Fréttablaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 38
26 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR Haustið er komið folk@frettabladid.is > VILL BARA FRÆGA Nýjustu sögusagnir herma að leik- konan Jennifer Aniston vilji aðeins fara á stefnumót með frægum mönnum. „Jennifer vill ekki fara á stefnumót með venjulegum karl- mönnum. Hún vill aðeins þá sem þykja flottastir hverju sinni, ein- hvern sem hún veit að á eftir að koma henni í sviðljósið,“ var haft eftir heimildarmanni. Undanfarið hefur hún verið bendluð við Ger- ald Butler, Bradley Cooper, söngvarann John Mayer, bresku karlfyrirsætuna Paul Sculfor og gamanleikarann Vince Vaughn. „Við vorum með Töðugjöld í fyrsta sinn í fyrra og þessi keppni er partur af þeirri dagskrá núna á laugardaginn,“ segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og verkefnastjóri Viðeyjar um keppnina um Viðeyjarhnossgætið. Keppnin er ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á að búa til góðgæti úr íslenskri flóru og eina skilyrðið er að eitt inni- haldsefni vaxi í Viðey. „Með þessari keppni erum við að vekja athygli á ræktuninni í Viðey sem hefur verið þarna fá því fyrir klausturtímann og þeirri gríðarlega miklu flóru sem er í eyjunni. Til dæmis er kúmenið okkar orðið margfrægt, það drepur ekkert rabarbarann og ætihvönn er alltaf að verða vinsælli í matargerð,“ útskýrir Guðlaug. „Fólk má búa til hvað sem er, svo sem grænmetisrétt, kartöflumús, sultu, te, chutney eða djús. Dómnefnd- in fer svo eftir útliti, hugmyndaauðgi og að sjálfsögðu hvernig bragðast og það verða vegleg verðlaun í boði,“ bætir hún við, en dómnefnd skipa Hild- ur Hákonardóttir, Nanna Rögnvaldar- dóttir og fulltrúi frá Gestgjafanum. Aðspurð segist Guðlaug búast við fjölda manns á hátíðina, „Það komu í kringum 300 manns í fyrra og við reiknum með öðru eins núna. Þetta er haustfagnaður og uppskeruhátíð með skemmtun fyrir börnin, bænastund í kirkjunni og þessari keppni. Hátíðin stendur svo fram á kvöld, en þá verður varðeldur í fjörunni og slegið upp balli í skólanum,“ segir hún, en áhugasamir geta skráð sig í keppnina á videy@ reykjavik.is eða á staðnum fyrir klukk- an 16. -ag Keppt um Viðeyjarhnossgætið TÖÐUGJÖLD Í VIÐEY Keppt verður um Viðeyjar- hnossgætið á Töðugjöldum á laugardag og segir Guðlaug keppendur mega búa til hvað sem er, svo lengi sem staðfest sé að eitt inni- haldsefni vaxi í Viðey. Einkaþjálfarinn Raul Rodrigu- ez, sem var nokkuð áberandi hér á landi um tíma, hefur fundið ást- ina að nýju. Sú heppna heitir Jorie McDonald og er sundfatafyrirsæta í Los Angeles. Parið var í viðtali við bandaríska dagblaðið Daily Herald og sýndi þar þriggja vikna son sinn, Constantine, en Raul á tvo syni hér á Íslandi. Í viðtalinu kemur fram að Raul og Jorie séu búin að fá nóg af banda- rískum raunveruleikaþáttum sem auglýsi meðalmennsku og undir- málsfólk, þau vilji fá fallega og vel gefna fólkið til að vera fyrirmynd- ir fyrir annað fólk. Nóg sé komið af „lúserum“ eins og þau kalla það. Mikil umræða hefur spunnist um raunveruleikaþætti í Ameríku eftir að sundfatafyrirsæta, sem einnig var þátttakandi í raunveruleika- þætti, var myrt á óhugnanlegan hátt af mótleikara sínum. Sá hengdi sig skömmu síðar á vegahóteli. Raul og Jorie vilja með sínum raunveru- leikaþætti gefa fólki tækifæri til að sjá hvernig heilbrigt fólk lifir sínu lífi. „Daglegt líf okkar Jorie er svona svipað og í sjónvarpsþættin- um I Love Lucy,“ útskýrir Raul. Raul og Jorie eru þegar með lík- amsræktarþátt sem kallast Zero to Hero TV og er hægt að nálgast á YouTube-vefsvæðinu en þau binda vonir við að einhver af hinum stóru sjónvarpsstöðvum komi auga á ótví- ræða hæfileika þeirra með vefsjón- varpsþættinum Models Mayhem 2 Motherhood en þar mun vefmynda- vél fylgjast með lífi þeirra dags dag- lega. -fgg Raul vill komast í raunveruleikasjónvarp RAUL Í GÓÐUM MÁLUM Raul Rodriguez, sem eitt sinn var einkaþjálfari í World Class, er að gera það gott í Bandaríkj- unum. Hann vill að fallega og vel gefna fólkið fái raunveruleikaþátt, ekki bara einhverjir meðaljónar. Atli Fannar til Fréttablaðsins Atli Fannar Bjarkason, fráfar- andi ritstjóri tímaritsins Moni- tor, hefur verið ráðinn sem blaðamaður á dægurmáladeild Fréttablaðsins. Hann hefur störf 1. september. Atli Fannar er 25 ára gamall Sauðkræklingur en bjó á Selfossi frá fjögurra ára aldri. Hann hefur starfað sem umbrotsmaður og blaðamaður á héraðs- fréttablaðinu Glugg- anum á Selfossi, Blaðinu og 24 stundum. Atli hefur starfað sem ritstjóri Monitors frá því í maí árið 2008. Frétta- blaðið býður Atla Fannar velkominn til starfa.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.