Samvinnan - 01.02.1976, Page 18
BARNA
SÍÐAN
Leggðu saman tölurnar í
þessari skrítun uglu og vittu
hvaða útkomu þú færð.
Myndagáta
í hverjum reit er mynd af hlut.
Taktu fremsta stafinn af hverj-
um hlut. Ef þú raðar siðan
stöfunum saman kemur nýtt
orð út úr því. Hvaða orð er
það?
Veiztu þetta?
Hér á eftir fara sex spurn-
ingar, sem þú skalt spreyta þig
á. Þær eru sitt úr hverri átt-
inni, flestar þó úr landafræði
og dýrafræði. En hér koma
spurningarnar. Svörin eru öf-
ugt neðst á síðunni:
1. Hve margir menn hafa
gegnt embætti forseta ís-
lands og hvað heita þeir?
2. Hvað heitir höfuðborgin i
Finnlandi?
3. Hvað þýðir lágfóta?
4. Hvað heitir hæsta fjall á
íslandi?
5. Hve gamlir verða kettir
yfirleitt?
6. Hjón sem hafa verið gift
i 25 ár eiga silfurbrúðkaup
og 50 ára hjúskaparaf-
mæli heitir gullbrúðkaup.
En hvað heitir 10 ára
brúðkaupsafmæli?
Hvaða snjókarlar eru eins?
Það hafa gefizt mörg tækifæri til að búa til snjókarl i vetur.
Hérna sérðu sex myndarlega karla. Hver þeirra er með hatt,
trefil og kúst. En aðeins tveir þeirra eru alveg eins. Hverjir eru
þeir?
Kötturinn sem át allt
Þið hafið eflaust heyrt talað
um Bakkabræður, en frá þeim
segir í Þjóðsögum Jóns Árna-
sonar. Þeir náungar voru
skrítnir í meira lagi, og hér
kemur ein saga af þeim, sem
allir þurfa að kunna:
Einu sinni voru Bakkabræð-
ur á ferð og mættu manni, sem
hafði dýr i barmi sinum, sem
þeir höfðu aldrei séð áður. Þeir
spurðu, hvað þetta dýr héti og
Og hér kemur ný krossgáta að glíma við
Okkur bárust fjarska margar lausnir úr jólablaðinu. Verðlaun-
in hlýtur Drífa Óladóttir, Hauksstöðum, Jökuldal, Norður-Múla-
sýslu.
til hvers það væri haft. Mað-
urinn segir, að það sé köttur
og drepi hann mýs og eyði
þeim úr húsum. Það þykir
þeim bræðrum mikil gersemi
og spyrja, hvort kötturinn sé
ekki falur. Maðurinn segir, að
svo megi þeir mikið bjóða, að
hann selji þeim hann, og varð
það úr, að þeir keyptu köttinn
fyrir geypiverð. Fara þeir svo
heim með kisu og láta vel yfir
sér.
Þegar heim kom, mundu þeir
eftir því að þeim hafði láðst
að spyrja um, hvað kötturinn
æti. Fara þeir svo þangað, sem
maðurinn átti heima sem seldi
þeim köttinn. Var þá komið
kvöld, og fór einn þeirra upp
á glugga og kallaði inn: „Hvað
étur kötturinn?" Maðurinn
svarar i grandaleysi: „Köttur-
inn étur allt.“
Með það fóru þeir bræður
heim, og fóru að hugsa um
þetta betur, að kötturinn æti
allt. Þá segir einn þeirra:
„Kötturinn étur allt og hann
bróðir minn líka.“ Og svo sagði
hver þeirra um sig. Þótti þeim
ráðlegast að eiga ekki kisu
lengi yfir höfði sér, fengu
mann til að stúta henni og
græddu lítið á kattarkaupun-
um.
Lausnir
•99 :uei3n — '•in
-jjain :bjbSbpuÆj\[ — -goi iigau
i ibuub So goi IIJ9 I ifglltl
:iiuibiib319Cus — dnBngniq
-ULL ‘9 "BiB Sl—01 ’S 'IiniloC
-Bjæio 'f ‘injan ‘£ ‘siojSui
-siaH 2 ‘uiBCpia ubCjsiih 3o
uossiiaSsy iia3sy ‘uossuiofa
uuiaAS 'iiicj t :Bjjac} njziaA
14