Spegillinn - 01.04.1967, Síða 16

Spegillinn - 01.04.1967, Síða 16
ÆVINTÝRI SKÍÐAMANNS Um pdskana ég fór á fjöll, ferðin sú var skrýtin öll. Töluvert nesti tók ég með: tólg í öskju ég smyrja réð, hangiket af holdasauð, heilnæmt gæðasmjör og brauð, hókarlsbita með bragðið gott, af brennivíni hdlfan pott, af súkkulaði sosum pund, sælgæti, er gleður lund, tíu flöskur Thule-öl til að bæta úr þorstakvöl, rikling vænan vestfirzkan og vænan lauk, sem hressir mann, grænan af myglu gróðaost. ------Gekk ég að heiman með vikukost. Skíði hef ég harla góð, sem húrra örugg sína slóð. Stafirnir eru úr stífu tré og stingast niður úr fönnina. — Þæfð er peysan, þykk sem húð, þú færð ei betri í neinni búð, lambhúshettu og loðhúfu læt ég skýla höfðinu. Gæruúlpan góð er flík, d Fróni önnur finnst ei slík. Brókin sterklegt stykki er, hún stendur sjdlf þó úr ég fer. Hóir sokkar, hlýir, og í leiðslunum er talið tog. Helzt mundu skórnir hæfa d tröll. --------Og nú er talin útgerðin öll. Gekk ég svo að heiman hress, húsfreyju kyssti og sagði bless. í stórum bíl svo brunað var beina leið upp á auðnirnar, sezt að í skíðaskdlanum (skrambi var svalt í kofanum). Degi var hallað, komið kveld, kdtt var sungið við arineld, lagzt var til svefns með lúin bein, legurúmið minnti d stein. Of stutt var kojan, svo krepptur ég Id, tæplega rann mér biundur d brd. Fyrir allar aldir var upp staðið — miskunn var engin þar. Að söngum hafragraut sezt var fyrst, síðan í hvelli ferðbúizt. Brekkan var bæði leið og löng, leiðin upp hana fjandi ströng, að ofan að sjd mjög ægileg, af angist og kvíða titraði ég 16 S p e g i I I i n n

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.