Spegillinn - 01.04.1967, Page 22

Spegillinn - 01.04.1967, Page 22
Elzti prentarinn Þess var minnzt um daginn með miklum gný, að Prentara- félagið átti 70 ára afmæli, og þótti það hið merkasti viðburð- ur, ræður fluttar og afmælis- greinar skrifaðar. En í ræðunum og greinum var hvergi minnzt á elzta prent- arann, sem er jafngamall prent- verki á íslandi, en það er PRENTVILLUPÚKINN, sem oft er umsvifamikill. — Spegillinn vill bæta úr þeirri gleymsku, i þeirri von, að púkinn sjái blað vort sem mest í friði. Vér höfum beðið Jón Ágústs- son, formann Prentarafélagsins, að kynna hinn fasta fylginaut stéttarinnar, og gerir hann það hér með. svörtu regnhlífina og snaraðist í Parla- mentið. Ég hafði blaðamannapassa uppárit- aðan af Kristjáni Bersa, og var mér strax vísað inn í blaðamannaherbergi þingsins. Þar gaf heldur á að líta: fjöldi blaðamanna sat þar reykjandi, lesandi blöð, leysandi krossgátur. Sumir voru jafnvel illa klæddir. Ég var feginn, þegar mér gafst tæki- færi til að komast inn í þingsalinn. En þar varð ég fyrir mestu vonbrigðum. Sú samkoma var sýnu óvirðulegri en þingið heima í Reykjavík. Þingmenn voru greinilega í hvunn- dagsklæðum sínum, og þeim sumum ó- merkilegum. Þingmenn sátu ekki við 22 S p e g i 11 i n n nein borð, og þeir sem ekki voru að rápa út og inn, voru að rýna í blöð, Times og Punch, sem er Spegill þeirra ensku. — Aldeilis gekk fram af mér að sjá hvemig Wilson forsætisráðherra hag- aði sér, hann lagði báðar lappimar upp á borð, rétteins og amerískur gangstéra- foringi. Ég kom þama í parlamentið á hverj- um degi í nokkurn tíma, mér til sárrar raunar. Ég saknaði þeingskörunganna heima, eins og t.d. Bjöms á Löngumýri, Matta í Sparísjóðnum, Axels baðvarð- ar, Sigurðar Ola og margra fleiri. KYNBOMBAN BIRTIST. En dag nokkum gerðist loks dálítið markvert. Ég var viðstaddur fund í neðri málstofunni og hlustaði á einhverj- ar nauðaómerkilegar umræður um nauðaómerkilegt mál. Ég dottaði annað veifið, en þingmenn sváfu þó ennþá meira og geispuðu margir ákaft og á- mátlega. En allt í einu var sem sterkur raf- magnsstraumur færi um allan þing- heim, menn vöktu hver annan með oln- bogaskotum og allir horfðu sem dáleidd- ir í sömu átt, og augun í þeim urðu kringlótt af undran og græðgi. Enda var ekki að furða. Einn íhalds- þingmaður, sem ég hafði orðið dálítið málkunnugur í vínstúkum þingsins, þar sem hann og margir þingmenn eru tíðir gestir, -—- hann var nú að leiða kven- mann inn á áheyrendapallana. Og hví- líkur kvenmaður! Hún var fríð eins og liljan í dalnum, ljóshærð og litfríð og létt undir brún. En þó vakti klæðnað- ur hennar, eða réttara sagt klæðleysi mesta athygli. Kjóllinn — ef kjól skyldi kalla, var fleginn niður undir nafla, og náði aðeins lítið eitt niður fyrir nafla! Og hvílíkur líkami! „Hvílík brjóst og háls og haka, hærra sé ég ekki vel“, minnir mig að skáldið Heine segði. Þetta var í einu orði sagt einn sá bólfimlegasti kvenmaður, sem ég hef barið augum. Aldrei hafa mér birzt svo dásamlega dýrðir kvenlegs holds. Kynbomban fékk sér sæti og brosti yndislega. I þingsalnum ríkti dauða- þögn, allir störðu sem dáleiddir, opnurn munni á þennan viðburð, og aldrei hef ég séð mannlega náttúru bregðast svo snarlega við. Liðu svo nokkrar mínútur í þögn, aðdáun, undrun og fýsn. Loks mannaði forsetinn sig upp og sleit fundi í ofboði. — Ég verð að segja Bjama rækilega frá þessu, hugsaði ég með mér. SKÝRSLAN FÆRÐ BJARNA. Eftir þennan atburð dvaldist ég stutt í London ,enda fátt á parlamentinu að græða, það er ekki var hægt að læra á Alþingi heima. Þingmenn eru skrýtnir fuglar, hvar sem er í veröldinni. Ég lét ekki bíða að fara upp í Stjórn- arráð að gefa Bjarna skýrslu mína, og ég dró ekkert undan, sérstaklega lýsti ég líkamlegum dásemdum kynbom- bombunnar Jane Mansfield út í æsar. Bjarni hlustaði mjög gaumgæfilega á. Að skýrslunni lokinni sagði Bjarni fyrst: „Þú segir að Wilson forsætisráð- herra hafi lagt báðar lappirnar upp á borðið fyrir framan sig. Heldurðu að það mundi afla mér vinsælda að gera

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.