Stúdentablaðið - 01.10.1958, Side 8
8
'ittídentalfcuf
HJÓNAGARÐUR
Eitt glœsilegasta stúdentdheim-
ilið á Norðurlöndum er hinn svo-
nefndi Egmont-stúdentagarður í
Kaupmannahöfn, en hann hefur
nýlega að fullu tekið til starfa. Á
þessum stúdentagarði eru tœplega
500 herbergi. Er þeim þannig fyrir
komið, að hver tvö herbergi hafa
sameiginlegt salerni og bað, þann-
ig að þau mynda litla íbúð, sem
hentug er fyrir hjón. Garður þessi
er því jafnframt hjónagarður. —
Samt er þessu þannig fyrirkomið,
að þótt tveir einstakir stúdentar
búi í herbergjunum eru þeir alveg
ótruflaðir hvor af öðrum og þurfa
ekki að hafa meiri samgang sín á
milli en þeir kœra sig um.
Á efstu hœð hússins er vöggu-
stofa og barnaheimili, sem annast
um börn stúdenta og hefur á hendi
gœzlu þeirra mestan hluta dagsins.
Þeir stúdentar, sem þess óska,
geta eldað sjálfir sinn mat og eru
allmörg eldhús í byggingunni, sem
stúdentar eiga aðgang að. Enn-
fremur er unnt að fá keyptan mat
í veitingasölum hússins við vœgu
verði.
Hús þetta er jafnframt félags-
heimili fyrir þá stúdenta, sem
þarna búa. Þar er unnt að halda
Herberg-in eru vistleg og nýtízkuleg.
★
'k
★
Á meðan íslenzk yfirvöld synja
stöðugt stúdentum um leyfi fyrir
heppilegum vinningi í happdrœtti,
til að afla fjár fyrir nýjan íslenzk-
an stúdentagarð, sem ef til vill
gœti jafnframt orðið félagsheimili,
— verða íslenzkir stúdentar að
láta sér nœgja að horfa á myndir
frá þeim mörgu stúdentagörðum,
sem risið hafa upp erlendis á síð-
ustu árum. Á Norðurlöndum hafa
til dæmis á siðustu árum verið
byggðir mjög glœsilegir stúdenta-
garðar, sem jafnframt eru félags-
heimili fjölda stúdenta.
Hluti af Egmont-stúdentagarðinum, sem er ein glæsilegasta stofnun
sinnar tegundar á Norðurlönilum.