Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Page 8

Samvinnan - 01.02.1976, Page 8
Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur Ekki er vitað með neinni nákvæmni, hve margar eldstöðvar hafa verið virkar á íslandi, enda ekki ætíð auðvelt að skera úr um, hvað teljast skal ein eldstöð. En vart munu eldstöðvarnar vera færri en 200, sem gosið hafa síðustu 10.000 árin, margar þeirra þó aðeins einu sinni. Síðustu aldirnar hefur gosið að meðaltali fimmta hvert ár ... 1. mynd: Gjóskulögin H, (— II 1104), H3 og H4 í mógröf nærri Fossá á Skagaströnd. (Ljósmynd: Sigurður Þórarínsson) GJÓSKULÖG „Á mörgum stöðum, þar sem ekki er einvöröungu grjóturð, getur að lita í skorningum í jarðvegi ösku, sem myndar þétt og óslitið lag i moldinni. Þetta lag er eins til tveggja þumlunga, já jafnvel þver- handar þykkt. Þetta er óræk sönnun þess, að aska úr eld- spúandi fjöllum hefur þakið meiri hluta landsins. Næst undir þessu öskulagi er i slík- um sniðum að finna jarðveg með gróðurmoldarlit og með trjáleifum, svo að hann er brennanlegur og vel nýtileg- ur sem eldsneyti. Síðan kemur annað öskulag, meir en þver- handar þykkt, og efst í þvi grófir lurkar, sem eru enn betra eldsneyti. Undir saman- þjöppuðu moldarlagi er svo þriðja öskulagið, spannarþykkt og einnig í því leifar stórra trjáa, svo lítt fúnar, að smiða má smáhluti úr þeim. Allt þetta sannar, að eldfjallaaska hefur hvað eftir annað farið illa með þetta land.“ Þessa skilmerkilegu lýsingu og þær rökréttu ályktanir, sem af henni eru dregnar, er að finna i riti, sem vantar litið í að verða þriggja og hálfrar aldar. Ritið ber heitið De mira- bilibus Islandiae, þ. e. Um und- ur íslands, og höfundurinn er Gisli Oddsson, Skálholtsbiskup. Ellefu áratugum eftir að Gísli biskup samdi þetta rit kom út i Kaupmannahöfn rit á latínu um eldvirkni á íslandi eftir 22 ára gamlan íslending, Eggert Ólafsson, sem þá var nýlega orðinn baccalaureus við Hafnarháskóla. Þetta er hið merkasta rit, sem vart hefur verið nægur gaumur gefinn. Þar lýsir Eggert meðal annars tvennskonar vikri í jarðvegi á íslandi, svörtum og hvitum: „Sá svarti er“, skrifar Eggert, „þyngri í sér og harðari, og í eðli sínu nokkuð áþekkur hrauni, en sá ljósi, sem er vel þekktur erlendis og nefnist á dönsku Pimpe-steen, hefur al- gjörlega glatað eðlilegri þyngd steina". Eggert skrifar og i þessari ritgerð, að hann hafi fundið i mógröfum ljósan, fín- gerðan vikur tvær álnir undir yfirborði og hafi hann smátt og smátt sigið niður á þetta dýpi. Þetta fyrirbæri hefur vakið áhuga Eggerts, þvi i ferðabók sinni getur hann þess, að á ferð sinni um Skaftafellssýslur sumarið 1756 hafi hann og Bjarni Pálsson víða látið grafa i jarðveg til að huga að vikurlögunum úr Kötlugosinu árið áður og Ör- æfajökulgosinu 1727. Segir Eggert það fyrrnefnda vera sokkið einn þumlung niður í grassvörðinn, en það síðar- nefnda vera komið hálft fet niður í þéttan, harðan jarðveg, en helmingi dýpra niður í mýrarjarðveg. Hann getur þess einnig, að á Norðurlandi hafi þeir Bjarni látið grafa á mörg- um stöðum á grónu landi og fundið að jarðvegurinn var lagskiptur, þvi þar skiptust á lög af sandi, dusti og hvítum og svörtujn vikri. f ofangreindum tilvitnunum er að finna þær aðalstaðreynd- ir, sehnteru undirstaða þess tímatals- í jarðsögunni, sem fyrir þremur áratugum hlaut vísindaheitið „tefrókrónólógia", er útleggst gjóskutímatal, en gjóska er nýyrði, smiðað eftir pöntun af Vilmundi heitnum Jónssyni, landlækni, sem sam- heiti á þeim föstu gosefnum, er berast loftleiðis frá eldstöð i eldgosi og heita þá ýmsum nöfnum eftir grófleika og ann- arri gerð, en grófleikinn fer aðallega eftir fjarlægð frá eld- stöðvunum. Lengst frá þeim fellur fínt dust, nokkru nær þaðsem venjulega nefnist aska, enn nær eldstöðvunum fellur grófsandur, vikur og gjall, og allra næst þeim stórar hraun- kúlur (bombur) og klessur. Sérhvert sprengigos eða bland- gos myndar gjóskulag, sem samanstendur af flestu eða öllu þessu, og er útbreiðsla þessara laga mjög misjöfn. Minnstu gjóskulögin ná skammt út frá eldstöðvunum, en þau stærstu þekja hundruð þúsunda fer- kílómetra. í Krakatárgosinu féll gjóska á svæði átta sinn- um stærra en ísland og fín- asta dustið barst í háloftunum allt í kringum jörðina. í Öskju- 4

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.