Spegillinn - 01.01.1958, Blaðsíða 18
16
SPEGILLINN
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfundur
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn
í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1958 og
hefst kl. 1,30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á -
liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurð-
ar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1957 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðenda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem
hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að furidinúm verða afhenti^ hluthöfum og umboðs-
mönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 3.—5.. júní
næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir úmboð til þess að sækja
fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný
umboð og afturkallanir eldri umboða komi skrifstofu félagsins í hendur
til skráningar, ef unnt er, 10. dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en
28. maí 1958.
"V
Reykjavík, 10 janúar 1958.
STJÓRNIN.