Fréttablaðið - 28.08.2009, Side 42
30 28. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Þóra Björg Helgadóttir, markvörður. ...................................................................................................6
Spilaði af öryggi og var vel vakandi í markinu þegar Norðmenn reyndu að stinga boltanum inn fyrir. Gat
lítið gert í markinu.
Erna Björk Sigurðardóttir, hægri bakvörður. ......................................................................................6
Spilaði vel og flestar hennar aðgerðir voru framkvæmdar af miklu öryggi og yfirvegun. Var tekin útaf til
þess að breyta um taktík og engu öðru.
Katrín Jónsdóttir, miðvörður. .................................................................................................................6
Var gríðarlega grimm í öllum návígum en lenti nokkrum sinnum í vandræðum maður á mann. Fór þetta
þó á baráttu og reynslu og gaf liðinu mikið með góðri stjórn á vörninni.
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, miðvörður.............................................................................................. 7
Lék vel að vanda, vann marga bolta og spilaði þeim vel frá sér. Hún kæfði hvað eftir annað lofandi upp-
hlaup norska liðsins þegar þær voru að gerast ágengar nálægt teignum.
Ólína Guðrún Viðarsdóttir, vinstri bakvörður. ...................................................................................8
Lék mjög vel, hjálpaði mikið til í sókninni og vann vel í vörninni. Fór mikinn í mörgum flottum sóknum í
seinni hálfleik. Var besti maður íslenska liðsins í leiknum.
Edda Garðarsdóttir, varnartengiliður ...................................................................................................6
Gekk mun betur en í síðasta leik en tókst þó ekki nægilega vel upp í sendingunum. Vann vel fyrir liðið en
íslenska liðið þarf meira frá henni sóknarlega séð.
Dóra Stefánsdóttir, varnartengiliður. .................................................................................................. 5
Byrjaði leikinn af miklum krafti og átti frábæra stungusendingu eftir 12 sekúndur. Náði ekki að halda út og
það dró af henni eftir því sem leið á leikinn.
Dóra María Lárusdóttir, hægri kantmaður. ....................................................................................... 6
Átti hættulegt skot í stöngina í upphafi leiks en var of lítið í boltanum og skapaði því ekki mikið. Það
heppnaðist vel að færa hana inn á miðjuna enda komst hún þá meira í boltann.
Sara Björk Gunnarsdóttir, sóknartengiliður ....................................................................................... 5
Vann vel eins og vanalega en var oft of vilt í sínum sendingum og sendingarvali. Annan leikinn í röð kom
hún betur út þegar hún var færð í stöðu varnartengiliðs.
Hólmfríður Magnúsdóttir, vinstri kantmaður ...................................................................................6
Gat skorað eftir 12 sekúndur en sinnti varnarvinnunni ekki nægilega vel í fyrri hálfleik sem var slakur hjá
henni. Kom grimm inn í þann seinni og var oft nálægt því að skapa mark með góðum hlaupum. Þarf
helst að fara að spila tvo góða hálfleiki í sama leiknum og er enn að reyna of erfiða hluti.
Margrét Lára Viðarsdóttir, framherji. .................................................................................................. 5
Reyndi að koma sér inn í leikinn en var oft fyrir vikið alltof langt frá markinu til að skapa eitthvað. Hún var
annars í strangri gæslu og komst lítið áleiðis á móti góðum miðvörðum norska liðsins.
Varamenn:
Rakel Logadóttir kom inn á fyrir Dóru Stefánsdóttur á 59. mínútu ............................................ 6
Komst vel frá sinni innkomu, ógnaði með hraða sínum og hélt breiddinni vel. Íslenska liðið tók meiri
áhættur í sóknarleiknum eftir innkomu hennar og það kom vel út.
