Spegillinn - 01.01.1958, Blaðsíða 19
5PES1LLINN
17
Hvalasprautur.
Fúkkalyfin víkka enn starfssvið
sitt, svo að með ólíkindum má
telja. Nýjasta nýtt á þessu sviði
er að sprauta þeim í nýskotna
hvali til þess að ekki slái eins
fljótt í þá, og hafa tilraunir með
þetta verið gerðar á hvalveiðistöð
einni x Suður-Georgíu. Nú geta
menn fengið 90% af öllu lýsinu —
eða olíunni, eins og heimild vor
kallar það í fyrsta flokk, en áður
lukkaðist sjaldan að fá nema 70%
ef hvalirnir voru dregnir langa
leið. Hefur gróði hvalaranna auk-
izt verulega við þetta og svo eftir-
spurnin eftir fúkkalyfjum. Græða
þannig allir aðstandendur og allir
geta verið ánægðir.
Sextantinn,
Allar horfur eru á því, að hið
gamla góða tæki, sextantinn verði
bráðum ekki til nema helzt á Ár-
bæjarsafninu. Gallinn á þessu
aldagamla siglingatæki var aðal-
lega sá, hversu seinvirkt það var,
og kom það oft fyrir, að um leið og
skipstjórnarmenn voru búnir að
finna út sólarhæðina, voru þeir
akkúrat strandaðir. Þessu er ekki
til að dreifa með afkomanda sex-
tantsis, en hann heitir SOPF og
er uppfundinn af starfsmanni í
Fordverksmiðjunum í Ástralíu.
Þessi maður lenti í skipreika á
stríðsárunum úti á miðju Atlants-
hafi og þótti þá köllunum ganga
seint að taka sólarhæðina, sem von
var til, því að þeir voru svo skjálf-
hentir, að þeir fengu alltaf þrjár
sólarhæðir og höfðu ekki vit á að
taka meðaltalið af þeim. Nú er
sem sagt úr þessu bætt með þessu
ágæta siglingatæki.
Umferðamálastjórar Bandaríkj-
anna eru heldur betur guðhrædd-
ir þessa dagana, því að þeir hafa
verið að skoða nýjustu módelin af
bílum, sem eiga að koma á mark-
aðinn á þessu ári. Það er ekki ein-
asta, að bílarnir hafi breikkað, sem
gæti nú verið fyrir sig, heldur hafa
þeir lengzt líka, svo að t.d. Lincoln,
sem er þeirra lengstur, er 5.82
metrar. En bak við þetta liggja
eins og við mátti búast, djöfulleg
klókindi. Þessir bílar komast sem
sé alls ekki inn í bílskúra af venju-
legri stærð, en verksmiðjurnar eru
líka farnar að framleiða bílskúra,
sem þeir láta fylgja bílunum, gegn
sanngjarnri þóknun. Onnur vand-
ræðin hljótast af því, að stæðin við
stöðumælana verða með þessu
móti ekki nógu löng. Þetta hafa
framleiðendurnir líka séð í hendi
sér, og hafa því smíðað litla bíla,
sem nota skal í mestu þrengslun-
um inni í borgunum. Er litli bíll-
inn látinn standa uppi á þakinu á
þeim stóra, sem er skilinn eftir
utan við mestu þrengslin og svo
keyrt á þeim litla á leiðarenda.
Telja framleiðendur þetta hámark-
ið af nútíma þægindum.
V etrarbrautin.
Kjarnorkuvísindamenn eru sem
óðast að rannsaka Vetrarbrautina
og vilja halda því fram, að rúmið
milli stjarnanna í henni — en þær
eru þó nokkuð margar — sé aldeil-
is stútfullt af vetnisskýjum. Er nú
heill hópur vísindamanna önnum
kafinn við þessar rannsóknir, og er
jafnvel talað um að senda nokkra
þeirra hingað til Reykjavíkur og
láta þá æfa sig á Miklubrautinni,
sem gengur næst Vetrarbrautinni
að ófærð.
Eitrað andrúmsloft.
Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar — en það þykir að
vonum nokkuð langt nafn og þess-
vegna hafa enskumælandi þjóðir
skírt hana WHO, af því að þær
vita lítil deili á henni — hefur ný-
lega haft nýtt vandamál til með-
ferðar á fundum sínum, sem sé
eitrun frá allskonar iðjuverum,
sem verða oft og tíðum að fram-
leiða og fara með ýmiskonar ó-
þverra. Voru flestir fundarmanna
á því, að lágmarks mannréttinda-
krafa væri að hafa hreint loft til
að anda að sér, og virðist það
nokkuð sanngjarnt. Sitja nú vís-
indamenn á rökstólunum til að
finna aðferðir, sem gæti komið
svona eiturlofti fyx-ir kattarnef, og
bíða allir hlutaðeigendur með ó-
þreyju eftir árangri. Hér heima
þekkjum við þetta lítilsháttar, þar
sem er ilmurinn frá þorskhausa-
versksmiðjunni á Kletti, en fleira
má telja og þar á meðal eitt, sem
menn hafa komizt í kynni við,
einmitt þessa dagana og það er sú
foreitrun andrúmsloftsins, sem
blöðin standa fyrir í tilefni af
bæjarstjórnarkosningunum, og
enginn virðist hafa neitt við að
athuga. Hefðu þó þeir róttæku
menn, sem stóðu fyrir nýafstaðinni
forbetrun á kosningalögunum, við
eigandi getað bætt þar inn í
klausu, þar sem blöðum er bann-
að að koma út næsta mánuðinn áð-
ur en kosningar fara fram. Von-
andi verður þetta tekið til athug-
unar næst þegar gera þarf breyt-
ingu á lögunum.
-----ooOoo----
CTVARPSTRUFLANIR
lxafa verið allmiklar undanfarið, einkum
á norðurhveli jarðar, og tjá fræðingar oss,
að þetta stafi frá einhverju óstandi í Jón-
ósferunni. Vér trúum því nú trauðlega, að
maður þurfi að lieita Jón til þess að vera
lítið hrifinn af útvarpinu á köflum og gera
truflanir, en vitanlega eru Jónamir lið-
sterkastir.