Stúdentablaðið - 01.12.1924, Qupperneq 14
STÚDENTABLAÐ
1924
(i
það gagn, sem hver þjóð hefir af sínum
bestu mönnum, verður aldrei metið um of.
Læknadeild Háskólans hefir átt því láni
að fagna, að njóta krafta eins hins besta
og mikilhæfasta manns í sinni stétt, pró-
fessors Guðmundar Magnússonar.
1894 hóf hann kenslu í læknisfræði.
Fyrst við Læknaskólann og síðar, frá
1911 að Háskóli íslands var stofnaður,
við Læknadeild Háskóla íslands, og hefir
haft hana á hendi fram á þennan dag.
1 30 ár samfleytt hefir hann því kent
miklum hluta allra lækna landsins, ein-
hverjar þýðingarmestu greinar læknis-
fræðinnar.
Honum má þakka það einna mest, að
læknakensla vor er nú komin í það horf, að
læknar frá Háskóla vorum standa lækn-
um annara þjóða jafnfætis.
I kenslu sinni leggur hann umfram alt
áherslu á skýra og rökrétta hugsun,
sanna og haldgóða þekkingu, samvisku-
semi og ósérhlífni í öllum störfum.
Tvímælalaust eiga fáir kennarar jafn-
mikil ítök í nemendum sínum og hann, og
“kki mun ofsagt, að hann hafi að miklu
leyti mótað hinn vngri hluta læknastétt-
ar þessa lands.
Hið mikla starf, sem hann hefir þannig
af hendi leyst, bæði með kenslunni og hin-
um víðtæku læknisstörfum sínum, væri
því ærið nóg til að halda nafni hans á lofti.