Fréttablaðið - 28.08.2009, Síða 26
6 föstudagur 28. ágúst
tíðin
✽ hár og fegurð
H ártískan fram undan er mjög skemmtileg. Það eru nokkrar
klippingar sem hafa slegið í gegn
á árinu 2008 og nokkrar af þeim
eru enn þá inni á komandi vetri,
en kannski með smá „tvisti“, segir
Ásgeir Hjartarson, hárgreiðslu-
meistari og eigandi Dark-Super-
nova, um hártískuna framundan.
„Bob“-klippingin verður áfram
inni, en hún er ein af þeim klipp-
ingum sem hafa slegið hvað mest
í gegn á árunum 2007-2008. Aðeins
eitt nafn kemur til greina þegar
hún er annars vegar og er það að
sjálfsögðu drottningin sjálf, Vic-
toria Beckham. En þar sem þessi
klipping hefur tröllriðið öllu, gerir
það að verkum að hún er ekki
eins „unique“ og hún var og ættu
þær sem eru enn þá með hana að
reyna að „messa“ hana aðeins upp
og jafnvel nota sléttujárnið til að
ná fram mjúkum liðum,“ útskýrir
Ásgeir. „Önnur klipping sem held-
ur velli er svokölluð „Pixie“-klipp-
ing. Þær sem hafa skartað henni
eru meðal annars Agyness Deyn,
Victoria Beckham, Sharon Stone
og Katie Holmes. Allar konur sem
hafa sjálfstraust í svona klippingu
ættu að drífa í að láta klippa sig,
en þær sem eru með frekar breitt
andlit ættu ekki að fara í hana,“
segir hann. „Sítt hár er einn-
ig mjög áberandi, en það verð-
ur að vera vel klippt og stytturn-
ar í hárinu þurfa að vera vel stað-
settar svo að þú fáir þetta „sexy“
flæðandi hár sem flestar konur
vilja. Það er samt sama hvernig
tískan er, það er alltaf lykilatriði
að klippa eftir hárgerð og lífsstíl
hvers og eins.“ -ag
Ásgeir Hjartarson hárgreiðslumeistari segir frá hártískunni í haust:
Bob- og Pixie-klippingar
áfram í tísku í vetur
Síðhærð Sienna Miller er þekkt fyrir síða
ljósa hárið sitt sem hún skiptir gjarnan í
miðju.
Flott Sharon Stone hefur leikið sér með
stutt hár sitt upp á síðkastið og ber það
vel.
MORGUNMATURINN: Ég mæli með
beyglu og frábæru kaffi á Tinderbox,
á Ingram Street.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Það eru
mjög rómantískir veitingastaðir á
Italian Square við Ingram Street.
Uppáhaldið mitt er samt Ashoka á
Ashton Lane í West End, alveg frá-
bær indverskur staður.
UPPÁHALDSVERSLUN: Glasgow
er snilldar verslunarborg með allar
helstu verslanirnar, þó að pundið sé
alveg svimandi hátt þá getur verið
töluvert ódýrara að versla þar en hér
heima. Uppáhaldsfataverslanirn-
ar mínar eru New Look og Primark.
New Look er með mikið úrval
af fatnaði og skóm. Pri-
mark er náttúrlega alveg
sérstakt fyrirbæri og ég
hef verslað óheyrilega
mikið þar. Maður þarf hins
vegar að setja upp rönt-
gengleraugun til að vinsa
út gersemarnar og eiga
nægan tíma þar inni. Ef
farið er í verslunarferð
þá eru Sauciehall, Bu-
chanan Street og Argyle
Street aðalverslunargöturnar. Dýrari
verslanir má finna á Ingram Street.
BEST AÐ EYÐA DEGINUM: Fyrir
þá sem eru í verslunarferð í Glas-
gow þá mæli ég með að byrja dag-
inn á að versla í helstu verslunargöt-
unum sem eru nefndar hér að ofan. Í
hádeginu er yndislegt að fara á Will-
ow Tea Room á Buchanan Street og
fá sér breskt te sem samanstendur
af skonsum, eggja- og gúrkusam-
lokum og fleiru sætu á þriggja hæða
diski, frábær stemning. Stundum er
gott að komast í annað umhverfi og
þá finnst okkur vinkonunum yndis-
legt að hverfa í West End og rölta þar
um, þar má finna second hand-
búðir og lítil kaffihús, þá er
tilvalið að fara í bakaleið-
inni í Kelvingrove Museum
þar sem nóta bene er frír
aðgangur. Til að toppa
góðan dag væri ind-
verskur matur á Ashoka
á Aston Lane tilval-
inn og svo djamm
á skemmti-
stöðunum
þar í kring.
GLASGOW
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir söngkona
BORGIN
mín
Festina-Candino Watch Ltd candino.com
Renzo
is wearing a model out of
our Classic collection
Renzo
is wearing a model out of
our Classic llection
Svöl Rihanna hefur vakið
mikla athygli síðustu mánuði
fyrir síbreytilegt stutt hár.
AUGNSKUGGAR OG KINNALITUR Í EINU VESKI Clinique hefur nú sett á mark-
að flotta haustlínu í glæsilegu silfurlituðu veski. Í veskinu eru þrír augnskuggar og kinnalit-
ur ásamt burstum, en hægt er að velja þrjár mismunandi litasamsetningar. Þessi nýjung
fæst aðeins í takmarkaðan tíma svo það er um að gera að tryggja sér eintak sem fyrst.