Rakel Hönnudóttir kom inn á fyrir Ernu Björk Sigurðardóttur á 82. mínútu ............................. -
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
Lahti Stadium. Áh: 1.399
Ísland Noregur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–14 (3–5)
Varin skot Þóra 4 – Hjelmseth 2
Horn 5-4
Aukaspyrnur fengnar 6-8
Rangstöður 7-1
0-1 Cecilie Pedersen (45.)
0-1
Cristina Dorcioman (7)
Fimleikadeild Fylkis
Innritun í alla hópa Fimleikadeildar Fylkis fer fram mánudaginn
31. ágúst og þriðjudaginn 1. september kl. 17-20 í Fylkishöll.
Ganga þarf frá greiðslu við innritun.
Grunn- og framhaldshópar fyrir stúlkur fæddar 2004 og eldri.
Grunnhópar fyrir drengi fædda 2002-2003.
Íþróttaskóli Fylkis
Hefst laugardaginn 12. september í íþróttahúsi Árbæjarskóla.
Börn fædd 2005-2006 kl. 9.30-10.30
Börn fædd 2003-2004 kl. 10.30-11.30
Greitt er við innritun í fyrsta tíma kr. 11.000.- fyrir 12 skipti.
Kennari er Alda Hanna Hauksdóttir
EM 2009 - B-riðill
Frakkland - Þýskaland 1-5
0-1 Grings (9.), 0-2 Krahn (17.), 0-3 Behringer
(45.), 0-4 Bresonik (47.), 1-4 Thiney (51.), 1-5
Laudehr (91.).
STAÐAN
Þýskaland 2 2 0 0 9-1 6
Frakkland 2 1 0 1 4-6 3
Noregur 2 1 0 1 1-4 3
Ísland 2 0 0 2 1-4 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið á ekki lengur möguleika á
því að komast í átta liða úrslitin
á Evrópumótinu í Finnlandi eftir
ósanngjarnt 0-1 tap á móti Nor-
egi í Lahti í gær. Lukkan var ekki
með íslenska liðinu sem komst oft
nálægt því að skora en þurfti síðan
að sætta sig við að fá á sig mark
á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks.
Það mark kom upp úr litlu sem
engu en átti eftir að ráða úrslitum í
leiknum og sjá til þess að stelpurn-
ar okkar eru á heimleið frá Finn-
landi eftir lokaleikinn í riðlinum
gegn Þjóðverjum á sunnudag.
Það hefði auðveldlega getað
verið orðið 2-0 fyrir Ísland eftir
tólf mínútur. Hólmfríður Magnús-
dóttir var sloppin í gegn eftir
aðeins 12 sekúndna leik eftir frá-
bæra stungusendingu frá Dóru
Stefánsdóttur, en skot hennar fór
rétt framhjá. Eftir 12 mínútur
átti Dóra María Lárusdóttir síðan
fyrirgjöf eftir laglega sókn sem
endaði í innanverðri stönginni
og skoppaði fyrir framan norska
markið. Þar munaði ekki mörgum
millimetrum.
Íslensku stelpurnar voru reynd-
ar of oft að tapa boltanum illa
og gefa Norðmönnum tækifæri
á skyndisóknum, en þegar leið á
hálfleikinn var það komið í betra
lag. Isabell Herlovsen var í góðri
gæslu Guðrúnar Sóleyjar Gunn-
arsdóttur en norska liðið fór
mikið upp vinstri kantinn í gegn-
um Solveigu Gulbrandsen. Þá var
Cecilie Pedersen, sem var þarna
að byrja sinn fyrsta landsleik, allt-
af að ógna því að sleppa í gegnum
íslensku vörnina sem margoft náði
að stoppa gegnumbrot hennar á
síðustu stundu. Það átti þó eftir að
klikka á skelfilegum tímapunkti.
Fyrri hálfleikur var að renna
út þegar reiðarslagið kom. Cecilie
Pedersen fékk langa sendingu frá
bakverðinum Toril Akerhaugen,
sneri laglega af sér Katrínu Jóns-
dóttur, stakk sér inn í teig og skor-
aði af öryggi. Lukkan ætlaði ekki
að vera með íslenska liðinu annan
leikinn í röð.
