Stúdentablaðið - 01.10.1958, Side 9
9
^tiídentaltak
t
FÉLAGS-
HEIMILI
stórar skemmtanir, þar eru borð-
tennissalir, smíðaherbergi, setu-
stofa með blöðum, bókum og sjón-
varpi, herbergi þar sem unnt er að
leika á hljóðfœri, kvikmyndasalir,
leikfimisherbergi o. s. frv. Enn-
fremur hafa framtakssamir tœkni-
stúdentar komið upp útvarpsstöð
innan hússins, sem útvarpar
nokkra klukkutíma á degi hverj-
um.
Á sumrin er stúdentagarðurinn
rekinn sem hótel og það meira að
segja lúxus-hótel. Við byggingu
hússins hefur verið gert ráð fyrir
því frá upphafi. Fundarherbergi
stúdenta er þá breytt í vínbar með
einu handtaki, matsalurinn gerð-
ur að danssal öðrum þræði o. s. frv.
Er hótel þetta mjög eftirsótt af
ferðamönnum, enda dýrt að búa
þar. Herbergi yfir nóttina kostar
t. d. um d. kr. 30.00. Hins vegar
þurfa stúdentar að greiða d. kr.
65.00 pr. mánuð fyrir herbergið á
veturnar. Um 100 stúdentar starfa
hjá hótelinu yfir sumarið.
Ekki eru tök á því hér að birta
nánari lýsingu á þessari glæsilegu
stofnun, en hér birtast nokkrar
myndir frá Egmont-stúdentagarð-
inum.
Séð yfir hátíðasal Eginont-stúdentagarðsins.
★
★
★