Spegillinn - 01.01.1958, Qupperneq 7
1. TÖLUBLAÐ
JANCAR 1958
33. ÁRGANGUR
RAFMAGNSLAUST
varð í liöfuðborginni nokkru fyrir jól og
var um kennt sjávarseltu, sem um alllangt
skeið hefur átt merku hlutverki að gegna
í rafmagnsmálum vorum. Það vakti þó at-
hygli margra þennan dag, að meðan borg-
in var að öðru leyti formyrkvuð, skein Ijós
út úr hverjum glugga í Stjónarráðinu. Olli
þetta mörgum heilabrotum, allt þar til
einn sannfróður og getspakur maður upp-
lýsti, að ráðið myndi hafa fengið straum
frá Grímsárvirkjuninni.
STRANDARKIRKJA
hefur um langan aldur verið fyrirmynd
þjóðarinnar um kristilegan kapítalÍ6ma, og
er nú svo komið, að bún á meira til en
allar aðrar kirkjur landsins samanlagðar,
enda skulda þær henni flestar meira eða
minna. Nú liefur slegið óhug á unnendur
þessarar merku kirkju, er menn óttast, að
hún sé ein þeirra aðila, sem Hermann sagði
á gamlárskvöld, að skyldu ekki hlakka
alltof mikið til nýársins. Yér óttumst ekki
svo mjög aðsúg að kirkjunni af hálfu
vinstristjórnarinnar. Hún veit áreiðanlega,
ekki síður en allir aðrir landsmenn, að
kirkjan stéinhættir að verða við áheitum
undir eins og guð kemst að því, að aurinn
rennur til Eysteins.
RÚNARISTUR
nokkrar allfornar hafa fyrir skemmstu
fundizt nálægt Björgvinjarkaupstað í Nor-
egi og þykja svo klæmnar, að vísindamenn
þeir, er urn þær hafa fjallað, eru í V*afa
um, livort tiltækilegt sé að gefa þær út,
eftir útreiðina, sem Rúbíninn fékk fyrir
skemmstu hjá dómstólum landsins. Vilja
sumir kasta fornminjum þessum á sæ út,
en aðrir vilja lofa þeim að fokka á prent,
segjandi sem svo, að þær séu fjandann ekki
verri en sumir kaflar í Biblírmni.
MINNESOTARIKI,
sem á þessu ári á aldarafmæli, hefur boðið
Hermanni að koma og vera viðstaddur há-
tíðahöldin af því tilefni og þiggja góðgerð-
ir. Hefur Hermann þakkað boðið og segist
mæta „að forfallalausu“ (gæsalappir Tím-
ans). Finnst oss þetta hógværlega mælt hjá
Hermanni, að gera ráð fyrir að forföll geti
komið fyrir annan ei|ns mann. Kannsjke
meinar liann, að hann verði ekki lengur
forsætisráðherra? Vér viljum skjóta því að
Hermanni, að það getur vel verið til í dæm-
inu að honum liafi verið boðið persónu-
lega uppá sitt góða andlit, og er þá alveg
óþarfi að taka sér nokkum fyTÍrvara.
GAMLÁRSKV ÖLD
var með kyrrlátara móti í höfuðstaðnum,
hvað snerti fylliríið, en hinsvegar munu
innbrot hafa verið í góðu meðallagi. Ber
hvorttveggja að þakka vinstristjóminni,
þar eð enginn gerir það að gamni sínu að
drekka sig fullan á gamlársdag, þegar eng-
in von er um strammara að morgni á
kostnað ríkisins, og í öðm lagi þurfa menn
eitthvað að hafa í nýju skattana eftir ára-
mótin, og hvað liggur þá beinna við en
afla þeás með tfellukkuðu bmbr'oti?
I WASHINGTON
var fyrir nokkm gefin út fregn af blaða-
fulltrúa Æks, að er hinn síðarnefndi kom
liér við á Keflavíkurflugvelli á heimleið
og á næturþeli og reif upp forseta vom til
þess að gefa sér kampavín og láta afmynda
sig ásamt uppvartingspíunni, hafi þeir kol-
legarnir rætt um efnahagsmál, og þá auð-
vitað fyrst og fremst um armóð Islendinga
á því sviði. Nú hefur skrifstofa forseta
vors kveðið niður þessa lygafregn og fær
sízt skilið, að nokkurt tilefni hafi til henn-
ar gefizt. Vér þykjumst strax skilja, að
blaðamaðurinn liafi verið illa að sér í ís-
lenzkunni og þá ekki skilið orðatiltækið:
„Feginn vildi ég eiga þig að“, sem þjóðlegt
þykir að segja, er menn kveðjast.
SÉRA HILARÍUS
liefur nú uimið það afrek.í viðbót við sín
fyrri, að fara landveg til Suðurpólsins, en
það hefur ekki verið gert síðan 1912. Em
því allar horfur á, að Elízabet drottning
verði af með lávarðstitil í þetta sinn. Og
Valfells með aðra úlpu.
Á BÆJARSTJ ÓRNARFUNDI
í höfuðstaðnum, skömmu fyrir nýár, upp-
lýsti Guðmundur Vigfússon (og þá ætti
því að vera óliætt), að dularfullir og
lymskulegir menn hefðu undanfarið verið
að mæla upp lim nýju strætóbiðskýli, sem
upp hafa veriö sett í borginni undanfarið
og vakið nokkrar umræður, hvað verð
snertir. Þótti bæjarfulltrúum fregn þessi
öll liin ískyggilegasta, og sízt láandi, ef
liin illræmda uppmæling á að bætast ofan
á hitt verðið, sem flestum þótti nóg vun.