Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 28.08.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur Í dag er föstudagurinn 28. ágúst 2009, 240. dagur ársins. 5.58 13.29 20.57 5.36 13.14 20.49 Ég heiti Brynhildur og er Björns-dóttir. Ég er kölluð Brynhild- ur, ekki Björnsdóttir. Fornafn- ið mitt er það sem ég kynni mig með, eftirnafnið greinir mig frá öðrum Brynhildum og tengir mig við fornafnið hans pabba míns eins og sumir tengja sig við for- nafn mömmu sinnar. Ég hef ekk- ert ættarnafn sem hefur tengt fjölskylduna saman mann fram af manni og merkt hana fyrir öðrum, tilheyri engu klani sem kennir sig við stað og ber ekki starfsheiti for- feðra minna í marga ættliði eins og tíðkast í öðrum löndum, með ættarnöfnum eins og Baker, Cart- er og Schneider. Ég er reyndar komin af Axlar-Birni og það væri forvitnilegt að vita hvernig starfs- heiti hans hefði lagað sig að nafna- hefðum. Brynhildur Fjöldmorð, til dæmis. NAFNAHEFÐ okkar Íslendinga er frábrugðin nafnahefð flestra annarra. Það eru ekki margar þjóð- ir sem hafa fornöfn í jafnmiklum hávegum og við. Forsetinn heitir Ólafur Ragnar, ekki mr. Grimsson, konan hans heitir Dorrit, fjármála- ráðherrann heitir Steingrímur Joð. Pabbi hans heitir Sigfús. Einstöku sinnum er nauðsynlegt að bæta eftirnafninu við, einna helst þegar margir bera sama fornafnið í sama hópi. Annars notum við Íslendingar flestir fornöfnin okkar og fornöfn foreldra okkar til að kynna okkur og kalla hvert á annað. ÉG HEF reyndar verið kölluð Ms Bjornsdottir. Á flugmiðum, hótel- bókunum og þegar ég hef pantað eitthvað á netinu. Í öllum tilfell- um þegar ég er í samskiptum við útlönd. Ég hef náttúrulega líka verið kölluð Ms Bjoersdotter, Miss Beonsdotir og útgáfurnar eru fleiri og skrautlegri. EN ÞAÐ er ekki ég. Brynhildur, það er ég. Íslendingar heita for- nafninu sínu og bera eftirnafnið, svo einfalt er það. Og heimurinn fer svo hratt minnkandi að ég er viss um að bráðum verður nóg að skrifa Brynhildur B. ÞESS VEGNA varð ég alveg óskap- lega glöð þegar ég sá stelpurnar okkar á vellinum í Tampere um daginn. Glöð yfir þeim, velgengni þeirra, orkunni sem stafar af þeim, treyjunum sem þær klædd- ust og síðast en ekki síst: nöfnun- um þeirra. Hólmfríður í staðinn fyrir Magnusdottir, Margrét Lára í staðinn fyrir Vidarsdottir. Falleg íslensk fornöfn, nöfnin sem við, aðdáendur þeirra, þekkjum þær með, skrifuð á íslensku. ÍSLENSKIR stafir, íslensk hefð, íslenskar stelpur, flottastar í heimi. Nöfnin okkar UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533 5101 INNANHÚSSTÍLISTANÁM H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is KING KOILAmerískt heilsurúm(Queen size 153x203)FRÁ kr. 99.850 25-70% AFSLÁTTUR! HEILSUKODDA R 30% AFSLÁTTUR! SVEFNSÓFAR 25-30% AFSLÁTTUR! SÆNGURFATN AÐUR 30% AFSLÁT TUR!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.