Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.10.1958, Side 11

Stúdentablaðið - 01.10.1958, Side 11
II 3 úden.Lalí'a.(Í flytja tómstundina inn fyrir vé- hönd skólans, eftir því sem unnt er. Þegar ráðamenn háskólans levfðu, að dansleikir færu fram í anddyrinu, fólst í því viður- kenning á því, að liáskólinn sé samfélag mennskra manna, að hvíld og skennntun séu forsend- ur iðnar og ástundunar og fram hjá þeirri staðreyml yrði ekki gengið, ef liinum eiginlega til- gangi ætti að ná. Með þessum hætti var háskólinn að rækja það lilutverk sitt að vera mann- legt samfélag og var það gert á þann hátt, sem tiltækilegur var að sinni. Auðvitað er öllum ljóst, að anddyri háskólans er ekki ætl- að til samkomuhalds, en engu getur sú staðreynd liaggað, sem máli skiptir. Margvíslegur frum- býlingsháttur hefur löngum fylgt Islendingum og húsnæðis- vandræði eru eitt einkenni lians. Þannig hefur oft orðið að taka byggingar til nota, sem ekki var ætlazt til í öndverðu. Kirkjur hafa til dæmis iðulega verið not- aðar til gistingar og fundahalda, þegar annað liúsnæði hefur hrugðizt og nú á síðustu árum iiefiiL' verið gripið til að nota kvikmyndalnis til guðsþjónustu- halds, þar sem kirkjuleysi hefur hagað söfnuði. Þetta hefur ekki, svo vitað sé, valdið neinni Hneykslun, enda hefur hér nauð- ur rekið til. Erfitt er að sjá, að notkun anddyris háskólans til mannfagnaðar sé neitt hneyksl- anlegri en áðurnefnd notkun kirkna. Ef virðing háskólans er hins vegar slíkri notkun til fyr- irstöðu, þá er það fyrir neðan virðingu liáskólans að liýsa það samfélag í lieild, sem þar á að vera. Önnur ástæðan snertir slit á húsi og húsmunum háskólans. Um þá ástæðu er það skemmst að segja, að liún fær alls ekki staðizt. Eða hvernig getur það staðizt, að ein samkoma á ári geti valdið slíku sliti á vönduðu steinliúsi, að þess vegna sé ekki hægt að halda liana? Enn frá- leitari verður þessi viðhára, þeg- ar liafðar eru í liuga til sam- anburðar hyggingar Mennta- skólans i Reykjavik og Mennta- skólans á Akureyri, sem háðar eru úr timbri, en í hinni fyrr- nefndu hefur verið dansað að meira eða minna leyti í 112 ár, en 54 ár í liinni síðarnefndu og standa þó háðar enn við fulla reisn. Ef ekki er gert ráð fyrir hein- um skemmdarverkum, en ein- ungis hugsanlegum óhöppum, verða líkurnar á sliti eða skemmdum hverfandi litlar. I anddyrinu sjálfu, sem allt er af steini eða járni, er slikt gersam- lega útilokað, en á hinn bóginn hugsanlegt eitthvert slit á göng- um. Allt slíkt yrði þó hægt að bæta mjög ríflega af þeim ágóða, sem dansleikur þessi mundi vissulega skila, svo að áhættan að þessu leyti er nauðalítil. Þriðja ástæðan varðar slysa- hættu og má segja, að hún hafi við full rök að styðjast. En hún snertii' þó ekki áramótadans- leikina eina, lieldur daglega notkun háskólabyggingarinnar. Má telja það milda mildi, að slys skuli aldrei hafa oi'ðið, þeg- ar haft er í huga, hversu hálir stigarnir eru og handrið öll lág. Ur þessu þarf að bæla alveg án tillits til þess, hvort áramóta- dansleikir vei'ða leyfðir eða ekki. Er með öllu óverjandi, að hiða þess að slys verði, en að því hlýtur að koma fyrr eða síðar, ef ekki verður úr hætt. Þegar það hefur verið gert, þarf slysahætta ekki að vera þvi til fyrirstöðu, að áramótadans- leikirnir verði haldnir. III. Mannfundir sem áramóta- dansleikirnir liafa sitt ákveðna gildi, þótt ekki verði um það fjölyrt hér. Það gildi verður þó aldrei mælt á neina mælistiku og því er mönnum gjarnt að láta sér sjást yfir það. Hér að framan er nokkuð að þvi vikið og verður þvi ekki um það f jöl- yrt frekar. Annað atriði skiptir hér miklu meira máli, og raunar höfuðmáli, en það er, að dans- leikir þessir eru einhver örugg- asta og óhrigðulasta tekjulind, sem stúdentar eiga völ á. Til marks um þetta má geta þess, að hagnaður af tveimur síðustu dansleikjunum var kr. 19.503.18 1946 og kr. 21.895.97 1947. Við núverandi aðstæður mætti hik- laust tvöfalda þessa uppliæð. Þegar þessi staðreynd er liöfð í huga, þarf það ekki að vekja neina furðu, þótt stúdentum þvki það liart aðgöngu, að láta tekjulind þessa vera ónotaða ár eftir ár, þegar fjárskortur fer sívaxandi. Sú staðreynd, að íslenzka há- skólastúdenta skortir fé, er kunnari en svo, að um liana þurfi að rita langt mál. Nægir í því sambandi að minna á skuldabagga Garðanna, sem lít- ið liefur tekizt að grynna á og veldur því meðal annars, að ekki er hægt að hefjast handa um undirbúning að því að reisa nýjan Gai'ð, auk þess sem ekk-

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.