Spegillinn - 01.04.1967, Síða 26

Spegillinn - 01.04.1967, Síða 26
Hver fjandinn, og ég sem hélt að það væri búið að leysa öll vandamól. — Humm, ég var ekki á síðasta Landsfundi, var ekki orðinn flokksbund- inn Sjálfstæðismaður þá, þú hlýtur að taka feil á mér og einhverjum öðrum, sagði hann. — Jæja, skítt með það. En hvernig er ástandið á Suðurnesjum, er ekki allt í blómanum og sómanum og lukkunnar velstandi?, spurði ég hressilega. — Nú, ekki vil ég nú segja það, vandamál bátaútvegsins hafa sjaldan verið meiri en núna, og það er brýn nauðsyn að þau verði leyst tafarlaust, sagði Suðurnesjamaðurinn í hálfum hljóðum. — Hver fjandinn, og ég sem hélt að það væri búið að leysa öll vandamál, mér skildist það á ræðunni áðan, sagði ég- — Það hefur verið misskilningur, annað hvort hjá þér eða í ræðunni, ég hlustaði nú satt að segja ekki svo gaum- gæfilega á hana, sagði fulltrúinn lágt. — En hvernig er það, er nokkur fót- ur fyrir þessum sögusögnum um óháð framboð í kjördæminu?, spurði ég. Mað- urinn leit flóttalega í kringum sig. — Það veit ég ekki, ég held það geti svo sem verið, það er bölvaður kurr í smábátaeigendunum, sagði hann og snerist á hæli frá mér. Þá leitaði ég uppi einn Vestfjarða- fulltrúa og heilsaði honum kunnuglega, enda var þetta ungur og sætur piltur. — Hvað viltu segja mér um helztu hagsmunamál ykkar vestra? spurði ég rétt til svona. -—- Þau eru nú mörg og ekki eitt öðru brýnna, það þarf að bæta samgöngurn- ar og efla atvinnulífið, svo eitthvað sé nefnt. Skemmtanalíf er aftur á móti mikið og gott, sagði fulltrúinn rösklega. — Fólk hefur kannski ekki annað að gera en skemmta sér, sagði ég. — Annars er ég bjartsýnn á kosn- ingamar í mínu kjördæmi, þar dettur fólki yfirleitt ekki í hug að kenna ráð- herrunum okkar um verðbólguna, nú og Vestfjarðaáætlunin hefur borið góð- an árangur, sagði Vestfirðingurinn hvergi feiminn. — Vestfjarðaáætlunin? Er hún ekki algert leyndarmál enn þá, og á norsku þar að auki, mig minnir að ég hafi ein- hversstaðar séð það? sagði ég. — Jæja, nú er það? það getur svo sem vel verið, en áætlunin sem slík er eins góð fyrir því, anzaði Vestfirðingur og blandaði sér snarlega í hóp annara fulltrúa. Ég gaf mig þá á tal við nokkra bænd- 26 S p e g i 11 i n n ur, sem stóðu sér í hóp og buðu hver öðrum í nefið. — Sælir verið þið, og velkomnir á Landsfundinn? Hvemig er hljóðið í ykk- ur bændunum? romsaði ég. Bændurnir litu hver á annan og síðan á mig. Svo spurði einn, hvort ég væri frá Morgun- blaðinu og hvort ég ætlaði að fara að taka mynd af þeim, bændur utan af landi eru nefnilega alveg óðir í að fá myndir af sér í Mogganum, og helzt dá- lítið viðtal líka, þótt það þurfi nú ekki endilega að fylla hálft blaðið eins og viðtölin hans Matta leikritaskálds, „í fá- um orðumsagt“. En þegar ég sagðist ckki vera frá neinu blaði, ekki einu sinni Nýjum Stormi, Lögréttu eða Frjálsri þjóð, þá höfðu karlamir engan áhuga fyrir mér Iengur. Þó gat ég fisk- að það upp úr þeim, að þeir teldu mál- um bænda hafa verið farsællega stjóm- að á líðandi kjörtímabili og voru bjart- sýnir á kosningamar. Ég reyndi þá næst að hafa tal af nokkrum fulltrúum yngri kynslóðarinn- ar þama á fundinum, en þetta vom svoddan spjátmngar og merkikerti, að það var ekkert á þeim að græða. Ég stakk því af, af fundinum, og samdi svohljóðandi ályktun í huganum á leið- inni heim: Mikil ánægja ríkjandi á Landsfundi Sjálfstæðismanna með stjórnarstefnuna, vandamál sjávarút- vegsins aldrei meiri en nú, áberandi samdráttur í atvinnulífinu um allt land, greiðsluerfiðleikar iðnfyrirtækja dagvax- andi, sem sagðt: gott. Frönsk transistor-viðtæki með plötuspilara og bótabylgjusviði. Spilara bæði meno og Stereo. LAUGAVEG 83 h.ff. SÍMI 16525

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.