Spegillinn - 01.05.1965, Qupperneq 8
r
vj.ii ' • • -
Eintal smáborgarans
Ýmsir eiga Taunus, eii sumir Chevrolet
svífa um götur borgarinnar, elegant og nett,
sýna þeir sín farartæki furðu dásamleg,
— allir nema ég.
Sumir eru þingmenn og mestu mælskutól,
mala dátt í þingveizlum, í hvítu bæði og kjól,
þræða að stjórnarstólunum um stuttan greiðan veg,
— aliir nema ég.
Margir fá þeir orður og kostulegan kross,
kannski jafnvei Dannebrog - það dýrlegasta hnoss,
sitja boð á Bessastöðum, virðing með og veg,
— allir nema ég.
Sumir fá í happdrættinu hús og fínan bíl,
húsgögnin í lange baner - nýtízku stíl,
þeir njóta sannrar heppni, sem er harla ótrúleg,
— allir nema ég.
Sumir eiga velvaxnar og fallegar frúr,
sem fara svona öðru hverju í megrunarkúr
og kannski líka frillu, sem er furðu gimileg
— allir nema ég.
Ýmsir eiga bamahópa, ofvita og flón,
eftirmyndir pabba síns að vitsmunum og sjón,
sem ýmist em hlýðin eða óviðráðanleg,
— allir nema ég.
Margir eiga villu með valmaþak og kvist,
voða fínar stofur, sem fullar em af list,
garða hlaðna skrúði með skrautblóm kostuleg,
— allir nema ég.
Loks fá margir útför með stórri pomp og pragt,
og presturinn um líkið margt fallegt getur sagt,
og minnismerki á grafir sínar fá þeir frækileg,
— allir nema ég.
rj-
$ Spegillinn