Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 24
4 föstudagur 28. ágúst Saga Sigurðar- dóttir ljósmyndari hefur tekið myndir fyrir mörg af virtustu tísku- blöðum Evrópu. Í viðtali við Föstudag segir hún frá uppvextinum, náminu í London, „vintage“- æðinu og framtíðar- draumunum. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Arnþór Birkisson M amma og pabbi gáfu mér fyrstu myndavélina þeg ar ég var átta ára, l it la Canon-filmuvél. Þá tók ég aðal- lega myndir af blómum, landslag- inu og systkinum mínum og ég á þessar myndir enn þá í svörtum ruslapoka,“ segir Saga Sigurðar- dóttir brosandi spurð hvenær ljósmyndaáhuginn kviknaði. „Foreldrar mínir, Hanna María Pétursdóttir og Sigurður Árni Þórðarson, eru bæði prestar. Ég fæddist fyrir norðan, en bjó svo í Skálholti í fimm ár, á Þingvöll- um í fimm ár og svo rétt hjá Kirkjubæjarklaustri í Ásum í Skaftártungu þar til við fluttum í bæinn þegar ég var í níunda bekk. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa búið í sveit og held að það hafi mótað mig mikið sem per- sónu að geta leikið mér endalaust úti í náttúrunni,“ útskýrir Saga og segir flutningana ekki hafa reynst erfiða. „Ég upplifði mig aldrei ein- mana og gat alltaf haft ofan af fyrir sjálfri mér. Ég var oft í mínum eigin heimi og las rosa- lega mikið. Ég var mikið nörd og fannst gaman að grúska, las heimspekibækur, Íslendingasög- urnar og þegar ég var tíu ára fékk ég hvatningarverðlaun forseta Ís- lands fyrir að vera svona mikill lestrarhestur,“ segir hún og hlær. Spurð hvort hún hafi snemma ákveðið að verða ljósmyndari segir hún svo ekki vera. „Ég var alltaf að skipta um skoðun á því hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór. Fyrst langaði mig að verða dýralæknir, svo kennari og á tímabili langaði mig mikið að verða stjarneðlisfræðingur. Þegar ég var komin í Hagaskóla ákvað ég að verða læknir og fór á stærð- fræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík í kjölfarið. Eftir eitt og hálft ár var ég samt ekki að finna mig og þótt allir vinir mínir væru í MR fékk ég einhverja hugdettu og ákvað að skipta yfir í Versló. Það reyndist svo vera besta ákvörðun lífs míns því þar uppgötvaði ég að ég vildi verða ljósmyndari. Ég byrjaði í ljósmyndanefnd og var svo í Verslunarskólablaðinu á síð- asta árinu mínu. Ef krakkar vilja verða ljósmyndarar í dag mæli ég eindregið með því, því það er besta reynsla sem ég hefði getað fengið,“ segir hún. TIL LONDON „Eftir að ég útskrifaðist úr Versló fór ég í eitt ár í listfræði í Há- skólanum því mér fannst ég ekki vera tilbúin að fara út strax. Eftir það ákvað ég að fara út í London College of Fashion og þar er ég á braut sem heitir Fashion Photo- graphy og sérhæfir sig í tískuljós- myndun,“ útskýrir Saga sem er nú stödd hér á landi í fríi. Meðfram námi vinnur Saga í fatabúðinni Vintage Heaven á Brick Lane. „Ég var alltaf að vinna í Spúútnik og Rokki og rósum hérna heima svo það var frekar auðvelt að fá vinnu úti þar sem ég var með smá reynslu,“ segir hún og játar að vera forfallinn „vintage“-fata-safnari, „Í búðinni fæst til dæmis „vintage“ Dior, Pucci og Diane Von Furstenberg. Kallinn sem á búðina safnar líka gömlum antík-höttum svo þetta er algjör „vintage“-paradís,“ segir hún brosandi. Saga er með Ella Egilssyni, teiknara og söngvara í hljómsveit- inni Steed Lord, en þau kynntust fyrir þremur árum þegar Elli var að vinna í Nakta apanum og Saga í Rokki og rósum. Meðlimir Steed Lord fluttu nýverið til Los Ang- eles þar sem hljómsveitin mun ferðast um Bandaríkin á kom- andi mánuðum, en Saga segir það ekki setja strik í reikninginn. „Elli ætlar að búa í London, en vera með annan fótinn í LA og verð- ur þar næsta mánuðinn. Hann er alltaf að fljúga og taka DJ-gigg víða í Evrópu svo ég er orðin vön því að við séum ekki alltaf saman. Maður venst bara þessum lífsstíl,“ segir hún. MYNDAR FYRIR TÍSKUBLÖÐ Þótt Saga hafi ekki lokið námi hefur hún nú þegar myndað fyrir heimsþekkt tískublöð á borð við Glamour og Elle. Spurð hvern- ig það hafi komið til segir hún margt spila þar inn í. „Ég er búin að kynnast æðislegu fólki sem er með puttana í bransanum og hefur hjálpað mér mikið. Kannski hafa einhverjir bent á mig frá öðrum blöðum sem ég hef unnið fyrir, en ég hef líka fengið verk- efni í gegnum bloggið mitt,“ segir Saga sem heldur úti bloggsíðunni saganendalausa.blogspot.com. „Ég hef reyndar líka fengið verk- efni út á það að klæða mig öðru- vísi. Eitt sinn lenti ég í því að það var stelpa sem stoppaði mig úti á götu og spurði mig út í fötin sem ég var í, en þá kom í ljós að hún var með tískublað sem ég tók svo myndir fyrir,“ segir hún og bros- ir. Saga tekur myndir á filmu og framkallar sjálf, en spurð um sinn persónulega stíl segir hún hann enn vera að þróast. „Mér finnst ég enn þá svo ung og vera að mót- ast, en það má kannski segja að minn stíll sé svolítið ævintýra- legur. Ég fæ innblástur frá list al- mennt og finnst frábært að fara á listasýningar, sitja á kaffihús- um og grúska í listaverkabókum. Ég vafra líka um á netinu og fer örugglega fjórum til fimm sinn- um í viku að tékka hvort það séu komin út ný tískublöð. Ég er al- gjörlega heltekin af ljósmyndun- ALVEG HELTEKIN AF LJÓSMY Eftirsótt Saga hefur getið sér gott orð sem ljósmyndari og tekið myndir fyrir mörg af virtustu tískublöðum Evrópu, en hún fær mörg verkefni í gegnum bloggsíðu sína saganendalausa.blogspot.com ✽ ba k v ið tjö ldi n Stjörnumerki: Vog. Uppáhaldsmatur: Indverskur. Uppáhaldsdrykkur: Kaffi. Uppáhaldsverslun: Á Íslandi er það Kronkron, Einvera, Fabelhaft, Rokk og rósir, Spúútnik og Aftur. Diskurinn í spilar- anum: Mjög misjafnt hvað ég hlusta á frá degi til dags, í dag hlust- aði ég á Kings of Leon, Santogold, Fever Ray og The Gossip. Bókin á náttborðinu: Hús andanna og Love Magazine. Mesta dekrið: Kaupa nýja skó! Draumafríið: Einhvers staðar þar sem er gott veður, falleg náttúra með fólk- inu sem ég elska. Líkamsræktin: Of sein, hlaupandi á háum hælum í lestina á morgnana. Hverju myndirðu sleppa til að spara? Ljósmyndabókum og tímaritum. Áhrifavaldurinn: Fjölskylda mín.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.