Spegillinn - 01.01.1958, Blaðsíða 9

Spegillinn - 01.01.1958, Blaðsíða 9
5FEGILLINN 7 — Gleðilegt nýár og þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári. — Sömuleiðis og engu betra, svaraði ég. — Það er heldur rólegt hjá manni núna, sagði rakarinn minn. — Ég hef tekið eftir því á löngum starfsferli, að ekkert hár sprettur eins seint og jólahárið. — Ætli það stafi nú ekki mest af því, að menn eru í sparnaðar- þönkum í janúar og vilji fá sem mest fyrir aurinn, sagði ég, til þess að starta rakarann minn, því að mér fannst hann eitthvað með slappara móti, eins og reyndar fleiri eru á nýárinu, hvort sem það er nú vinstristjórninni að kenna eða einhverju öðru. — Kann að vera, sagði hann, — en annars er ég nú hálffeginn, að hér skuli ekki vera nein blindös. Ég er hreint ekki vel frískur eins og er. — Hefurðu kannske lagt þér til flensuna, síðastur manna? — Nú talar enginn um flensu lengur, heldur finna þeir upp á einhverju nýrra, sem þurfa að skrópa úr vinnu. Þetta, sem að mér gengur, er bara ómerkilegt vinstrakvef, og ég veit meira að segja hvar ég fékk það og hvers- vegna. Ég fór nefnilega, skal ég segja þér, í Þjóðleikhúsið — þú veizt musterið okkar — til þess að sjá hana Úllu Vínblað. — Veiztu, að hún var sett á fjalirnar til þess að stríða Eining- unni, sem er bindindisblað ? skaut ég inn í. — Ekki veit ég það, en ekkert kampavín var að minnsta kosti serverað milli þátta og hefði þó ekki veitt af, x öllum helvítís kuld- anum. — Já, það er mikið talað um þennan kulda, sem hefur verið í musterinu í vetur, sagði ég. — En hitt veiztu líklega ekki, að þetta er með vilja gert. Rósinkrans ku gera það til þess að menn neyðist til að klappa. — Ef svo er, hefur sú ráðstöfun vei-ið mislukkuð, sagði rakarinn minn. Enginn klappaði en aftur á móti fóru allir að berja sér, nema hvað tveir úr Þjóðleikhúsráðinu „slóu svensk“ sér til hita. — Það hefur verið á misskilningi byggt, ef þeir hafa haldið, að það ætti við þarna, sagði ég. — Svíar hafa aldrei viljað líta við þessu leikriti, og skoða það frekar sem móðgun við sig, enda eru þetta svo menntaðir menn, að þeir vita að Þýzkarinn ætti ekki að hætta sér út á húmoristiska sviðið. — Þá, hefur Rósinkransi orðið illilega á í messunni, sagði rakar- inn minn. — Það var einhver að segja mér, að hann hefði komið með þetta til þess að verða for- maður í Norræna. Nei, kall minn. Eftir mínu litla leikviti, er Skráp- skinna betri. Það er þó að minnsta kosti mikil og djúp hugsun í henni og góð tilbreyting frá Islands- klukkunni sem framhaldsleikrit í útvarpinu. — Hvað segirðu um kosningarn- ar? spurði ég og iðraðist eftir að hafa nokkurntíma hleypt rakaran- um mínum út í leiklistina. — Hvern skrattann eins og mað- ur sosum þori að segja? Ég hef heyrt það utan að mér, að það kosti fjögur þúsund kall í sekt að segja nokkrum, hvern maður ætli að kjósa. — Nei, þetta er misskilningur, sagði ég. — Þeir vísu feður gleymdu einmitt þessu fjárafla- plani og lögðu bara sektina við

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.