Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 33

Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 33
FÖSTUDAGUR 28. ágúst 2009 21 Árviss útimarkaður verður hald- inn í Laugardal á morgun. Útimarkaðurinn er orðinn árviss síðsumarviðburður í hverfunum sem umlykja Laugardal og er nú haldinn í sjöunda sinn. Að mark- aðnum standa íbúar í Laugardals- hverfunum. Á hverju ári er honum fundinn nýr staður á einhverju áhugaverðu opnu svæði innan Laugardalshverfanna þriggja en í þetta sinn verður hann haldinn fyrir neðan brekkuna í Ljósheim- um. Markaðurinn stendur frá klukk- an 11 til 15 og mun þar kenna ým- issa grasa á söluborðum íbúa. Þar má nefna kompudót, föt, húsgögn, handverk, sultur og nýsprottið grænmeti. Hresst hæfileikafólk úr hverfunum í kring ætlar að troða upp og skemmta með leik og söng. Allir eru velkomnir hvort sem þeir vilja selja, kaupa, stíga á stokk eða bara njóta stemningarinnar. Í anda vistverndar eru allir hvattir til þess að sækja markaðinn gang- andi, hjólandi eða með strætó. Hægt að gera góð kaup í Laugardal Í FYRRA Íbúar hafa tekið útimarkaðnum fagnandi og í fyrra sóttu hann vel á annað þúsund manns. MYND/ÚR EINKASAFNI Söfnun ritfanga og stílabóka hófst í gær í Kringlunni og heldur áfram í dag. Tilgangurinn er að styrkja grunnskólabörn sem á þurfa að halda vegna fjárhagserfiðleika for- eldra. Skólastoðin stendur að söfn- uninni en það er framtak nokk- urra einstaklinga sem láta sig hag skólabarna varða. Þeir verða fyrir framan verslunina Kúltúr á 2. hæð Kringlunnar milli klukkan 13 og 19 í dag. Óskað er eftir pennum, blýönt- um, trélitum, stílabókum, gráðu- bogum, skærum, dósayddurum, reglustikum, plastvösum og öðru því sem gagnast gæti skólabörn- um. Þeim sem vilja leggja átakinu lið með fjárframlögum er bent á bankareikning átaksins nr. 512-14- 400999, kt. er 070183-3909. Í kjöl- farið verða settir saman ritfanga- pakkar sem verður úthlutað í sam- starfi við Fjölskylduhjálp Íslands eftir helgina. Auk þess að safna ritföngum mun Skólastoðin taka við notuðum námsbókum fyrir framhaldsskóla- nema sem verður einnig dreift í samstarfi við Fjölskylduhjálpina. „Við höfum fengið mjög jákvæð- ar undirtektir og nokkur fyrir- tæki hafa þegar lagt fram gjafir,“ sagði Alma Tryggvadóttir, einn af forsprökkum Skólastoðar. - gun Safna skóla- varningi SKÓLAVÖRUR Sumir eiga vel með farna hluti sem þeir mega missa. Í tilefni þess að 140 ár eru liðin frá fæðingu Haraldar Níelssonar og öld frá útkomu biblíuþýðingar hans, verður efnt til sýningar og málþings um Harald og konu hans, Aðalbjörgu Sigurðardóttur, í Amt- bókasafninu á Akureyri laugar- daginn 29. ágúst 2009. Sýningin, sem kallast Trúmaður á tímamótum, verður opnuð klukk- an 14 og málþingið hefst klukkan 14.15. Stjórnandi málþingsins verð- ur Þórunn Rafnar. Erindi flytja Jónas H. Haralz, Pétur Péturs- son prófessor og Heiða Björk Vil- hjálmsdóttir. Umræður verða svo í lokin og málþinginu lýkur klukkan 17. Kaffiveitingar verða í boði. Sýningin um þessi heiðurshjón verður síðan opin á afgreiðslutíma Amtbókasafnsins út september. Trúmaður á tímamótum AKUREYRI Málþing verður haldið í Amt- bókasafninu á laugardag. Flottar töskur í skólann ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 47 08 4 08 /0 9 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.