Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1976, Page 26

Samvinnan - 01.02.1976, Page 26
símaþjónusta úti á landsbyggðinni Úr yfirliti um gjaldskrármun símaþjónustu eftir bú- setu unniö af Fjórðungssambandi Norðlendinga. • Jafnrctti í símamálum. Það er réttlætismál að íbúar landsins hvar sem þeir búa njóti sömu kjara um símaþjónustu. 0 Skrefagjöldin fylgja al- mennu verðlagi. Ljóst er, að gjald fyrir hvert teljaraskref hefur hækkað með almennu verðlagi, en afnotagjöldin hafa ekki fylgt eftir. • ASstaða landsbyggðarinn- ar verri. Skrefagjöldum sjálf- virka símans er skipt í 9 gjaldflokka. í gjaldflokki O er tími ekki mældur en á þvi svæði eru bæjar- kerfi innbyrðis. í hæsta gjaldflokki er hvert skref 6 sekúndur sem kostar kr. 7.32 með söluskatti. í þess- um gjaldflokki er Reykja- víkursvæðið miðað við fjarlægðarsvæði eins og ísafjörð, Akureyri og Egils- staði. • Tífaldur munur á síma- þjónustu. Sé hringt frá Akureyri eða fjarlægari svæðum til Reykjavikur telur teljari sjálvirku stöðvanna tífalt miðað við skref innan svæðis í Reykjavík. Það er hægt að hringja í 10 núm- er i Reykjavík fyrir eina mínútu eða 10 skref frá Akureyri. • Greitt yfir 90% meira fyr- ir sömu þjónustu. Hugsum okkur fyrirtæki á Akureyri, sem mundi hringja 5 símtöl á dag til Reykjavíkur miðað við 3 mínútur hvert. Það þarf að greiða fyrir það 274 þús. á ári. Ef sama fyrirtæki er í Reykjavík og hringir sama símtalafjölda innan svæðis er kostnaður kr. 9—10 þús. Fyrir sömu gjaldtöku má hringja 150 umframsímtöl á dag inn- an Reykjavíkur. 9 Mismunur gagnvart sveit- um. Þar sem starfstími hand- virku stöðvanna er til muna styttri er ljóst að mikið vantar á að sveit- irnar njóti sama öryggis i símaþjónustu og þéttbýl- ið. Þá kemur fram veru- leg mismunun milli bæja í nálægð við þéttbýli hvort þau eru i tengslum við að- alstöð eða millistöð. • Tíundi hluti notenda greiða 17.3% skrefagjalda. Á Norðurlandi er 10% allra notenda sjálfvirka símans i landinu. Þeir greiða 17.3% allra skrefa- gjaldanna. Notkun síma eykst meira á Norðurlandi en landsmeðaltal. • Megintekjur sjálvirku stöðvanna umframsímtöl. Um 60% af tekjum sjálf- virku stöðvanna eru vegna umframsímtala. Umfram- símtöl á Norðurlandi eru tæp 18% teljaraskrefa i landinu. • Síminn í dreifbýlu landi. Símanotkunin i dreifbýli fer vaxandi og er hand- hægur samskiptamiðill fólks milli svæða og þvi þýðingarmikill liður fyrir þjónustustarfsemi úti um landið. • Þjónustan ódýrust á Reykjavíkursvæði. Um helmingur þjóðar- innar er á gjaldskrársvæði Reykjavíkur og nágrennis. Þetta eru um 66% notenda sjálvirku stöðvanna. Þessi hópur er innan lægsta gjaldflokks, þar sem hvert símtal er aðeins reiknað eitt skref eða kr. 7.32. Inn- an þessa svæðis eru allar greinar þjónustustarfsemi i landinu og mest af um- svifum þjóðfélagsins. • Afnotagjöldin hafa ekki fylgt verðlagi. Ofan á þá staðreynd að meginhluti skrefagjalda í Reykjavík er í lægsta flokki og svæðið greiðir ekki hlutfallslega skrefa- fjölda miðað við simnot- endafjölda hafa afnot- endagjöldin ekki fylgt verðlagsþróun. Þetta hef- ur