefa rangar hug- myndir um lífsviðhorf Lefebvre-hjón- anna, að gefa í skyn að áhyggjur út af heimspólitíkinni væru efst í hugum þeirra. Slíkar áhyggjur gera að vísu vart við sig, en áhyggjurnar fyrir dag- legu brauði yfirgnæfa allt annað. Athugun, sem nýlega var gerð á kaupmætti franskra peninga, í dag, borið saman við kaupmátt þeirra 1938, gefur ljósa mynd af þeim erfiðleikum, sem fjölskylda, eins og sú sem hér er lýst, á við að stríða. Á árinu fyrir stríð- ið gat verkamaður, sem vann sér inn 48 franka á átta stunda vinnudegi, keypt fyrir þá upphæð eftirtaldar vör- ur: eitt pund af brauði, hálft pund af kjöti, einn lítra af víni, eitt pund af baunum, fimm egg, einn pakka af osti, fjögur pund af jarðeplum, einn pakka af sígarettum, kvartpund af súkkulaði, hálft pund af smjöri, kvart pund af kaffi, einn lítra af mjólk, hálft pund af hrísgrjónum og eina dós af sardínum. í dag getur verkamaður, sem vinn- ur sér inn lágmarkskaup, 420 franka á átta stunda vinnudegi, ekki fengið fyrir það helming þess, sem hér var talið, jafnvel þótt það væri fáanlegt, en það er raunar flest ófáanlegt nema á svörtum markaði, en til þess að geta keypt það þyrfti hann 700 fianka. Mest af því, sem Lefebvre vinnur sér inn, fer til þess að kaupa mat fyrir fjölskylduna, því eins og konan hans segir, er heilsan fyrir öllu. Vegna þess, hve verðlag á matvörum er hátt, fara til þess að meðaltali 500 frankar á dag, en það er nærri fimmtán sinnum hærra upphæð en sömu vörur kostuðu fyrir stríð. Morgunverður fjölskyldunnar er brauð, venjulega þurrt, en þó einstöku sinnum með örlitlu af smjöri, tveir bollar af gervikaffi, sem nefnist „café national“, lianda hvoru hjónanna, en börnin fá mjólk. 27

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.