Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Síða 13

Samvinnan - 01.02.1976, Síða 13
Dröfn Farestveit, húsmæðrakennari c— nn Chili con carne 1 stór laukur grófsaxaður 300 gr. hakkað kjöt 2 msk. maisolía salt, pipar, 2 grænar paprikur í bitum 1 ds. niðursoðnir tómatar 1 ds. bakaðar baunir chiliduft, oregano, china spice, eftir smekk i/2 tsk. hvítlaussalt Steikið lauk og hakkað kjöt i olíunni. Saltið og piprið. Setjið innihaldið úr tómat- dósinni saman við ásamt paprikunni. Látið krauma við vægan hita í ca. 15 mín. Bökuðu baununum bland- að saman við og kryddað eftir smekk. flMíí im Tl' nr ulajl E rnL \i\ q) ur gosum að ræða, en fremur er það ólíklegt. Hvergi er þessa goss (eða gosa) getið, svo öruggt sé, en líklegt má telja, að það sé þetta gos, sem orðið hafi tilefni heitbréfs Eyfirð- inga 1477, sem byrjar svo: „Þriðjudaginn fyrstan í ein- mánuði, þá er liðið var frá hingaðburði Jesú Kristi 1477 vetur, á Grund í Eyjafirðikomu saman lærðir og leikir milli Vargjár og Glerár og töluðu þar um þau undur, ódæmi og ógnanir, sem þá yfir gengu af eldgangi, og sandfalli og ösku- myrkrum og ógurlegum dun- um. Af þessum undrum þreifst fénaður ei, en þó var snjólaus jörð. Kom þeim ásamt, að þetta muni orðið hafa fyrir syndagjöld og ranglæti manna“. Það sem helzt mælir gegn því, að það sé áðurnefnt Kverk- fjallagos, sem hér um ræðir, er það, að gjóskulagið er miklu þykkara i Þingeyjarsýslum austan Vaðlaheiðar en í Eyja- firði, en ekki vitað til, að þar hafi það orðið tilefni heitdaga nema í Reykjadal. Sú kynni þó að vera skýring hér á, að mestu réði um þessar mundir í Þing- eyjarsýslum Finnbogi Jónsson, lögmaður að Ási i Kelduhverfi, er hafi ekki verið mikið fyrir á- heit, en hann hlaut viðurnefnið Mariulausi. Þeir, sem farið hafa austur Fjallabaksveg nyrðri, hafa vaentanlega margir veitt eftir- tekt þvi þykka, svarta gjall- lagi, sem þekur landið austan og vestan Eldgjár. Þetta lag, sem er myndað um leið og nyrzti hluti Eldgjár, er auð- rakið í jarðvegi með akvegin- um suður til byggðar i Skaft- ártungu og á Síðu. Það liggur þar ofan á laginu „Mósa“ og reynist það rétt hjá Guðrúnu Larsen, að það lag sé hluti af landnámslaginu, stappar nærri vissu, að sá hluti Eldgjár, sem Fjallabaksvegur nyrðri liggur yfir, og það hraun, sem flætt hefur um farvegi Nyrðri og Syðri Ófæru suður á Siðu og austur i Landbrot, séu raun- verulega frá sögulegum tíma. Sama er að segja um hraunið ú suðurbakka Hólmsár við Hólmsárbrú. Frásögn Land- uámu af jarðeldi austur þar kynni að reynast nokkuð rétt Þegar öllu er á botninn hvolft. Að lokum skal nefnt eitt gjóskulag, sem kannað hefur Verið nú hin siðustu árin. í hokkur undanfarin ár hefur yerið unnið að gjóskulagarann- sóknum í Mýrdal, aðallega af okkur Einari H. Einarssyni, bónda og jarðfræðingi á Skammadalshóli í Mýrdal. Þar er fremur erfitt um vik, því Kötlulögin eru mjög mörg og flest þeirra nokkuð lík hvert öðru. Öræfajökulslagið ljösa frá 1362 er, sem fyrr getur, ekki orðið nema einn millimetri á þykkt er kemur vestur að Mýr- dalssandi, og vonlítið þótti að finna það vestan sands. Það tókst þó fyrir tveimur árum að finna vott af því i Hjörleifs- höfða og síðastliðið haust tókst loks að finna það i sniði á Höfðabrekkuheiði. Á báðum þessum stöðum liggur það rétt fyrir ofan gjóskulag, sem við nánari athugun nú i sumar hefur reynzt vera lag, sem hef- ur verið kannað öðrum lögum betur i Mýrdalnum, þvi þar er það langþykkasta lagið frá sögulegum tíma. Milli Skeið- flatar og Reynishverfis er það um 20 sm þykkt og blasir við m. a. í sniði norðan þjóðvegar, þar sem halla tekur niður í Reynishverfið. Vafalaust er, að þetta gjóskulag hefur valdið stórfelldu tjóni og lagt marga bæi í Mýrdal í auðn um skeið. Einar komst að þvi fyrir nokkr- um árum, að lagið lá ofan á mannvistarleifum hjá Felli í Mýrdal og þar fannst síðar saumnál undir því. Öruggt er að það hefur fallið samfara hlaupi undan Sólheimajökli, og er þá eðlilegt að hugsa fyrst til þeirra tveggja gosa, 1245 og 1262, sem annálar kenna við Sólheimajökul. En afstaðan til Öræfajökulslagsins sannar, að það er yngra, eða frá þvi rétt um 1360. Hvergi er i skrám yfir eldgos getið um Kötlugos í kringum 1360, en ef betur er 9. mynd: Þykkt og útbreiðsla gjóskulagsins „a“. að gáð er þess raunverulega getið í þremur af fornu ann- álunum. Gottskálksannáll seg- ir um árið 1359: Elds uppkoma i Trölladyngjum leiddi þar af ógnir miklar og dunur stórar, öskufall svo mikið að nær alla bæi eyddi i Mýdalnum og víða þar nálægt gerði mikinn skaða, vikra reki svo mikill austan til að út frá Stað á Snæfellsnesi rak vikrina og enn utar“. Skál- holtsannáll og annáll Flateyj- arbókar hafa nær hið sama að segja, en sá fyrrnefndi setur gosið við árið 1354, hinn við árið 1360. Hvorki Trölladyngja á Reykjanesi né í Ódáðahrauni hafa valdið þessu gjóskufalli i Mýrdal. Það er Katla, sem lagt hefur byggðina að verulegu leyti i auðn nokkrum árum áð- ur en Öræfajökull eyddi Litla héraði. Þau svörtu gjóskulög, sem hér hefur verið staldrað við, eru dæmi þess, að ýmsu má auka inn i þá íslandssögu, sem skráð hefur verið á skinn og pappír, með þvi að rýna i þær skrár, sem eldfjöllin okkar hafa skilið eftir sig í jarðvegi. í þeim skrám er fjölmargt ó- lesið enn. + 9

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.