skapað mismun, sem nemur um 65% i verðlagi afnotendagjalda. Væri þetta leiðrétt má færa niður skrefagjöldin um 400—500 millj. kr. á árs- grundvelli. • Niðurfelling hæstu gjald- flokkanna. Sé gert ráð fyrir að 40% skrefagjalda sé í hæsta gjaldflokknum má nota hækkun afnotagjalda til þess að fella þá niður. • Möguleg lækkun frá 50%— 90%. Sé gert ráð fyrir niður- fellingu hæstu gjaldflokk- anna er það sparnaður fyrirtækis, sem hringir að norðan 5 simtöl á dag, til Reykjavíkur um 50%. Hins vegar séu öll skrefin jöfn- uð út í símgjaldaflokka er sparnaður allt að 97%. • Tímagjald fyrir öll telj- araskref. Svo að fullkomin jöfn- uður náist þarf að mæla öll teljaraskref sömu tima- einingu, hvort heldur er um að ræða innansvæðis- samtöl eða millisvæða. Framkvæmd þessara tíma- mælinga ætti að vera auð- leysanleg tæknilega séð. Þetta er til hagsbóta á tvennan hátt. Með þessu fæst fullkomið jafnrétti allra landsmanna gagn- vart sömu þjónustu og komast mætti hjá jöfnum, sem hækkaði afnotagjöld- in. að hann vildi feginn hug- hreysta Svein vaktara. Haldið þér það, Hartvigsen? Ég hef hugsað um það, en. Þér hafið kannski ekki séð rúmið hans Macks, sem hann veiðir þær i? Ég fór einn dag- inn upp i herbergið hans og smurði hurðarskrána. Þarna stendur rúmið. í þvi eru rauð- ar silkidýnur og silfurengill á hverjum rúmstuðli. Benoni hafði heyrt sagt frá þessum fjórum stóru silfur- englum, þeir voru gamlir og keyptir einhvern tíma í út- landinu. Fyrr meir, á dögum maddömu Mack, stóðu þessir englar niðri í stofunni, hver á sínum stalli, og héldu hver á ljósastiku í hendinni með kerti í. Nú hafði Mack sett þá á rúmið sitt, sá ólifnaðarseggur. Þetta er makalaust, sagði Benoní um englana. Og klukkustrengurinn er beint yfir rúminu, heldur Sveinn vaktari áfram. Hann er spunninn úr silki og silfur- þræði og handfangið fóðrað með rauðu flaueli. Makalaust. Benoni verður allt i einu hugsi: hann ætti kannski að ná sér i svona klukkustreng, ef Rósa . . . En Rósa var nú . . . — 0 — Það er 12. júní, i dag á að gifta Rósu. Jæja. Benoni var i hátiðaskapi frá þvi um morguninn, hagaði sér prúðmannlega og var hæglát- ur og fámáll. Sveinn vaktari sem bjó hjá honum, var settur i vinnu, sem hann gat annazt einn. Benoní þurrkaði af spilverk- inu og fægði borðsilfrið. Átti hann að senda dýrgripina til Rósu? Sjálfur hafði hann ekk- ert við þá að gera framar. Þetta gat líka verið eins og margar stórgjafir frá konungi til drottningar og gat þaggað nið- ur í þeim, sem nú voru að bera það út um sveitina, að Benoni Hartvigsen væri kom- in á hausinn. Hvorki Benoní sjálfur né hreppstjórafulltrú- inn höfðu frá öndverðu farið i launkofa með þetta ónýta veðbréf fyrir fimm þúsund döl- um, og nú léku kj aftasögurnar um hann lausum hala, menn ýktu ólán hans og töldu hann jafnvel hafa misst naustið og nótina. Benoní varð aftur tor- trygginn, honum virtust félag- ar sínir frá fornu fari taka að gera sig heimakomna og hætta að kalla hann Hartvigsen. En hann hafði nú samt efni á því að gefa Rósu dýrgripina. 22 J

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.