Spegillinn - 01.05.1965, Síða 7
Löngu-
mýrar-
þáttur
Þessi saga er m. a. sögð af Bimi alþingis-
bónda frá Löngumýri:
Björn var á yfirreið fyrir kosningar og
kom á stórbýli. Skipaði Björn bónda nokkr-
um, sem var meðreiðarmaður hans, að
tjóðra hestana.
Þá varð bónda að orði: „Þú hleyptir þeim
nú bara á túnið heima hjá mér“.
„Já“, svaraði Bjöm. „Maður gerir sér nú
dælt við kotbændurna".
1. læknir: (íhugandi) Jú, það væri kannski rétt að taka mynd
af hausnum á honum og heilanum.
Sjúkl.: Þarf ég þá að fasta enn einu sinni eða fá pípu?
!• læknir: O, nei, þú skalt bara passa þig á að hugsa ekkert í
dag — til að hvíla heilann. (Nú brosa allir, hjúkrunarkonan
líka) Og ef eitthvað sést athugavert á þeirri mynd, þá getur
verið að við þurfum að gera á þér hryggstungu.
Sjúkl.: (Rekur upp sárt örvæntingaróp) Ó-ó-ó-ó-ó-ó! Er það ekki
alveg hræðileg aðgerð?
t- læknir: Sei-sei-nei. Flestir lifa hana af.
Sjúkl.: (andstuttur) En ekki allir?
!• læknir: Tja, hvað veit maður. Annars held ég ekki að þess
þurfi, Pétur minn. (Við 2. lækni) Mér sýnist þú nokkurn veg-
m normal. Viltu hlusta hann, meðan ég !:íki nánar f sjúrnalin.
2- læknir: Sjálfsagt. Gera svo vel að anda djúpt .. Hvað þá,
ertu hættur að anda ... heldurðu niðri í þér andanum? Nei,
það er ekki meiningin, þú átt að anda regiulega. Svona já.
Gott. Bezt að líta á hálsinn. Opna munninn og segja A-a-a.
Sjúkl.: A-haaa, A-haaa ...
2- læknir: Nei, nei, ekki segja A-ha. Ég sagði þér bara að segja
Aaaaa. Svona já. (1. læknir) Þetta virðist vera í lagi, Hjart-
slátturinn dálítið óreglulegur.
Sjúkl.: Það er hann aldrei nema þegar þið eruð hérna inni.
*• l*knir: Fröken Pálína, hvað er hann búinn að fá margar
vítamínssprautur.
Hjúkrunarkonan: Átta.
1. læknir: Og finnst þér þær ekki hressa þig, Pétur?
Sjúkl.: Æi-nei, ekki held ég það.
1. læknir: Það fjörgar þig kannski nóg, að hafa allt þetta fall-
ega kvenfólk í kringum þig. (Allir brosa, stúdentarnir mest).
1. læknir: Já, det er .ú det. Fröken Pálína, við höldum meðala-
kúrnum áfram. Það eru Tablette Stromboli, ekki satt, og Val-
ería Valera undir svefn, Recerpini Reception og Tabblette
Cloratortazini við tensíó.
Hjúkrunarkonan: Það skal gert læknir.
1. læknir: (Við aðstoðarfólk sitt) Díagnósan ætti að vera tilbúin
eftir tvo daga. Og þegar hitinn er kominn í lag, sendum við
hann heim. Ég fæ ekki séð, að það gangi neitt að mannskratt-
anum, nema þá kannski hysterí.. .Jæja, Pétur minn. So long.
— still going strong! (Prósessía fer að næsta rúmi.)
EFTIRMÁLI
Það skal tekið fram að framanritaður þáttur var skrifaður up)
eftir Pétri í heimsóknartímanum þá seinna um daginn. Er þvl
ekki útilokað að eitthvað hafi skolazt til og ruglazt tæknileg
og læknisfræðileg atriði og orð.
Lazarus.
Spegillinn 1