Leikurinn var mun opnari í
seinni hálfleiknum. Norðmenn
fengu góð færi í upphafi þar sem
íslenska liðið tók meiri áhættur í
leik sínum. Íslenska liðið óx eftir
því sem leið á hálfleikinn og eftir
klukkutíma leik munaði ítrekað
litlu hjá íslenska liðinu eftir fjórar
flottar sóknir á stuttum tíma.
Íslenska liðið lék mun betur en á
móti Frakklandi og átti mjög góðan
seinni hálfleik þrátt fyrir áfallið í
lok þess fyrri. Liðið sofnaði hins
vegar á verðinum í eitt sekúndu-
brot í lok fyrir hálfleiks og það
reyndist dýrkeypt. Spilamennskan
var þó til fyrirmyndar og stelpurn-
ar áttu, án nokkurs vafa, skilið stig
úr þessum leik í Lahti í gær.
Leikirnir verða bara þrír
Lukkan var ekki með stelpunum okkar, sem töpuðu 0-1 fyrir Noregi þrátt fyrir
fínan leik og hetjulega baráttu í gær. Vegna tapsins endar Ísland óhjákvæmi-
lega í neðsta sæti riðilsins og kemst því ekki áfram í fjórðungsúrslit keppninnar.
GEKK EKKI Margrét Lára var í strangri gæslu norsku varnarmannanna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/OSSI AHOLA
EM Í FINNLANDI
ÓSKAR ÓFEIGUR JÓNSSON
skrifar frá Tampere
ooj@frettabladid.is
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson, landsliðsþjálfari gat ekki
gagnrýnt frammistöðu stelpnanna
sinna eftir tapið á móti Noregi í
gær. „Það er svekkjandi að fá ekk-
ert út úr leiknum því mér fannst
við spila nokkuð vel og þar af spil-
uðum við mjög vel í seinni hálf-
leik,“ sagði hann eftir leikinn.
„Ég var fúll með að vera undir
í hálfleik því við vorum búnar að
vera alveg jafngóðar og þær. Við
höfðum jafnvel skapað fleiri og
betri færi. Það er mikið svekkelsi.
Það hefði verið auðvelt fyrir liðið
að brotna niður þá en Ísland kom
út í seinni hálfleik, spilaði virki-
lega vel og lagði allt sitt í leikinn,“
sagði Sigurður Ragnar og bætti
við:
„Við náðum að setja Norðmenn-
ina undir pressu en það vantaði að
skapa pínulítið opnari færi til þess
að ná að refsa þeim. Leikmenn
gáfu allt sem þær áttu í leikinn og
meðan að svo er þá verður maður
að vera ánægður með leikinn.“
Sigurmarkið kom á skelfilegum
tíma rétt fyrir hálfleik. „Ég veit
ekki hvort þetta var einbeitingar-
leysi eða hvort það vantaði völdun.
Hún nær að snúa á Kötu í mark-
inu og komast inn fyrir. Hún gerði
þetta mjög vel og kláraði færið sitt
vel. Við eigum ekki að leyfa henni
að gera það. Það má segja að það
hafi komið á óvart að hún hafi byrj-
að inni á því hún var valin óvænt í
norska hópinn. Hún á bara að baki
19 ára landsleiki en við vissum að
hún var fljót og hún stóð sig vel í
leiknum,“ sagði Sigurður Ragn-
ar um mann leiksins, hina 18 ára
gömlu Cecilie Pedersen.
„Mér fannst þessi leikur mun
betur spilaður af okkar hálfu held-
ur en leikurinn á móti Frökkum.
Við getum tekið það með okkur og
við þurfum bara að halda áfram að
bæta okkur. Þetta er búin að vera
fín reynsla að spila á móti gríðar-
lega sterkum liðum á þessu móti.
