Spegillinn - 01.05.1965, Page 26

Spegillinn - 01.05.1965, Page 26
 STJÖRNUSPÁ Spáin gildir fyrir næsta mánuð og er næstum óbrigðul, eins og þegar hefur sannazt um stjömuspár Spegilsins. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Þú ert alltof eyðslusamur, enda er fjárhagurinn eftir því. Taktu upp þínar eigin sparnaðarvikur í samráði við hann Svein Ásgeirsson, en r'arðu ekki með honum í Naustið. Það er enginn sparnaður í því. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Þú ert hættulega rómantískur, en eins og nú stendur á er slíkt stórhættulegt. Hafðu hægt um þig og ræddu vandamálin við Hannes Jónsson félagsfræðing. Hann tekur þér vel. Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní: Ástfangnir og ógiftir undir þessu merki ættu að fara var- lega og stíga ekki feti framar, fyrr en tekin hefur verið greini- legri afstaða gagnvart væntanlegri tengdamömmu. Það er ekki að vita hvort ykkar myndi hafa undirtökin í væntanlegu hjóna- bandi, þú eða tengdamamma. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Blóm frá Þórði á Sæbóli myndu koma mörgum nákomnum vel, enda kemur það líka Þórði vel að þú verzlir við hann, því hann stendur í stórræðum um þessar mundir. Ljónið, 4. júlí til 23. ágúst: Þetta er merki stangaveiðimannanna ,enda mun veiðilánið endast í allt sumar. Þeir sem ekki eru með veiðidellu ættu að fá sér hana, því að framundan er ákjósanlegur tími fyrir veiði- menn, þó skyldu menn ekki fara upp fyrir þúsund krónu veiði- daga, a. m. k. ekki til að byrja með. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Varaðu þig, því að algjörs bindindis er krafizt af þér næstu vikur. Templarar eiga sælar stundir, ef þeir reyna. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Þú skalt ekki kaupa þér bíl, ef þú ert í hugleiðingum. Þú þarft að ganga meira. Gakktu í Hjartavernd (HÆ-félagið). Drekinn, 24. okt. til 23. nóv.: Þú ert of morgunsvæfur og latur. Stundaðu morgunböð í Sundlaugunum, þar kemstu í góðan félagsskap. Þú munt hressast. Bogmaðurinn, 24. nóv. til 21. des.: Hættu að reykja þegar í stað, annars er voðinn vís. Kauptu happdrættismiða hjá Krabbameinsfélaginu, helzt tvo. Aðeins reyklausir menn komast vel af undir þessu merki næstu vikur. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Skapið er ekki nógu létt um þessar mundir. Fjárhagsáhyggj- um mun létta af þér bráðlega, svo að þú þarft að létta skapið. Þú ættir að gerast áskrifandi að Speglinum. Vatnsberinn, 21. jan. tii 19. febr.: Kauptu þér reiðhjól og taktu lífinu létt. Hjólatúr um næstu helgi hefur undraverðar afleiðingar til góðs. Prófaðu bara. Fiskamir, 20. febr. til 20. marz: Blandaðu þér ekki í pólitískar umræður, og ræddu ekki minkafrumvarpið. Dansiball um helgina hefur sérlega góð áhrif undir þessu merki. Ef þú hefur ekki fylginaut, þá verðurðu að bjóða út, annars nærðu ekki settu marki. Astron. tm Undirritaður óskar hér með að gerast áskrifandi SPEGILSINS Og fegurðin mun ríkja ein frá nýári 1965 frá og með 6. tbl. (strikið undir það, sem við á) og lofar að leysa út, þegar þar að kemur, póstkröfu fyrir áskriftargjaldinu, kl. 300,00 fyrir árið, eða kr. 175,00 fyrir 7 blöð. Níafn Ueimilisfang (eða pósthólf) Undir þessari fyrirsögn flyt- ur Þjóðviljinn frétt um Banda- ríkjamann nokkurn, sem hald- ið hefur málverkasýningu í New York. Hann hefur það sér til ágætis, að málverkin eru öll einlit, í fyrsta sýningarsalnum svört, síðan rauð, og blá í þeim þriðja - Sýningin ku fá góða dóma. Guðs þakka vert væri, ef ab- straktmálarar vorir og klessu- meistarar tækju upp þessar aðferðir í stað skræpóttu skrímslanna. Þá gætu líka all- ir húsamálarar haldið sýning- ar. Notað bara málningarleifar úr dollum sínum og makað á tex-plötur. Og mundi þetta ekki létta starf djúphugulla listdómara og gera skrif þeirra loksins skiljanleg almenningi? Peningalykf Peningalyktin er langtum alvarlegra mál heldur en menn gera sér grein fyrir. Peninga- lyktin er nefnilega peningar, sem verið er að kasta á glæ ’ og það á óskemmtilegan hátt... ? Stefán Bjamason verkfr, í Morgunbl. 25. apríl. 26 Spegillinn

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.