Spegillinn - 01.05.1965, Síða 19

Spegillinn - 01.05.1965, Síða 19
STJÖRNUR ☆ svavar gests og hljómsveit eiga geypilegum vinsældum að fagna meðal ungra sem gam- alla. Raddir heyrast um að svavar sé að hætta með hljóm- sveit sína og muni ráðast til hins væntanlega íslenzka sjón- varps. Ekki er að efa, að þar muni svavar eiga vinsældum að fagna og verða þar hár f loftinu einnig á þeim vett- vangi. ☆ KISTA Frestinum fíest til lista lagt Skólastjóri hér í bæ, Jón nokkur Giss, hefur eitthvað veriC; að nöldra út af því, að einn frægasti prcstur landsins, séra Árelíus, hefur ort dægpr- lagatexta, og eitthvað blandað Heilagri guðsmóður í málið. Er texti þessi afar vinsæll, bæði í heimahúsum og • .rkum dans- húsum, Röðli, Þórskaffi o. s. frv. En þetta sýnir ekkert annað en það, að nútíma prestar láta sér ekkert óviðkomandi. Annars minnir þetta ofurlít- ið á smásögu af gö ’um presti, sem þótti anzi féglöggur. Hann átti graðhest góðan, og þóttist eitt sinn hafa vissu fyrir þvi, að hesturinn hefði fyljað hryssu bónda nokkurs þar f svei«nni. Vildi prestur inn- heimta toll fyrir þetta afrek folans. Næst, þegar messað var, gekk klerkur til viðkomandi bónda eftir messu og sagði við hann: „Ég á fyl í merinni yðar, Jón minn“. „Ja, margt berið þér nú við, prestur minn“, svaraði bóndi. * Harðdrægur Akureyringur Vísir skýrði á sínum tíma frá fiskdráttarkeppni niður um ís á Akureyrarpolli. Taldi blað- ið upp nokkra menn, sem harðdrægastir“ urðu, svo að notað sé orðalag blaðsins. Það kom á óvart, að banka- stjóri sá, sem tók þátt í keppn- inni, h’—'t ekki fyrsta sætl f „harðdrægni“, heldur var bara þriðji harðdrægasti. Það liggur í augum uppi, að hvorki skattalögreglan né gjaldheimtan hafa átt fulltrúa f keppninni. Þá hefði svo sem ekki neinn vafi Ieikið á því, hverjir hefðu orðið harðdræg- ari. * Vandir að virðingu sinni Úr blaðaauglýsingu: „Múraramei staraf élag Reykjvíkur og Múrarafélag Reykjavfkur vilja, að marg- gefnu tilefni, aðvara húseig- endur við því að fara eftir aug- lýsingum ilöðum, um vinnu við flísa- og mósaíklagnir og aðra múrvinnu, þar sem f flest- um tilfellum er um að ræða ófaglærða menn, sem auglýsa, og að auki okra á vinnunni og eyðileggja efnið, sem þeir vinna úr“. Þetta eru orð í tíma töluð. Enda er það á allra manna vit- orði, r.3 múrarar — og málarar eru allra manna sanngjarnast- ir og vinna fyrir ótrúlega lágt kaup. Þeir taka að sér aðeins eitt verk í einu og fylgja því fast efiir. Húsbyggjendur og eigendur ættu að kunna vel að meta slíkan þegnskap og fórn- arlund, í stað þess að elta uppi einhverja L'JIvaða fúskara. - Skattar múrara sýna Iíka ber- lega, hve tekjulágir þeir eru. Þvældur bankc „Þjóðrækinn" skrifar Hann- esi á horninu um það, að það sé helvítis ómynd hvernig margir færu með seðlana mcð fallegu myndunum af Jóni t • Tryggva. Satt mál er þetta, og mörg- um þykir svo vænt um pen- inga, að hann vildi feginn ramma þá fallegustu inn og festa þá upp fyrir aftan rúmið sitt. En þá held ég að yrði nú ljón á veginum. Hvað haldið þið að yrði um blessaða elsku seðlana ef skattalögreglan og gjaldheimtan sæju peninga þannig á glámbekk? Spegillinn ' 19

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.