Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 16

Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 16
16 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR Þennan dag árið 1971 var Hróarskeldu- hátíðin sett í fyrsta skipti en hún er ein af elstu tónlist- arhátíðum í Evrópu. Á fyrstu há- tíðinni, sem stóð í tvo daga, spiluðu 20 hljómsveitir á einu sviði og voru áhorfendur á milli tíu og tuttugu þúsund. Nú koma um 110 þúsund gestir saman á hátíðinni en þar af eru um 75 þúsund hátíðargestir og á milli 30-40 þúsund sjálfboða- liðar, hljóm- sveitarmeðlim- ir, fjölmiðlar, öryggisgæslu- starfsmenn, tæknimenn og fleiri. Há- tíðin er rekin sem sjálfstætt starfandi góð- gerðarfélag og rennur allur ágóði hennar til góðgerðar- og menningarmála. Fjölmargar af frægustu hljóm- sveitum heims hafa troðið upp á hátíðinni og má þar nefna Beastie Boys, Björk, David Bowie, Guns N’ Roses, Nirvana og Radiohead. ÞETTA GERÐIST: 28 ÁGÚST Hróarskelduhátíð í fyrsta sinn TÓNLEIKATJALD Hróarskelduhátíð í fullum gangi. JOHANN WOLFGANG VON GOETHE FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1749 „Fólk heyrir aðeins það sem það skilur.“ Goethe var þýskur rithöf- undur, vísindamaður og heimspekingur. Hann skrif- aði meðal annars leikritið Fást og skáldsöguna Raunir Werthers unga. „Þetta er stór áfangi fyrir lítið félag,“ segir Þórhallur Þor- steinsson, formaður Ferða- félags Fljótsdalshéraðs, sem fagnaði fjörutíu ára afmæli í vikunni. Félagið var stofnað 25. ágúst árið 1969. Aðalhvata- maðurinn var Völundur Jó- hannesson sem gegndi for- mennsku í átján ár en stofnfé- lagar voru um áttatíu talsins. „Í dag eru félagnir tæplega 220. Við eigum sex skála og þann sjöunda, sem er í Kverkfjöllum, með Ferðafé- lagi Húsavíkur,“ segir Þór- hallur sem hefur verið í stjórn félagsins í rúm tut- tugu ár. Nýjasti skálinn er í Loðmundarfirði en hann var reistur á einungis þrettán dögum í sumar. „Við áttum fyrir tvo skála á svæðinu á milli Borgarfjarðar eystri og Seyðisfjarðar. Þegar ferða- þjónusta sem rekin var í Loðmundarfirði lagðist af vantaði hlekk í keðjuna og fengum við leyfi til að reisa skála.“ Ferðafélagið hefur byggt upp tvær gönguleiðir á liðn- um árum. Önnur er frá Snæ- felli og suður í Lón en hin frá Borgarfirði eystri til Seyðis- fjarðar. „Það er kannski vert að geta þess, þar sem talsverð umræða hefur verið um ofset- in ferðamannasvæði eins og Landmannalaugar og Lauga- veginn, að þarna eru vel merkt svæði sem geta tekið við mun fleira fólki. Þá erum við með vel búna skála og auk þess þjónustu eins og trúss og mat í skála og leiðsögumenn má nálgast á Borgarfirði eystri.“ Hjördís Hilmarsdóttir, um- sjónarmaður sérverkefna og gönguferða hjá ferðafélaginu, segir það standa fyrir göng- um alla sunnudaga allan árs- ins hring og hefur ekki fallið niður ganga síðastliðin fimm ár. „Auk þess erum við með tvö skemmtileg verkefni í gangi. Annað heitir Perlur Fljótsdalshéraðs og hefur það fengið góðar viðtökur. Fólk safnar stimplum við hverja perlu en við höfum valið átján staði og komið fyrir staukum með gestabók og upplýsing- um á hverjum fyrir sig. Þegar fólk hefur safnað stimplun- um lendir það í potti sem síðan er dregið úr á Orms- teiti, héraðshátíð Fljótsdals- héraðs.“ Hjördís segir verk- efninu sérstaklega ætlað að virkja fjölskyldufólk og því urðu níu léttar og níu erfið- ar leiðir fyrir valinu. „Hitt verkefnið heitir Heiðarbýlin í göngufæri en það er svip- að að uppbyggingu og gefst fólki kostur á að safna stimpl- um við 22 heiðarbýli á Jökul- dalsheiði. Sunnudaginn 6. septem- ber verður farið í „Rústa- ráp“ milli heiðarbýla með Páli Pálssyni frá Aðalbóli en hann er manna fróðastur um íbúa heiðarinnar og bygging- arsögu heiðarbýlanna „Þeir sem ekki treysta sér í þá göngu geta farið í „Tóttatölt“ með Eyþóri Guðmundssyni á milli nokkurra Heiðarbýla en um kvöldið verður svo sam- einast í kvöldmat í Sænauta- seli.