Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Page 17

Samvinnan - 01.02.1976, Page 17
tengsl ólíkra likamsforma og skapgerðareinkenna. Frægast- ur fulltrúa þessarar skoðunar var austuríski geðlæknirinn Kretschmer, sem var uppi um síðustu aldamót. Hann kom fram með skiptinguna i renglu- vaxna menn — innhverfa og þenkjandi — og riðvaxna menn — lifsglaða og áhyggjulausa. Shakespeare gefur þessi tengsl í skyn þegar hann lætur Júlíus Caesar segja: „Ég vil hafa feita menn í kringum mig, sléttgreidda menn, sem sofa vel um nætur. Þessi Cassíus er uiagur og sultarlegur. Hann hugsar mikið. Slíkir menn eru hættulegir". Nútima sálfræði telur litinn ávinning af þvi að leita slikra tengsla. í þess stað leitast menn við að nota tiltölulega afmarkaðan og handhægan fjölda skapgerðarmælikvarða, sem eru nýtilegir til þess að lýsa skapgerð fólks. Mönnum nægir þó ekki að draga upp mynd af skapgerðarþáttum mnstaklinga á grundvelli svo allmennra athugana, sem lýst var hér að framan. Þess í stað er beitt persónuleikaprófi. Próf þetta fer þannig fram, að sá prófaði er látinn svara röð spurninga um, hvernig hann sé vanur að hegða sér við á- kveðnar aðstæður og hvernig hann myndi hegða sér, ef eitt- hvað ákveðið kæmi fyrir. Dæmi um mælikvarða eða viddir, sem notaðar eru á slík- um prófum, er drottunargj arn — undirgefinn, innhverfur — úthverfur, stöðugur — ó- stöðugur. Hvert er hagnýtt gildi um- ræddrar flokkunar? Flokkun sem þessari er t. d. beitt við val á fólki til ýmissa starfa. Til þess að komast að raun um, hvaða kostum „hæfur“ ein- staklingur eigi að vera búinn, má með mikilli einföldun segja, að sá háttur sé á hafður að prófa fyrst einstaklinga sem þekktir eru af þeim góðu eig- inleikum, sem sóst er eftir til ákveðins starfs, t. d. sölumenn. Á grundvelli svara úr því prófi fást hugsanlega fram skap- gerðarþættir, sem einkenna þá. Þeir umsækjendur viðeigandi starfs, sem virðast hafa lik skapgerðareinkenni á grund- velli prófsins eru þá taldir hæf- ari en aðrir til sölumennsku. Nefna má, að við ráðningu i æðri stöður er einnig lögð mikil áhersla á skapgerðareinkenni s. s. frumkvæði, atorku og áreiðanleika. Þekkingar afla menn sér með námi. Forsenda náms er hins vegar ákveðin lágmarksgreind. Skilgreina má þvi greind sem hæfileikann til þess að nema og skilja. Þvi er eins farið með greind og skapgerðareinkenni og við- horf — hún verður ekki skoðuð beint, heldur verður að þreifa eftir henni. Sálfræðingar hafa allt frá upphafi tuttugustu ald- ar unnið að gerð og þróun aðferða til þess að mæla greind, svokölluð greindarpróf. Til að forðast deilur um hvað sé eiginlega greind er algengt að skilgreina hana einfaldlega sem það sem mælt er með greindarprófum. Margir hafa liklega tekið einhvers konar greindarpróf, t. d. við umsókn um starf. Mörg þessara prófa ná ekki einungis yfir almenna greind heldur eru tengd þvi starfi, sem viðkomandi sækir um. Hugtakið hæfnispróf er þá ó- sjaldan notað. Notkun slíkra prófa fer talsvert i vöxt bæði við leiðbeiningar um starfsval og við ráðningu starfsfólks. Hugtakið þekking er gjarn- an notað bæði yfir hlutlæga þekkingu og almennan hagleik eða leikni. Á ensku máli er þetta tvennt með öllu aðskilið: „knowledge“ og „skill“. Að geta skipt um dekk á bíl eða geta búið til gómsæta sósu eða snú- ið pönnuköku við i loftinu krefst ákveðinnar leikni eða hagleiks. Til flestrar vinnu er þó þörf hvors tveggja — þekk- ingar og leikni. í raun er það næsta sjaldgæft, að svo skýr skil séu á þessu eins og í sögum um prófessora, sem kunna skil á öllum hlutum milli himins og jarðar, en geta samt ekki fest hnapp á buxurnar sínar. í framhaldi af þessu er at- hugavert að kanna hina sögu- legu þróun. Afleiðing iðnþró- unar var, að kröfur um hag- leik hins vinnandi fólks minnk- 13

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.