Stúdentablaðið - 01.12.1924, Page 9
Blað það, sem hér birtist hið fyrsta
sinn, er ekki stofnað til þess að vinna fyr-
ir neinar ákveðnar stefnur í félags- eða
mentamálum. Rétt er að skoða það sem
ávöxt sívaxandi félagsanda meðal stú-
renta, á síðustu árum, sem lýsir sér eigi
síður í ýmsum öðrum hugsjónum, er þeir
hafa skapað og reynt að framkvæma sum-
ar hverjar. Tilgangur blaðsins er einkum
sá, að gefa þeim, er um slíkt hirða, sem
fjölbreyttasta heildarmynd af andlegu
lífi háskólastúdenta. þeim tilgangi verður
ekki náð nema að mjög litlu leyti með einu
litlu tölublaði. En það er ætlun stúdenta-
ráðsins að blaðið komi út endrum og eins
framvegis, og mun það þá, er stundir líða,
geta orðið skemtileg og rnerk heimild um
það, hvaða málefni hafi verið efst á baugi
meðal stúdenta á hverjum tíma.
Blaðið á að sýna viðhorf, skilning og
áhuga. En því er ekki ætlað að ganga
fram fyrir fylkingar í neinni baráttu. þó
kynni svo að fara, ef sérstök ástæða
gefst, og vafalaust mun það telja sér skylt
að halda fram sérstökum málum, er varða
hag stúdenta, eftir því sem efni leyfa og
þörf gerist.
Sökum þess, hve rúm blaðsins er lítið,
hefir það ráð verið tekið, að takmarka
lengd greinanna. Á þann hátt verður efni
þess margbreyttara, en hinsvegar ef til
vill naumast jafn rökstutt og tæmandi í
hverju einstöku atriði. Má vera, að ein-
hver sakni þess.
Ilitt ætti enginn að lasta, þó hér sé kom-
ið allvíða við. Fer vel á því, að blað stú-
denta beri sem ljósast með sér, að kjör-
orð þess er hið fornkveðna:
Nil humanum a me alienum
p u t o!