“ 19. september á síðan að vígja skálann í Loðmundar- firði og verður boðið upp á afmæliskaffi í leiðinni. vera@frettabladid.is FERÐAFÉLAG FLJÓTSDALSHÉRAÐS: FAGNAR FJÖRUTÍU ÁRUM Reistu nýjan skála á mettíma HÖFÐU HRAÐAR HENDUR Fimmtíu sjálfboðaliðar komu að byggingu skálans í Loðmundarfirði eina helgina í sumar en skálinn var reistur á aðeins þrettán dögum. MYND/ÚR EINKASAFNI ÁNÆGÐUR MEÐ VERKIÐ Þórhallur hefur verið í stjórn ferðafélagsins í rúm tuttugu ár. MYND/ÚR EINKASAFNI Frænka mín, Guðný Þórðardóttir Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Stigahlíð 36, lést þriðjudaginn 25. ágúst. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 1. september kl. 13.00. Gunnvör Valdimarsdóttir Jóhann G. Sigfússon Ragna Alda, Þorsteinn, Þórgunnur og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Björgvin Ólafsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi Kleppsvegi 62, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 16. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarsjóð Áskirkju. Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát hans. Anna Ólöf Björgvinsdóttir Jón Reynir Eyjólfsson Oddný Hrönn Björgvinsdóttir Gunnar Magnús Gröndal Bryndís Dagný Björgvinsdóttir Guðbrandur Þór Þorvaldsson Guðlaug Björgvinsdóttir Halldór Halldórsson Jón Stefán Björgvinsson Ingibjörg H. Kristjánsdóttir Guðmundur Már Björgvinsson Júlíana Þorvaldsdóttir Davíð Þór Björgvinsson Svala Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, stjúpsonur, faðir, tengdafaðir og afi, Þorsteinn Broddason Lágholti 2b, Mosfellsbæ, lést mánudaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Neskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 1. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaheill. Guðríður Steinunn Oddsdóttir Friðrika Gestsdóttir Vin Þorsteinsdóttir Daníel Karl Ásgeirsson Daði Þorsteinsson Maria Helen Wedel Oddur Broddi Þorsteinsson Stefán Broddi Daníelsson Eir Lilja Daníelsdóttir Sunna Daðadóttir Wedel Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigmundur Guðmundsson stýrimaður, Hraunbæ 92, sem andaðist aðfaranótt 19. ágúst, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Þórdís Eggertsdóttir Sigríður Birgisdóttir, Sigurður Hafsteinn Steinarsson, Hafþór Freyr Sigmundsson, Kristín Helga Ólafsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Þórir Björn Sigurðarson, Steinar Orri Hafþórsson, Ólöf Hafþórsdóttir, Þórdís Hafþórsdóttir, Sigmundur Freyr Hafþórsson og langafabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Hálfdan Ármann Björnsson Hlégarði, Aðaldal, sem lést 20. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Neskirkju Aðaldal laugardaginn 29. ágúst kl. 14.00 Bergljót S. Benediktsdóttir Hlédís Hálfdanardóttir Steindór G. Steindórsson Sigurður Hálfdanarson Brynja Arngrímsdóttir Þyrnir Hálfdanarson Gunnlaug D. Pálsdóttir Freyja Hálfdanardóttir Jón Gunnar Þorsteinsson Benedikt Hálfdanarson Maeve C. Hölscher barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns og föður, Erlendar Sigurðssonar Skólatröð 3, Kópavogi. Svanborg Lýðsdóttir Jónína Þórunn Erlendsdóttir Birkir Þór Bragason Lýður Skúli Erlendsson Sigríður Lára Gunnarsdóttir Erlendur Örn Erlendsson Lilja Björk Kristinsdóttir Hrafnkell Erlendsson Sigurlaug Viktoría Pettypiece Aðalheiður Erlendsdóttir Pétur Ólafsson Kristinn Erlendsson Ásta Guðmundsdóttir Sigrún Erlendsdóttir Sigurgestur Ingvarsson Guðrún Lísa Erlendsdóttir Bragi Baldursson Þóra Þórhildur Guðjónsdóttir Elísabet Erlendsdóttir Björn Á. Björnsson og fjölskyldur. timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.