Spegillinn - 01.09.1947, Blaðsíða 8
15D SPEGILLINN
EFSTÁ BAUGI
Innan um hryðjuverkafregnirnar frá Púnjöbu og Súru-
bæju kemur sú fregn eins og blessaður sólargeisli i rosanum,
að Bretakóngur hafi nú samþykkt væntanlegt hjónaband
dóttur sinnar og Filpusar, og var ekki trútt um, að eldri kon-
um og öðrum konungssinnurn félli steinn frá hjarta, því að
þess hafði verið beðið með spenningi, hvort kóngur myndi
nú makka rétt og ekki fara að koma með eitthvað rövl um,
að Filpus væri ekki nógu loðinn um lófana o. s. frv., þið vit-
ið, allt þetta, sem hægt er að finna .iðlum til foráttu. En
svo blessanlega rættist úr þessu, að jöfurr ákvað auk heldur
strax brúðkaupsdaginn sjálfur — hann verður 20. nóvem-
ber nk., því að alvaldur mun hafa hugsað sem svo, að ekki
veitti af einhverjum hátíðabrigðum, þegar Lundúnaþokan
er upp á sitt versta, og matarskammturinn hefur enn verið
minnkaður, svo að líklega verður þetta bara kaffiveizla. Vér
getum hér um afmælisdaginn, ef einhver vildi senda skeyti;
um brúðargjafir getur víst ekki orðið að ræða, þar sem búið
er að stoppa alla gjafaböggla, nema ef Fjárhagsráð vildi láta
eitthvað af hendi rakna — sem þó varla verður, því að ráðið
er afskaplega strangt með allan gjaldeyri, sbr. utanfara-
hömlurnar, sem það hefur nýlega sett á, með þeim árangri,
að aldrei hefur verið meira um utanfarir en síðan. Já, manni
veitir ekki af einhverri harmabót í rosanum, ekki sízt þegar
það bætist nú ofan á, að Jói Daníels kemur ekki til landsins
með his big boys. Er það löng harmsaga, sem hefur verið
lakin í öðrum blöðum. Á Suður- og Vesturlandi hefur ros-
inn leikið bændur svo grátt, að til vandræða horfir. Eru því
miklar vonir tengdar við nýju störina, sem tveir grasafræð-
ingar hafa fundið norður í Strandasýslu, hvort sem vinnsla
hennar kann að svara kostnaði. Svo að haldið sé áfram í
jurtafræðinni, hefur öðrum tveim grasafræðingum verið
falið að semja Flóru Reykjavíkur, þótt sumum finnist víð
hafa nóg af slíku fyrir, og einfaldara væri að sérprenta eða
skera nokkuð blöð — hæfilega mörg — úr Flóru íslands og
láta það duga í pappírsskortinum, sem allir líða nú undir,
nema Fjárhagsráð og Irgun Zvai Leumi, sem úthlutaði Re-
naultbílunum og gaf út tvö upplög af umsóknaeyðublöðum,
sem aldrei áttu að hafa neina þýðingu.
Landkynningarmennirnir, sem hafa verið að skjóta upp
kollunum á nokkurra ára fresti og vilja kalla fósturjörðina
ckkar Scley, gæti séð sér leik á borði nú, og skírt höfuðborg-
ina Hamsterdam. Hafði sá orðrómur breiðzt út fyrir nokkru,
að nú ætti að fara að skammta vefnaðarvöru, og varð til
i