Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Side 22

Samvinnan - 01.02.1976, Side 22
Harald Grieg, bróðir Nordahls, stjórnaði um langt skeið stærsta útgáfufyrirtæki Norðmanna, Gyldendal. Hann hefur skrifað endurminningar sínar í tveim bindum, og er þar langur kafli um Knut Hamsun og margra ára samvinnu Griegs og samvistir við stórskáldið. Til dæmis er þar að finna frásögnina, sem hér fer á eftir. Hún varekki mykri, sængin hans Macks Vorið 1932 dirfðist ég að spyrja Hamsun, hvort hann vildi vera skírnarvottur hjá mér. Það átti að skíra tví- bura, drengurinn átti að heita Pétur. Hamsun svaraði um hæl og sagðist koma gagngert til þess að vera skírnarvottur drengsins. Aðrir skírnarvottar áttu að vera König forstjóri, Halfdan Christensen og Sigurd Hoel. Frú Nordal Rolfsen og frú Boj- er áttu að halda börnunum undir skírn. Þetta var ekki val- ið af verri endanum, og þær kona mín og móðir mín voru dálítið hátiðlegar, þegar þær lögðu leið sina til sóknarprests- ins í Vestre Aker til þess að biðja hann að skíra börnin. Þeim var tekið mjög vinsam- lega, og presturinn brá á gam- an og spurði, hvort forleggjar- inn væri nú farinn að gefa út tvær útgáfur samtímis. Hann kinkaði kolli, þegar þær nefndu guðmæðurnar tvær. Nafn Königs skráði hann líka viðstöðulaust á kirkjubókina. En þegar þær nefndu hina skírnarvottana, tók hann snöggt viðbragð, ýtti gleraug- unum upp á ennið og leit allt annað en blíðlega til þeirra. Um leið lagði hann frá sér pennann. „Þetta er dálaglegur félags- skapur,“ sagði hann. Og þegar konan mín spurði hann góð- látlega, hvað hann ætti við með þvi, svaraði hann: „Mér finnst það undarlegt að velja þessa menn fyrir vernd- ara ungbarna, þegar þau eru tekin i kristinna manna tölu. Ef mér skjátlast ekki, hafa þeir allir skilið við konur sínar og einn þeirra meira að segja ver- ið þrígiftur." Þegar sóknarpresturinn virt- ist ekki ætla að taka pennann upp aftur, kom móðir min til skjalanna. Hún var dóttir guð- fræðings og taldi sér þvi skylt að svara fyrir tengdadóttur sína, sem var af leikmönnum komin i báðar ættir. „Þér hafið engan rétt til að velja eða hafna skírnarvott- um, prestur minn,“ sagði hún með öllum þeim myndugleika, sem hún hafði tekið að erfð- um af prestlærðum föður sín- um. Nei, það varð presturinn að játa, og nauðugur viljugur varð hann að skrá nöfn skírnarvott- anna þriggja i kirkjubókina. En til þess að létta á samvizk- unni sagði hann að lokum: „Guði sé lof, að það er ekki ég, sem á að embætta á sunnu- daginn.“ Það átti að koma í hlut aðstoðarprestsins. Á heimleiðinni kom þeim konum saman um að halda þessu leyndu fyrir mér. Þær vissu sem var, að ég var ekki mjög kirkjulega sinnaður og þetta atvik gæti haft miður heppilegar afleiðingar. En ég sá strax á þeim, að eitthvað hafði komið fyrir, og áður en dagurinn var að kvöldi kom- inn, hafði mér tekizt að veiða allt upp úr þeim. Og þvi er ekki að leyna, að ég varð fokvondur. Morguninn eftir var ég kominn i skrifstofu prestsins. Ég kvaðst vera þar kominn til þess að afturkalla skirnar- beiðnina og segja mig úr þjóð- kirkjunni. Ég krafðist þess, að nafn mitt yrði strikað út þeg- ar i stað. Það væri vægilega að orði komizt að segja, að presturinn hafi fölnað upp. Mér gat ekki verið alvara með þetta. Ég fullvissaði hann um, að mér væri þetta full alvara og spurði, hvort það væri ekki rétt hermt, að hann hefði kall- að þá menn, sem ég valdi að skírnarvottum „dálaglegan fél- agsskap.“ Ekki gat hann neitað þvi, en það hefði verið sagt í gamni. Ég sagðist ekki kunna að meta þá gamansemi og sat fastur við minn keip. Ég sagði, að orð hans um, að hann væri feginn að þurfa ekki sjálfur að vinna þetta embættisverk bæri vott um það, að börn min væru ekki velkomin i kirkju hans. Sjálf- ur færi ég aldrei þangað, sem ég teldi mig óvelkominn. Og það skyldu börnin mín ekki heldur gera. Þannig héldum við áfram að karpa um hríð. Lengi var ég staðfastur. En svo lengi bað hann mig og sárbændi, að ég lét undan að lokum. En ef ég á að segja alveg eins og er, þá verð ég að játa, að undanláts- semi mín stafaði af dálítið annarlegum ástæðum. Ég var búinn að bjóða í skírnarveizl- una, maturinn var pantaður, matreiðslukona fengin og frammistöðustúlkur. Óneitan- lega var það þægilegt að þurfa ekki að afturkalla þetta allt. Áður en ég fór, spurði ég til vonar og vara, hvort það væri víst og satt, að tvíburarnir mínir væru velkomnir í kirkj- una. „Það getið þér verið örugg- lega viss um,“ svaraði sóknar- presturinn. Og það skal játað, að það fannst okkur sannast daginn eftir. Við vorum mörg saman, og úti fyrir kirkjudyrum bættust skírnarvottarnir í hópinn, all- ir nema Hamsun. Hann hafði tilkynnt, að hann kæmi ekki fyrr en í veizluna um kvöldið. Og þarna við dyrnar beið spari- búinn maður og tók hátíðlega á móti okkur. Hann heilsaði 18

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.