Spegillinn - 01.05.1965, Page 12

Spegillinn - 01.05.1965, Page 12
ekki frekar vit á nýtízku leiklist en ný- gotinn hvolpur eða Vilhjálmur Þ.“ Síðan tíndi þessi nýi Yonescu saman blöð sín og gekk grátandi út. Frá dyrum og inn að skrifborði Þjóð- leikhússtjóra er sosum 25 metra vega- lengd. — Hann tók mér alúðlega. „Ég þarf að fá hjá þér einn miða að frumsýninpunni," byrjaði ég. „Ja sko,“ sagði Rósinkrans og drap tvo tittlinga, “bæði er nú húsið fullt af heldra fólki á frumsýningum, og svo veit ég ekki til að þú sért Önfirðingur, Framsóknarmaður eða Samvinnuskóla- maður. - Nei, því miður.“ Ég: „Dómsmálaráðherrann skipaði mér að fara á sýninguna." Guðlaugur tók hart viðbragð og drap heilan tittlingahóp. „Af kvurju srgðirðu ''etta ekki strax, mannfýla? Það er nú ekki um annað að gera en gegna því, annars eru helvítin viss með að skella á mann annarri rann- sóknarnefnd." Og miðann fékk ég. Svo fór ég til Hauks Óskarssonar og fékk klippingu .höfuðbað, spíra og Ad- reV í hárið, rakstur og Óld Spæs á eft- ir. Smókingurinn minn gamli var orð- inn dálíiið snollaður á mér, en ég hélt samt, að hann gæti gengið enn. Klukkan 10 mínútum fyrir átta var ég mættur uppi í leikhúsi. Við dyrnar stóð maður með sýslumannshúfu. „G tt kvc'^ fógeti". sa 3i ég og bar höndina upp að hattbarðinu. En hann rétti bara fram hönd sína op sagði: „Að- göngumiðann.“ Svc komst ég klaklaust í sæti mitt, c0 sá þá að var ekki valið af verri 12 SpegilHnn endanum: Á gagnrýnendabekknum á milli Sigurðar A. Magnússonar á Mogg- aum og Ólaf'- Jónssonar á Alþýðumogg- anum, en þeir tveir eru taldir allra krítikkera djúpvitrastir. Þeir töluðu saman þvert yfir mig, og skildi ég fæst af því ,en þar mátti heyra orð eins og „raunhlítur", „absúrdismi," „avant garde,“ etc., etc. Mig langaöl til að leggja orð í belg líka, hefst upp úr eins manns hljóði og segi: „Eruð þið aldrei hræddir hér, piltar?“ „Hræddir? Við hvað?“ spurðu þeir tómlega. „Við það, að allt stuðlabergið hans Guðjóns sáluga pompaði niður úr loft- inu í hausinn á ykkur?“ Þeir hlógu kaldahlátur, og Ólafur svaraði: „Það eina, sem við erum hræddir við á þessum stað, er slæm leiklist.“ „Og það er alltaf hér,“ hreytti Sigurð- ur út úr sér. „Þeir cýndu nú samt leikritið þitt, Siggi minn," "ði ég, en sá brátt ,að þetta hefði ég ekki átt að segja, því að þögn Sigurðar var hyldjúp og fyrirlitn- ingin eftir því. Ég reyndi því að gera gott úr öllu saman og slá því upp í grín, segjandi: „Þú kallaðir stykkið þitt „Gestagang" en þessir fáu 'korfendur kölluðu það bara „Draugagang", ha-ha-ha-“. En Sigurður þagði enn fastar, og Ólaf- ur ræskti sig, „A-hemm!“, en ég gat ekki betur séð en helvítið Olotti. Nú fór teppið frá, og Helga og Róbert komu blaðskellandi inn. Mér varð fljótt ljóst ástandið á Helgu. „Hún er bara áðí, ún Elga,“ tautaði ég fyrir munni mér. „Já, og meira að segja blindfull, manneskjan! Og ég sem hef aldrei heyrt annað en að þetta væri mesta reglumanneskja." Ólafur sagði: „Uss-þei-þei,“ en Sig- urður þrumaði lágt: „Silencium," hvað ég hélt að væri gríska, því að SAM hef- ir, að eigin sögn fengið gríska orðu (en ég hef nú alltaf haft lúmskan grun um að þetta væri bara heiðurskoparhlunk- ur frá Friðrikku drottningu — þau eru nebblilega bæði dálítið gefin fyrir að láta bera á sér). En þegar ég fór upp á Safn daginn eftir og spurði Halldór Þor- steinsson bókavörð og málagarp, hvað „silensíum" þýddi, þá kom í ljós, að þetta var bara banvítis latína og þýðir „Þögn!“ Og svo byrjaði leiksýningin fyrir al- vöru, og úm hana gildir að hafa sem fæst orð á prenti. Það var nú ljóta sam- komulagið á þeim hjónum, Helgu og Ró- berti. Þau skömmuðust allan liðlangan tímann með bölvi og svívirðingum og klámið í þeim var aldeilis ofboðslegt, meira að segja svo, að ég skildi ekki sumt af því, enda langt síðan ég hefi verið til sjós eða í vegavinnu. Helga var fjandann ekkert betri með þetta. — Já það var margt torskilið í þessum leik. T.d. það að Helga segir eitthvað á þá leið, að margur maðurinn ’ildi fúslega fórna báðum höndum sínum fyrir að fá tækifæri til að giftast dóttur háskóla- rektors, eins og hún væri sjálf. Þá svaraði Róbert, að útkoman yrði hins vegar sú, að menn fórnuðu öðrum leynd- ari lim. Það skildi ég ekki fyrri en ég var að hátta mig um kvöldið. Rifrildið magnaðist, og þar kom, að þau flugust á í illu. Róbert rétt hafði við Helgu, þótt full hún væri. Hann hnoð- aði henni yfir sóffabak og bjóst til að kyrkja hana Þá var mér öllum lokið, ég spratt upp úr sæti mínu og hróp- aði: „Ætlið’ að láta mannskrattann drepa konuna svona fulla!“ En þá tóku sessunautar mínir í mig og keyrðu mig niður í sætið aftur, enda sleppti Róbert Helgu í þeim svifum. Og Helga var bara rólegri á eftir og það rann af henni. „Svona á víst að taka þær,‘ ‘hugsaði ég. Og þvf meir sem leið á sýninguna því meir prísaði ég mig c-’-n fyrir að vera piparkarl. Aðrir leikarar voru: hann þarna pilt- urinn úr Keflavík. (Það er slatti af leik- urunum við Þjóðleikhúsið úr Keflavík). Með honum var kona hans, sem heitir að eftirnafni Sauðskinn, eða eitthvað þess háttar - og lék litla, hvíta mús, og var alltaf spúandi — þó ekki á stofugólfið. Og Gísli þessi sá átti nú heldur erindi í lónið! Þegar Róbert var búinn að hella hann fullan, æsti Helga hann upp í að dansa við sig og það var jafnvel klúrari dans en í myrkrinu á sveitaböllunum í dentíð. Strákurinn hélt báðum höndum utanum rassinn á

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.