Spegillinn - 01.05.1965, Síða 6

Spegillinn - 01.05.1965, Síða 6
STOFUGANGUR Svið: Sjúkrastofa í spítala. Einn sjúklinganna Pétur c.ð nafni ligg- ur og bíður læknanna með eftirvæntingu og kvíða... Nú opnast dyrnar snögglega upp á gátt og inn stormar prúð prósessía. Fyrst kemur meiri háttar læknir, á eftir honum minni háttar læknir, þá kandidat, þá tveir stúdentar, og hjúkrunarkona rek- ur lestina. Allt þetta fólk er í hvítum kyrtlum, sæmilega hrein- um. Fyrsti Iæknir (víkur sér snöggt og hressilega að Pétri) Gúmorin, gúmorin, signor Pétur, heilsan fín hjá okkur 1 dag, er það ekki? Sjúklingurinn (umlar) U-humm. 1. Iæknir: Já, er það ekki? Það þóttist ég strax sjá. Sofið eins og steinn? Sjúkl .: Framan af nóttu. 1. læknir: Bravó, bravó, og dreymt vel... um fiskirí og kvenna- far, ekki satt? (Nú hlær fylgdarlið læknisins, en þó mismun- anc mikið eftir stigi og stöðu. Læknir nr. 2 og kandídatarnir hlógu svo að sá í úfinn á þeim. Stúdentarnir hlógu mest til málamynda, en hjúkrunarkonan lét sér nægja krampakenndar viprur kringui.i hægra munnvikið). — Nú, nú, og temperatúr- inn í morgun, hvað er hann? Hjúkrunarkonan: 39.3 1. læknir: Hm, þetta er nú svo sem enginn trópiskur hiti, og 6 Spcgillinn hann fer lækkandi. Verður kominn niður f heimskautakulda eftir helgina. Allt í framför, ekki satt- — Og matarlystin, hún er sallafín, er það ekki? Sjúklingur: (grátklökkur) En til hvers er að hafa matarlyst, þegar maður verður að fasta annan hvern dag og éta hinn? 1. Iæknir: Það er nú akkúrat lóðið, hreinsa sig vel út og fasta annan hvern dag og eta svo og drekka eins og tröll hinn daginn. Svoddan gerir gott í kroppinn. Sjúkl: (æstur) En ef það er nú eins í fyrrakvöld? Þá borð- aði ég mig pakksaddan af indælis mat. Og svo var mér sett pípa rétt á eftir, og þar með fór víst allur góði maturinn. I. læknr: Já, og með tilheyrandi hornamúsík. En góði maður, með þessum mikL. og góða mat, urðu áhrifin af pípunni miklu stórfenglegri... Jæja, en nóg um það. Hvað hefu** hann far- ið oft í röntgen, kandídat? Kandidatinn: Fjórum sinnum: maga, nýrna, lifur, hjarta og lungu. 1. læknir: (athugar skjöl sína, byrjar síðan lágt hljóðskraf við aðstoðarmenn sína. Það fer að mestu fram á latínu. Þegaf Iæknarnir sletta latínúnni sem mest, kinkar hjúkrunarkonan ákaft kolli til samþykkis, en hún skilur lítið í latínunni) Jamm, þá er nú varla hægt að taka af honum flei_] myndir, nema þá helzt Ijósmynd. Sjúkl.: Guði sé lof, þá þarf ekki að fasta meira,

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.