Það verður ekkert léttari leikur
næst, en vonandi getum við hald-
ið áfram að bæta okkar leik því
þannig nálgumst við þessi lið, á
endanum stöndum við þeim jafn-
fætis og vonandi framar.“
- óój
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari var ánægður með frammistöðuna:
Svekkjandi að fá ekkert úr leiknum
SIGURÐUR RAGNAR Landsliðsþjálfarinn
var ánægður með leikmenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/OSSI AHOLA
Þóra Björg Helgadóttir og Edda Garðarsdóttir voru stoltar af
frammistöðu liðsins en jafnframt svekktar með að fá ekki
stig og halda voninni lifandi um að komast áfram í átta
liða úrslitin.
„Við stóðum okkur vel og það er erfitt að vera svekktur.
Við erum samt drullusvekktar með að þetta sé búið hjá
okkur en það var ekki mikið hægt að finna að okkar leik
í dag. Þetta var ekki eins og eftir Frakkaleikinn þar sem
að okkur fannst við hafa brugðist,“ sagði Þóra.
„Eftir Frakkaleikinn fannst okkur að það hallaði á
okkur í dómgæslunni og öll vafaatriði voru að detta
þeim megin. Þetta var baráttuleikur og við vorum að
spila þann fótbolta sem við eigum að og getum spilað.
Mér fannst það frábært en síðan erum við ekki að ná
að klára sóknirnar okkar,“ sagði Edda.
Þær voru báðar mjög ánægðar með hvernig liðið
kom til baka eftir að hafa fengið á sig markið í lok
fyrri hálfleiks. „Það var aðdáunarvert að sjá hvernig
við létum þetta mark ekki hafa áhrif á okkur. Mér
fannst við koma tvíefldar til leiks,“ sagði Þóra.
„Það var rosalega að fá þennan löðrung rétt fyrir hálfleik.
Það sýndi bara hvaða karakter þetta lið hefur að koma út með
hökuna upp og baráttuna í lagi. Það er svekkjandi að skora
ekki en maður fær ekki stig fyrir að halda boltanum því
maður þarf að fá mörk til þess að vinna leiki,“ sagði
Edda.
Þóra segir norska liðið hafa viðurkennt að þær hafi
haft heppnina með sér. „Þær voru fegnar í lokin eftir
að hafa verið með þvílíkar yfirlýsingar fyrir leikinn.
Þær töluðu um að við værum ekkert nema tuddar og
ég held að við höfum komið þeim vel á óvart með
okkar spilamennsku. Þær voru dauðlifandi fegnar og
telja sig heppnar,“ sagði Þóra.
„Við getum verið stoltar eftir leikinn því þær
fengu bara eitt gott færi í leiknum og skoruðu úr
því. Það var lítið við því að gera. Spilamennskan
var til fyrirmyndar en okkur vantar að taka loka-
skrefið í sókninni.“
ÞÓRA OG EDDA: ÁNÆGÐAR MEÐ FRAMMISTÖÐU OG BARÁTTU ÍSLENSKA LIÐSINS
Þær voru dauðlifandi fegnar og telja sig heppnar
> Arnór þarf í aðgerð
Landsliðsmaðurinn Arnór Smárason mun gangast undir
aðgerð í næstu viku vegna meiðsla á vöðva aftan í læri.
Hann hefur ekkert getað leikið með liði sínu,
hollenska úrvalsdeildarfélaginu Heerenveen,
vegna þessa í haust. Það tók langan tíma
að fá úr því skorið hvers eðlis meiðslin
væru en eftir að hann gekkst undir
rannsóknir hjá belgískum sér-
fræðingi komu meiðslin í ljós.
Hann verður frá í 6-8 vikur
vegna aðgerðarinnar, að minnsta
kosti. Greint var frá þessu á heimasíðu
Heerenveen í gær.