Fréttablaðið - 28.08.2009, Blaðsíða 34
22 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jájá! Gott mál!
Ég er farinn að
venjast þessu!
Duglegur
strákur!
Hann ropar og sefur
reglulega. Hraustur
og flottur!
Hann ælir svolítið, en það
hlýtur að lagast smám
saman.
Vonandi!
Og ...
nú er
það ...
... unglingurinn
sem gagnrýn-
endur elska!
Einhverjir
gagnrýn-
endur
kannski.
Hver tekur
mark á gagn-
rýnendum?
Hann þolir ekki
þegar hann
er kallaður
„Mjásabossi“.
Frú Lóla
Dýrasálfræðingur
Hæ! Hvernig
var í kvið-
dóminum?
Ég var valinn.
Réttarhöldin hefj-
ast á morgun.
Slæmu fréttirnar eru þær að ég má ekki lesa
eða heyra neinar fréttir. Það þýðir að það
verður ekki kveikt á sjónvarpinu fyrr
en réttarhöldunum lýkur.
Maður hefur heyrt af grimmum og óvana-
legum refsingum en ég hef aldrei vitað til
þess að þeim sé beitt á kviðdóminn.
Og maka
þeirra.
Ég er að reyna
að brenna
aðeins af
beikoninu!
Einhverjir supu hveljur þegar Hann-es Hólmsteinn Gissurarson mætti í morgunútvarp Rásar 2 og viðurkenndi
fyrir alþjóð að hann ætti sök á bankahrun-
inu rétt eins og flestir landar hans. Nema
auðvitað Davíð Oddsson. Til sama ráðs
greip Kjartan Gunnarsson einhverju sinni
þegar hann sagði að hann hefði átt að hlusta
á Davíð. Auðvitað hlaut Hannes bágt fyrir
þessi orð sín enda ekki í neinum takti við
raunveruleikann. Hannes hefur oft verið
kallaður hugmyndasmiður hrunsins. Hann
hafi ásamt skrímsladeild Sjálfstæðisflokks-
ins teiknað upp efnahagslandslagið, hverjir
ættu að eiga bankana og hverjir ekki.
Allt gott og blessað. Hugmynda-
fræði Hannesar varð gjaldþrota í
einni svipan þegar Davíð tók Glitni
yfir. Í kjölfarið hrökkluðust hinir
innvígðu og innmúruðu frá völd-
um með bálköstum og búsáhöld-
um. En Hannes á þó að fá að mótmæla, sá
réttur er heilagur hverjum manni eins og
aðgerðasinnar hafa margoft talað um á
vefsíðum sínum.
Mér fannst ómaklegt af blogg-mótmæl-
endum að hrekja Hannes á braut, reka
hann inn í Alþingishúsið með bakpoka og
öðrum lauslegum munum. Því þegar öllu er
á botninn hvolft er Hannes bara háskóla-
kennari. Davíð var forsætisráðherra, utan-
ríkisráðherra og seðlabankastjóri, maður
með völd. Hann fékk engu að síður að
standa óáreittur niðri á Austurvelli þegar
hinum margumtöluðu Icesave-samningum
var mótmælt af inDefence-hópnum.
Kannski þorðu menn ekki að henda neinu í
Davíð, báru of mikla virðingu fyrir honum
heldur kusu frekar að bíða eftir bakara-
drengnum og hengja hann fyrir smiðinn.
Kannski bara svolítið einkennandi fyrir
bloggsamfélagið eða hvað?
Bakaradrengurinn og smiðurinn
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
GunnarssonER OLIVER!
Í ÞINNI
FJÖLSKYLDU?
Leitin að OLIVER! hefst á
Opnu húsi á laugardaginn
Það verður mikið fjör þegar við galopnum
Þjóðleikhúsið á laugardaginn kl. 13-16.
Þá byrjar líka leitin að rúmlega 20 strákum á aldrinum
8–13 ára til að fara með hlutverk í söngleiknum OLIVER!
Skráningin í áheyrnarprufurnar fer fram á Opna húsinu.
Fjögurra sýninga leikhúskort
kostar aðeins kr.9.900
SÝNINGAR Á NÆSTUNNI!
KARDEMOMMUBÆRINN Sunnudaginn 30. ágúst.
UTAN GÁTTA Föstudaginn 4. september, til styrktar Grensásdeild.
FRIDA ... viva la vida Frumsýning föstudaginn 11. september.
FÁÐU ÞÉR KORT!
Hringdu í síma 551 1200 eða smelltu þér á leikhusid.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